Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1984, Blaðsíða 9
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Pólitískur farsi
Framh. af bls. 7
Við þögðum þunnu hljóði um fjórðung leiðarinnar. Þá ræskti
nafni sig lengi og hátíðlega og fékk sér tóbakskorn í aðra nösina.
Hann framkvæmdi þessa athöfn á yfirmáta virðulegan hátt. Síðan
sagði hann djúpum rómi:
Hvað ætlar Bjarni nú að gera?
Vertu ekki að spyrja mig. F.kki tek cg ákvarðanir fyrir hann.
Hann ræskti sig enn áður en hann sagði:
Ég held að skynsamlegast væri fyrir Bjarna að hann drægi um-
sókn sína til baka.
Hverra crinda ertu nú að ganga? spurði ég.
Hann gæti bxtt fyrir sér með því, ég er viss um það.
Eru þetta skilaboð frá Kristjáni og Njáli? Mér hcfur skilist þú
værir handbendi þeirra í þessu máli.
Nú ræskti hann sig gríðarlega áður en hann sagði reiðilega:
Ég er gestur þinn í þessu farartæki, Ásgeir. Væri það til of
mikils mælst að þú hagaðir þér nokkurn veginn eins og siðuðum
manni sæmir?
Þá skalt þú tala eins og siðuðum manni sæmir. Væri það eitt-
hvert vit fyrir Bjarna að viðurkenna í verki að hann telji sig ekki
lengur eiga rétt á stöðunni?
Það er oft skynsamlegt að beygja sig fyrir staðreyndum. Ég er
aðeins að benda á það. Bjarni getur þurft að sxkja undir ráðherra
þótt síðar verði.
Þess vcgna á hann að leggjast flatur. Þú hefur lítinn metnað
fyrir fóstra þinn, Asgeir höfðinginn.
Sparaðu köpuryrðin, kall minn. Veistu hvað gerist á fræðslu-
ráðsfundi á morgun þegar greidd verða atkvæði um stöðuna?
Hvernig ætti ég að vita það? Ég er enginn þátttakandi í laumu-
spilinu.
Hann þagði um stund, hikaði við að halda áfram. En hann var
reiður og lét slag standa.
Þcir munu fá jöfn atkvæði Bjarni og hinn umsækjandinn. For-
maðurinn mun sirja hjá.
Formaðurinn, er það ekki fyrrverandi bæjarstjórinn ykkar?
Ekki ntinn bæjarstjóri, — bæjarstjóri Eggerts. Þú sérð að Bjarni
lenti í góðum félagsskap! Ég varaði hann við.
Þú lýgur þessu, Ásgeir Olafsson.
Sjáðu bara til. Menn bevgja sig fyrir valdinu, formaðurinn ekki
síður en aðrir. Hann ku þurfa að koina syni sínum að sem kennara
hjá nýja skólastjóranum. Hvað er fallinn flokksbróðir hjá því? Þú
ættir að segja Bjarna vini þínum að réttast og best væri fyrir hann
að draga umsókn sína til baka; það yrði vandræðaminnst fyrir
hann í framtíðinni.
Ertu meö hótanir? spurði ég og stöðvaði bílinn yst á veginum.
Hann leit á mig skarpt; í svipnum vó salt ögrun og reiði. Svo
sagði hann napurt:
Þið eruð ekki alvitrir þessir ungu menn.
Þá helltist reiðin yfir mig og ég þrumaði:
Veistu hvað þú ert, Ásgeir Ólafsson? Þú ert ræksni, pólitískt
ræksni. Og veistu hvað þessi svokallaði Alþýðuflokkur ykkar er,
hann er pólitískur hrævangur þar sem hver kroppar augun úr
öðrum. Og veistu hverjir hafa gert hann svona? Þú og þínir líkar.
Þið viljið allit stýra farinu, viljið allir vera formenn en hafið ekki
lengur sjó til að sigla á og þekkið ekki lagið. Þess vegna liðast
farkosturinn undir ykkur og þið hlaupist af og verðið reköld,
pólitísk ræksni eins og þú. Veistu hverju þetta Bjarnamál líkist
mest? Pólitískum farsa. Allar ykkar gerðir þessara svokölluðu
pólitíkusa i þessu máli hvort sem þið þykist vera hérna rnegin cða
hinumegin eru pólitískur farsi, skítlegur skopleikur. Þið þykist
þekkja leið um lönd og sjó en ratið þó hvergi. Ég hefði aldrei trúað
því að þú værir ein aðalpersónan í þessum pólitíska farsa en annað
er nú komið á daginn. Ég hefði mátt vita það; allt þitt líf nú orðið
er einn pólitískur farsi. Og nú skaltu hypja þig út úr þessum bíl; ég
vil ekki anda að mér sama lofti og þú.
