Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1984, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Hafnarfjarðarkirkja í smíðum 1914
Fullsetin kirkja við vígslu nýs kirkjuorgels, 1955.
aö fá kirkju reista í bænum. Var
nefnd kosin til að sjá um undirbún-
ing þess, og leitaði hún til Rögn-
valds Ólafssonar húsameistara um
tillögu að gerð kirkjunnar. Brást
hann vel við, og í febrúar 1909 sam-
þykkir safnaðarfundur að reisa
kirkju eftir teikningu frá honum.
Skyldi hún vera úr steinsteypu og
taka um 500 menn í sæti, en allir
umsjón kirkjunnar, sem skyldi
verða sóknarkirkja fyrir Garða-
sókn alla.
Samþykki kirkjuyfirvaldanna
dróst árlangt. í marsmánuði 1910
tók söfnuðurinn að sér fjárhald og
umsjón Garðakirkju. En i árslok
1909 hafði safnaðarfundur sam-
þykkt uppdrátt að nýrri kirkju í
Hafnarfirði eftir Rögnvald Ólafs-
nefndina voru kosnir: August Flyg-
enring kaupmaður, Einar Þorgils-
son kaupmaður og Sigurgeir Gísla-
son verkstjóri. Hafði þá verið lofað
talsverðum framlögum til kirkju-
byggingarinnar í fé og vinnu.
Framkvæmdir urðu þó ekki eins
skjótt og búast mátti við. Nú kom
ýmiss konar ágreiningur í ljós um
málið, og myndaðist flokkur, sem
Hafnarfjarðar-
kirkja 70 ára
Hinn 20. desember 1914 vígöi
Þórhallur Bjarnason biskup Hafn-
arfjarðarkirkju. Hún veröur því 7o
ára nú fyrir jólin. Af því tilefni hef-
ur forsiöumyndin á þessu jólablaöi
Alþýðublaðs Hafnarfjarðar verið
valin, en hún er úr Hafnarfjarðar-
kirkju.
Alþýðublaö Hafnarfjarðar óskar
kirkjunni (il hamingju með afmæl-
ið og væntir þess að henni fylgi
gifta og gengi hér eftir eins og hin*-
að til.
Þegar Hafnarfjarðarkirkja va
50 ára, skrifaði Ólafur Þ. Kristjáns-
son fyrrum skólastjóri Flens-
borgarskóla um kirkjuna í jólablað
Alþýðublaðs Hafnarfjarðar og
sagði þar m. a.:
Oldum saman sóttu menn frá
býlunum við Hafnarfjörð kirkju að
Görðum, og hélst það, þótt sjávar-
þorp tæki að myndast inn undir
fjarðarbotninum. Heitir enn
Kirkjuvegur, þar sem menn gengu
upp frá flæðarmálinu og yfir
hraunbunguna vestur að Víðistöð-
um.
Það var í frásögur fært, að árið
1878, þegar til stóð að Garðakirkja
yrði endurbyggð, gerði hinn fram-
'ýni maður, Þórarinn prófastur
Böðvarsson í Görðum, kost á því,
að kirkjan yrði reist inni í Hafnar-
firði, þar sem þá bjó á 5. hundrað
manns, enda tæki þá söfnuðurinn
að sér að sjá um kirkjuna. Þessu var
dauflega tekið, og mátti raunar við
því búast, því að það heyrði þá til
nýmæla, að söfnuður tæki að sér
umsjón kirkju, og ekki voru lög sett
um það efni fyrr en fjórum árum
seinna. Séra Þórarinn lét því reisa
kirkjuna í Görðum (1879). ramm-
byggilega hlaðna úr höggnum
steini, og þótti hún einhver myndar-
legasta kirkja hér á landi á þeim
dögum.
Jafnskjótt og Hafnarfjörður
hafði fengið kaupstaðarréttindi,
1908, tók að koma hugur í íbúana
Fyrstu embættismenn Hafnarfjarðarkirkju: Organleikarinn, Friðrik
Bjarnason, sóknarpresturinn, síra, Árni Björnsson og meðhjálparinn, Gísli
Jónsson.
