Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1984, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
5
taldi rétt að fresta flutningi kirkj-
unnar til Hafnarfjarðar um sinn.
Prófasturinn í Görðum, séra Jens
Pálsson, andaðist 28. nóvember
1912. Prestskosning fór fram um
vorið eftir og Ieiddi til þess, ásamt
eldri ágreiningi, að fríkirkjusöfn-
uður var stofnaður í Hafnarfirði,
en nýi presturinn, séra Þorsteinn
Briem, sagði af sér, og aðrar prests-
kosningar fóru fram í júlí 1913.
Fríkirkjusöfnuðurinn réðst þeg-
ar í að koma sér upp kirkju, eins og
sagt er frá í annarri grein hér í blað-
inu. Þjóðkirkjusöfnuðurinn lét
ekki heldur standa á framkvæmd-
um hjá sér. Byggingarnefndin, sem
fyrr var nefnd, gekk að þeim mál-
um með miklum dugnaði ásamt
sóknarnefndinni, einkum for-
manni hennar, Steingrími Torfa-
syni, og Kristni Vigfússyni verk-
stjóra. Var byrjað að grafa fyrir
grunni kirkjunnar haustið 1913, en
kirkjusmíðin sjálf hófst um vorið.
Var kirkjunni valinn staður norðan
til í sýslumannstúninu. Höfðu áður
verið uppi raddir um að reisa hana
uppi á Hamarskotshamri, þar sem
nú er Flensborgarskólinn. Enginn
verulegur ágreiningur mun þó hafa
verið um staðarvalið.
Yfirsmiður kirkjunnar var ráð-
inn Guðni Þorláksson, en gerð var
hún eftir teikningum Rögnvalds
Ólafssonar, eins og fyrr segir.
Rögnvaldur Ólafsson húsameist-
ari var fæddur 5. des. 1874 í Ytri-
húsum í Dýrafirði, sonur Ólafs
Zakaríassonar bónda þar og konu
hans, Veróniku Jónsdóttur prests
Eyjólfssonar, en móðir séra Jóns
var Guðrún dóttir Jóns prests og
skálds á Bægisá, Þorlákssonar. Var
Rögnvaldur gáfumaður mikill,
hafði stundað húsagerðarlist er-
lendis og var, þegar hér var komið,
ráðunautur landsstjórnarinnar um
gerð opinberra bygginga. Hann
andaðist á Vífilsstöðum 14. febrúar
1917, ókvæntur og barnlaus. Þykja
mörg þau hús, sem hann teiknaði,
hin prýðilegustu, stílhrein og lát-
laus og fögur í einfaldleik sínum. Á
þetta ekki síst við um kirkjur þær,
er hann teiknaði, og ber Hafnar-
fjarðarkirkja þessu gott vitni.
Guðni Þorláksson yfirsmiður var
fæddur í Hafnarfirði 11. maí 1881.
Foreldrar hans bjuggu í Þorláks-
húsi á Stakkstæðinu, austan
Reykjavíkurvegar og neðan Hverf-
isgötu sem nú er. Hét móðir hans
Margrét og var dóttir Guðna Jóns-
sonar og Sigríðar Gísladóttur, er
lengi bjuggu á Ingunnarstöðum í
Brynjudal og Hvammi í Kjós. En
faðir Guðna var af gömlum, hafn-
firskum ættum, hét Þorlákur Þor-
láksson og var lengi skipstjóri á
fiskibátum, en faðir eldra Þorláks
var Hildibrandur bóndi í Ási við
Hafnarfjörð, sá er Hildibrandsætt
er við kennd. Guðni lauk námi í
Flensborgarskóla 1897 og nam síð-
an trésmíði hjá Bjarna snikkara
Jónssyni í Reykjavík. Þótti Guðni
vandaður smiður og kappsmikill
við vinnu. Hann hafði staðið fyrir
húsbyggingum víðs vegar um land,
meðal annars á skólastöðunum
Hólum og Eiðum, og kirkju hafði
hann smíðað í Kollafjarðarnesi.
Hann hafði smíðað bryggjuhúsin
við Gömlu bryggjuna hér í Hafnar-
firði 1912. Hafði hann áður verið
búsettur í Reykjavik, en átti nú
heima í Hafnarfirði. Hét kona hans
Margrét Þorláksdóttir smiðs frá
ísafirði, Magnússonar. Þau eignuð-
ust þrjú börn: Lúðvík kaupmann á
Selfossi, Hjalta efnalaugarfor-
stjóra í Reykjavík og Önnu Mar-
grétu, sem þau misstu, meðan
kirkjusmíðin stóð yfir, telpu ekki
ársgamla.
