Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1984, Side 12
12
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
BARNAGAMAN
Dægradvöl
1) Ef ykkur langar til að koinast
aó aldri og fæðingardegi vina ykk-
ar og kunningja, þá er hér ráð til
þess:
Biðjið viðkomandi að skrifa upp
(án þess að þið sjáið það) þann
mánaðardag, sem hann er fæddur á
og tölu mánaðarins í árinu. Við
skulum segja að hann sé fæddur 14.
ágúst — þá ætti hann að skrifa 148.
Að þessu loknu á viðkomandi að
margfalda töluna með tveim, bæta
fimm við og margfalda þá útkomu
með fimmtíu.
Þegar þessu er lokið á viðkom-
andi að leggja núverandi aldur sinn
við útkomuna ásamt tölunni 123.
Að þessu loknu biðjið þið um að
fá að vita lokaútkomuna.
Þegar hún er fengin dragið þið
373 frá útkomunni (alltaf þá tölu)
og þið hafið fyrir framan ykkur
það, sem þið vilduð fá.
2) í klaustri nokkru var ástandið
orðið þannig, að abbadísin sá sig
tilneydda til að skipta nunnunum
þannig niður í klefa sína, að hún
gæti á einfaldan hátt fundið út,
hvort allar nunnurnar væru í bygg-
ingunni.
En ahhadísin hefur ekki verið
nógu klók, því að hún skipti þeim á
þann hátt, sem sýnt er á meðfylgj-
andi teikningu, — sem sagt þannig,
að þegar hún taldi voru 16 nunnur
á hvern veg í byggingunni.
Nú segir sagan, að nunnur hafi
komist út og munkar hafi komið í
staðinn. En nunnurnar fjörutíu
færðu sig svo til í byggingunni, að
ekki komst upp um ferðir þeirra.
Þær komust strax að því, hvernig
abbadísin taldi og voru ekki seinar
á sér að bjóða 8 munkum í heim-
sókn. Og gestir og heimakonur
komu sér þannig fyrir, að abbadísin
fann ekki nein missmíði.
Hvernig fóru þau að þessu?
En sagan er ekki enn úti. Þegar
munkarnir fóru næsta dag, fylgd-
ust fjórar nunnur með þeim — og
enn varð abhadísin einskis vör.
Hvernig stóð á því?
Og enn. Næsta dag fóru enn tvær
nunnur, en hinar, sem eftir voru
röðuðu sér þannig, að abbadísin
varð einskis vör. Hvernig var sú röð-
un?
3) Hve margar endur og hve
margar kýr eru í hóp 54 anda og
kúa sem hafa samtals 150 fætur?
4) Faðir og sonur eru samtals 69
ára. Þegar sonurinn fæddist var
faðirinn jafngamall og sonurinn er
nú. Hve gamall er faðirinn nú?
5) Hér eru fjórir riddarar stað-
settir á reituðu borði, þannig að
þeir standa á hornreitunum. Ridd-
ararnir mega ekki hreyfa sig út fyrir
hina níu afmörkuðu reiti og hvitu
riddararnir eiga að skipta um staði
við hina svörtu.
Það má aðeins standa einn ridd-
ari í einu á hverjum reit, og þeir
mega aldrei standa þannig að ridd-
ari af öðrum litnum geti drepið
riddara af hinum litnum.
Hvítur á leik og verður að byrja á
þvi að annar hvor riddaranna færist
á b3.
Getið þið lokið flutningunum i
átta leikjum (það er átta leikjum
hvíts og átta leikjum svarts)?
6) Getið þið komið réttri röð á
fornöfn þessara frægu manna, mcð
því að taka föðurnöfnin til fyrir-
myndar?
1. Friedrich Byron
2. Victor Turgenjcv
3. Fjodor M. Dostojewskij
4. Charles Rousscau
5. William Ibsen
6. Heinrich Strindberg
7. Johan W. Scliiller
8. Giovanni Goethe
9. Jean Jacques Hugo
10. Emile Tolstoj
11. Ivan Boccaccio
12. George G. Dickens
13. August Shakespeare
14. Henrik Heine
15. Leo N. Zola
7) Hér er smá eldspýtnaspil, sem
virðist ósköp einfalt, og er það að
sumu leyti, það er að segja hvað
spilareglum viðvíkur. En ekki er
alltaf jafn auðvelt að spila það til
sigurs.
Þið getir notað eldspýtur, tölur
eða smámynt til að spila með, clds-
pýtur munu þó einna bestar.
Leggið eldspýturnar eins og sýnt
er á myndinni. Tveir spila. Þeir
skiptast á um að taka eldspýtu.