íbúar kaupstaðarins voru þá tæp 15
hundruð. Jafnframt var samþykkt
að byrja að safna fé í kirkjubygg-
ingarsjóð og loforðum um vinnu.
Það fylgdi þessu, að söfnuðurinn
óskaði að taka að sér fjárhald og
son. jafnframt var kosin þriggja
manna nefnd til þess að annast
byggingarframkvæmdir ásamt
sóknarnefndinni, en formaður
hennar var þá Steingrímur Torfa^
son kennari, síðar kaupmaður. í
Um útivistartíma barna og
unglinga, samkv. lögreglu-
samþykkt fyrir Hafnarfjörð.
42. gr.
Börn yngri en 12 ára mega ekki vera á almanna-
færi eftir kl. 20.00 og ekki eftir kl. 22.00 tímabilið
1. maí til 1. september, nema í fylgd með fullorðn-
um, aðstandendum sinum eða umsjónarmönn-
um.
Börn yngri en 15 ára mega ekki vera á almanna-
færi eftir kl. 22.00 tímabilið 1. september til 1. maí
og ekki eftir kl. 23.00 1. maí til 1. september, nema
í fylgd með fullorðnum, eða um sé að ræða beina
heimferð frá skólaskemmtun, íþróttasamkomu
eða frá annarri viðurkenndri æskulýðsstarfsemi.
Hvers konar þjónusta við börn og ungmenni eftir
löglegan útivistartíma, önnur en heimflutningur,
er bönnuð að viðlagri ábyrgð þess er þjónustuna
veitir.
Óheimilt er að selja börnum undir 16 ára aldri
sígarettur eða aðrar tóbaksvörur.
Aldur barna skv. grein þessari skal miðast við
fæðingarár.
Barnaverndarnefnd skal vera lögreglunni til að-
stoðar við að sjá um að ákvæðum þessum sé
hlýtt.
43. gr.
Börnum yngri en 16 ára er óheimill aðgangur og
dvöl á almennum dansleikjum eftir kl. 20.00 öðr-
um en sérstökum unglingaskemmtunum sem
haldnareru af skólum, æskulýðsfélögum eðaöðr-
um aðilum sem til þess hafaleyfi og háðareru sér-
stöku eftirliti. Forstöðumönnum dansleikja er
skylt að fylgjast með því að ákvæði þessi séu
haldin að viðlögðum sektum og/eða missi leyfis
til veitingahalds eða skemmtanahalds um lengri
eða skemmri tlma.
Ungmennum yngri en 18áraeróheimill aðgangur
og dvöl á veitingahúsum, sem hafa leyfi til vínveit-
inga nema í fylgd með foreldrum eða forráða-
mönnum. Veitingaleyfishafa er skylt að gæta
þess að ákvæði þetta sé haldið að viðlögðum
sektum og/eða missi leyfis til vínveitinga um
lengri eða skemmri tíma.
Þeirsem hafaforsjáeðaforeldraráð barnaog ung-
menna skulu gæta þess að ákvæði þessarar
greinar séu ekki brotin. Þá má einnig beita sak-
hæf ungmenni viðurlögum fyrir brot á þessum
ákvæðum. Útdráttur úr ákvæði þessarar greinar
skal hangaááberandi stað í öllum skólum skyldu-
náms, almennum veitingahúsum og samkomu-
stöðum I lögsagnarumdæminu og sér viðkom-
andi barnaverndarnefnd ásamt lögreglu um að
þessu sé framfylgt.
Bannaö er að ungmenni innan 18 ára aldurs starfi
á veitingahúsum og skemmtistöðum, þar sem
ætla má, að siðferði þeirra sé sérstök hætta búin.
Foreldrar eru vinsamlega beðnir að reyna að
stemma stigu við reiðhjólanotkun barna sinna
yfir vetrartímann.
Barnaverndarnefndin og
lögreglan í Hafnarfirði.