Kirkjusmíðin gekk bæði fljótt og
vel, og var henni svo að segja lokið,
þegar Guðni Þorláksson veiktist
skyndilega af lungnabólgu, sem dró
hann til dauða 14. desember 1914.
Var útför hans gerð frá hinni nýju
kirkju á Þorláksmessudag. Var það
fyrsta kirkjulega athöfnin, sem
fram fór þar, fyrir utan kirkjuvígsl-
una, er Þórhallur biskup Bjarnason
framkvæmdi 20. desember 1914.
Merk tímamót
Um þessar mundir eru 80 ár frá því að Hafnfirðingar fengu
rafmagn til lýsingar. Þetta var fyrsta rafveitan á íslandi og
voru það 16 hús í bænum, sem fengu raflýsingu með þessum
hætti. í tilefni af þessu bað jólablað Alþýðublaðs Hafnar-
fjarðar, Brynjólf Þorbjarnarson, formann rafveitunefndar,
að segja lesendum blaðsins frá þessum merka atburði.
Brynjólfur brást vel við þessari málaleitan, svo sem hér má
sjá, og kann blaðið honum bestu
Merk-tímamót.
Þann 12. desember 1904, eða fyr-
ir 80 árum gerðist sá merki atburð-
ur í sögu Hafnarfjarðar að
Jóhannes J. Reykdal setti upp
vatnsaflsvirkjun við Hamarkots-
læk hér í Hafnarfirði.
Var mannvirki þetta staðsett
neðan við Austurgötu-brúna að
austanverðu við lækinn og mun
stöðin hafa framleitt 9 kW.
Raforkan var leidd í ein 16 hús í
bænum, eingöngu til lýsingar. Auk
þess voru sett upp nokkur götuljós.
Augljóst er því, að hér var um að
ræða fyrstu raforkudreifiveituna í
landinu, sem seldi rafmagn til al-
mennings.
Ekki er að efa, að atburður af
þessu tagi muni hafa vakið eftirtekt
og ánægju fyrir 80 árum meðal
bæjarbúa. Ekki síst í svartasta
skammdeginu rétt fyrir jólahátíð-
ina, því þá var „Fjörðurinn“ tiltölu-
lega fámennur fiskimannabær.
En Jóhannes J. Reykdal lét ekki
þar við sitja; árið 1906 er hann bú-
inn að setja upp aðra rafstöð við
Hamarkotslækinn. Var hún stað-
þakkir fyrir.
Brynjólfur Þorbjarnarson,
formaður rafveitunefndar
sett ofan við Hörðuvellina og var
venjulega kölluð Hörðuvallastöðin.
Þessi stöð var verulega stærri en
sú fyrri, eða um 37 kW.
Vafalaust má telja að Hafnar-
fjörður hafi með þessum hætti ver-
ið um nokkurt skeið eini rafvæddi
bærinn á landinu, og þá með raf-
magni sem framleitt var frá vatns-
orkuveri, þó í smáum stíl væri.
Einnig var sýnilegt, að urn var að
ræða hliðstætt fyrirkomulag á sölu
og dreifingu rafmagnsins og á sér
stað í dag. Þarna mun jafnframt
vera að finna upphaf að fyrstu raf-
veitu i landinu — sem sé Rafveitu
Hafnarfjarðar.
Þeir upphafsþættir sem hér að
framan er drepið á, eru aðeins lítið
brot úr upphafi að stórkostlegri
orkusögu þjóðarinnar, sem enn er í
fullum gangi. Hvort sem öðrum lík-
ar betur eða verr, þá verður því ekki
haggað, að upphafið er að finna hér
við bæjarlækinn okkar, sem rennur
annars svo prúður og hávaðalaus í
gegnum byggðina og er vissulega
perla í umhverfi Hafnarfjarðar.
Vegna þeirra merku tímamóta
sem hér að framan er getið, þá
liggja fyrir tillögur um að reist verði
veglegt minnismerki (symból) á
Lækjarsvæðinu og efnt verði til
opinberrar samkeppni í því sam-
bandi. Einnig er í sömu tillögu
áskorun til bæjarstjórnar, um að
hafist verði handa að gengið verði
endanlega frá Lækjarsvæðinu.