Hann horfir á mig náfölur af reiði um leið og hann hörfar aftur
á bak út úr bílnum, andlitsdrættir sem steyptir í stein. En þegar ég
lít í augu hans finnst mér vorta fyrir angursemi og varnarleysi.
Þetta augnatillit hans fylgir mér í reiði minni ogvinslitum okkar.
Hafnfirðingar
Við höfum mikið úrval af gjafavörum,
eitthvað nýtt á hverjum degi
Kertaúrvalið hefur aldrei verið meira
Leiðisgreinar og krossar (pantið tímanlega)
Við höfum opið til kl. 21 á hverju kvöldi
Gleðileg jól
Blótriabúdin
LINNETSTTÍG 3 - SlMI 50071
HAPNARFIRDI
Guðriöur Elíasdóttir formaður
Framtíðarinnar og varaforseti ASl
Guðríður
vara-
forseti
ASÍ
Það hefur vafalaust ekki farið
framhjá neinum bæjarbúa, að á
þingi Alþýðusambands íslands,
sem fram fór fyrir skömmu, var
Guðríður Elíasdóttir, formaður
verkakvennafélagsins Framtíðar-
innar hér í Hafnarfirði, kjörin
varaforseti Alþýðusambands ís-
lands.
Óþarfi er að kynna Guðríði
fyrir Hafnfirðingum, hún er þeim
vel kunn fyrir störf sín í bænum.
Hún var fyrst kjörin í stjórn
Framtíðarinnar árið 1948 og verið
formaður félagsins frá 1967. Guð-
ríður hefur einnig setið í mið-
stjórn ASÍ og gegnt ýmsum fleiri
trúnaðarstörfum fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. Síðast en ekki síst
hefur Alþýðuflokkurinn notið
starfskrafta Guðríðar Elíasdóttur
um langt árabil. Hún hefur setið i
bæjarstjórn hér í Firðinum fyrir
Alþýðuflokkinn og verið lengi í
forystusveit flokksins í bænum.
Alþýðublað Hafnarfjarðar
óskar Guðríði til hamingju með
það traust sem henni og um leið
samtökum hafnfirskra verka-
kvenna hefur verið sýnt með kjöri
til varaforseta ASÍ. Sömuleiðis fá
hafnfirskar verkakonur ham-
ingjuóskir af sama tilefni.
Einu
sinni
var
Eftir miðja nítjándu öld lýsti
Jón Sigurðsson skáld i Nefsholti
búskaparraunum nágranna síns í
eftirfarandi sálmi:
Konan ólétt og beljan búin,
bráðum er orðið hausalaust.
Bankabygg þrotið, barnagrúinn
beljar samstilltri hungurraust.
Afl mitt og kraftur óðum þver,
allt er skraufþurrt, sem nagað er.
Olíulaust að öllu leyti
ömurlega verður kveikt.
Hvergi fœst tólg né hrossafeiti,
hún mundi líka verða sleikt.
Það er hörmulegt hugarstrið
að horfa fram á slíka tíð.
Og þó nú vetur þessi líði,
þá tekur ekki betra við.
Fyrir sumrinu sárt ég kvíði,
sérhvert þá magnast andstreymið.
Þá fjölgar fólki þess að meir,
það verða tíu ef enginn deyr.
(Þjóðsögur og sagnir Elíasar
Halldórssonar).
Sendum viðskiptamönnum okkar
bestu óskir um gleðileg jól og
farsœlt komandi ár.
Raftœkja vinnustofa
Skúla Þórssonar
Rafbúðin Álfaskeiði 31
sími 53020
H CaÐBORÐ
Laugardaginn 22. des. er jólaundirbúningurinn í
hámarki. Þá bjóðum við upp á jólahlaðborð
kl. 18 - 22.
Verð fyrir fullorðna aðeins kr. 300. -
Verð fyrir 6-11 ára börn aðeins kr. 150. -
Frílt fyrir börn yngri en 6 ára.
Veitingahúsið GAFL-INN og GAFL NESTI
þakka fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða og
óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýja
árinu.
GAFL-INN; opnunartími um hátíðarnar:
Laugardagur 15. des. kl. 08 - 23.30
Laugardagur 22. des.
Aðfangadagur
1 Jóladagur
| 2. jóladagur
| Gamlársdagur
I Nýársdagur
kl. 08 - 23.30
lokað
lokað
lokað
13.00
lokað
kl. 08
Alla aðra daga er opið kl. 08 - 22.00
GAPi-inn
V/RE YKJA JYESBRA U T, HA FNA RFIRÐI
SÍMAR 54477, 54424
Sendum viðskiptamönnum
og starfsmönnum okkar
bestu jóla- og nýársóskir
co
(ðlcbiltg j
'fólo rp
Jón V. Jónsson hf,
Strandgötu 11, sími 54016.