Er þess að vænta, að forráða-
menn bæjarins standi nú myndar-
lega að þessu máli og forðist þar öll
menningarslys.
Brynjólfur Þorbjarnarson.
Jólaádrepa
Ég er sennilega farin að eldast
— alla vega orðin eldri — því ég er
að verða nöldursöm og lœt ýmis-
legt smálegt í jólahaldi og jóia-
undirbúningi fara ofurlítið í taug-
arnar á mér, stundum jafnvel
dálítið mikið.
Eitt eru t.d. jólasveinarnir. Að
vísu ekki jálasveinarnir sem slíkir
— mér er dáyndisvel við þá —
heldur hitt hvernig stundum er
farið með karlagreyin og þeir
ruglaðir í ríminu. Samkvœmt
mínum kokkabókum fóru jóla-
sveinarnir að koma til byggða níu
eða þrettán dögum fyrir jól, sbr. í
vísunni „níu nóttum fyrir jól, þá
kem ég til manna." Nú, við þetta
hef ég reynt að halda mig, þótt
stundum hafi verið við ramman
reip að draga íþeim efnum og oft
erfitt að útskýra fyrir börnunum
allan þann mýgrút afjólasveinum
sem hafa vaðið uppi hvar og
hvenœr sem er í desember. Og
ekki batnar það, þegar sumir geta
sett skóinn sinn út í glugga með
góðutn árangri allan jólamánuð-
inn. Þá eiga mínir jólasveinar
virkilega í vök að verjast, og sú
hugsun hvarflar að mér hvort ein-
hver skyldi hagnast á öllu þessu
jólasveinafargani?
Annað sem ég hef látið ergja
mig eru jólaböllin — eða barna-
böllin. Ég fór á eitt slíkt fyrir
þremur árum og þá eftir nokkurt
hlé. Ég hlakkaði til eins og barn,
en hvílík vonbrigði — ég var kom-
in á diskó! Enginn söngur, engin
gleði — þarna var drattast stein-
þegjandi í kringum jólatréð undir
afbökuðum jólavísum í diskó-
takti. Síðan komu einhverjir jóla-
sveinar með hávaða og gaura-
gangi og gerðu börnin dauðskelk-
uð með yfirþyrmandi fettum og
brettum, kunnu varla að syngja
og því síður að segja sögur. En
sem beturfer virðist þessi tegund
jólaba/la á undanhaldi.
Og í öllum bænum leyfum jólct-
syeinunum okkar líka að hatda sín-
um gömlu eiginleikum og háttum
í stað þess að láta þá alla renna
saman í eina litlausa ímynd, sem
enginn þekkir lengur haus né
sporð á.
Púka-Veiga
—Sparibók—
meö sérvöxtum
Qggjyj |. 10.000 krónur lagðar inn é Sparibók með
sérvöxtum I upphafi érs. Vextir eru 28%,
vaxtaskeröing 1.8% viö úttekt. Ef bók er eyðilögð eftir: nafrv vaxta- til vextir leiör. ráöstöf- 28% 1.8% unar kr. kr. kr.
2 mén 188 10.279
3 m&n 700 193 10.507
4 mán 933 197 10.736
5 mán 1.167 201 10.966
6 mán 1.400 205 11.195
7 mán 1.633 209 11.424
8 mán 1.867 214 11.653
9 mán. 2.100 218 11.882
10 mán 2.333 222 12.111
11 mán 2.567 226 12.341
12 mán 2.800 180 12.620
Ef bók er ekki eyöilögö eftir ér veröur staöa bókar:
10.000 krónur + éunnir vextir 2.800 krónur, eöa
samtals krónur'12.800,-.
Þú velur tímann og töluna
— vid borgum vextina
VISA ISLAND
Annast öll innlend og erlend
bankaviðskipti
llliNAMRBANKINN
ÚTIBÚ GARÐABÆ SÍMI 53944
Sendum viðskipta-
mönnum bestu óskir
um gleðileg jól
og farsœlt nýár
BYKO
BYGGINGAVÖRUR
HAFNARFIRÐI
DALSHRAUN115
SÍMAR: 52870/54411
Höfum allt efni í
jólaskreytingarnar
Glœsilegt úrval
jólaskreytinga og
þurrblómaskreytinga
BLÓMABÚÐIN
Dögrgr
Reykjavíkurvegi 60
sími 53848