Þegar að hvorum leikmanni um sig
kemur, má hann taka eldspýtu úr
einhverri hinna þriggja raða, með-
an ein eða fleiri eldspýtur eru í röð-
inni. Hann má taka eina eldspýtu
eða fleiri úr röðinni og má meira að
segja taka alla röðina (en aðeins úr
einni röð).
Sá, sem tekur síðustu eldspýtuna,
tapar.
8) Hvaða tvö stykki af þeim sern
hér eru merkt 2—7, á að setja við
stykki númer 1, þannig að út komi
ferningur?
9) Hve margir teningar eru hér á
myndinni fyrir ofan? Allir teningar
eiga að teljast, líka þeir, sem ekki
sjást beinlínis.
10) Maður setur fæturna milli
armanna, tekur með höndunum
um armana, lyftir fótunum frá
jörðinni og gengur. Hvað er maður-
inn að gera?
11) Skipstjóri nokkur og sonur
hans fundust dánir, nánar tiltekið
skotnir. Faöirinn var með skot í
brjóstinu, sonurinn með skot á bak-
inu. Báðir virtust hafa dáið sam-
stundis.
Þegar úr byssu er skotið á mann
af skömmu færi, sést púðursverta
bæði á fötum og húð, en ekki, sé
færið langt.
Bæði líkin fundust á miðju gólfi
í stórum sal, sem notaður var sem
æfingasalur fyrir skyttur. Gólfið í
salnum var þakið rökum sandi, þar
sem glöggt má sjá spor. í salnum
voru aðeins tvenn spor.
Stæði þriðji maður utan við dyr
eða glugga salarins, gæti hann skot-
ið hvern þann sem í salnum væri.
Og á mölinni fyrir utan komu ekki
fram nein fótspor.
Undir líki skipstjórans fannst
byssa. í nánd við soninn var ekkert
vopn sjáanlegt. A klæðum beggja
líkanna var púðursverta og bruni.
Skipstjóranum þótti vænna um
son sinn en nokkuð annað í heimi,
og hefði heldur vilja deyja en að
gera honum nokkuð illt. Þess vegna
var ómögulegt að ætla, að hann
hefði getað drepið soninn með
vilja.
Sumir héldu því aftur á móti
fram, að sonurinn hefði í leyni hat-
að föður sinn og hefði átt arfsvon
eftir hann.
A) Varð dauði skipstjórans
vegna morðs eða slyss?
B) Varð dauði sonarins vegna
slyss, sjálfsmorðs eða morðs?
Svörin eru birt annars staðar í
blaðinu.
Gátur
Peningar fyrir jólagjöfum
Barnasaga
Hann óskaði sér að hann ætti
nóga peninga.
Það snjóaði þegar hann gekk
norður götuna, en hann var ekki
beinlínis í neinu jólaskapi, þótt að-
eins væri vika til jóla. Orð föður
hans hljómuðu fyrir eyrum hans:
— Þú getur ekki fengið peninga
strax fyrir jólagjöfum, drengur
minn; það liggur heldur ekkert á, —
það er enn langt til jóla!
Eins og að ein vika væri langur
tími! Finnur vissi, að það mundi
ekkert gaman að þurfa að standa í
sporum föður hans; hann þurfti að
nota peningana til svo margs. Fyrir
fjórtán dögum hafði hann sagt ná-
kvæmlega það sama. í gærkvöldi,
þegar Finnur var háttaður, hafði
hann heyrt föður sinn segja við
mömmu:
— Ég veit ekki hvaðan mér ættu
að koma peningar.
Það virtist því augljóst mál, að ef
Finnur gæti sjálfur útvegað sér pen-
ingana fyrir jólagjöfum, þá mundi
það vera besta gjöfin, sem hann
gæti gefið föður sínum. Sem betur
fór hafði hann fengið ofurlitla aura
fyrir sendiferðir, sem hann hafði
farið fyrir ungfrú Petersen. Og til
Ungur maður, sem lengi hafði
unnið í þjónustu annarra, setti upp
fyrirtæki til þess að geta verið sinn
eigin herra. Nokkru síðar hitti
kunningi hans hann og spurði
hvernig honum líkaði að vera orð-
inn sjálfstæður.
— Æ, ég veit ekki, svaraði hann,
— lögreglan bannar mér að leggja
bílnum mínum fyrir utan fyrirtæki
þess að fullvissa sig um þetta, greip
hann nú niður í vasa sinn. Jú, þeir
voru þar peningarnir hans! Móður
hans langaði til þess að eignast
blómsturvasa — og nú var hann að
íhuga það, hvað slíkur blómavasi
myndi kosta. — Já, það hefði verið
skemmtilegt að eiga nóga peninga
núna!
Hvað þurfti hann annars að
kaupa jólagjafir handa mörgum?
Föður sinn þurfti hann ekkert að
hugsa um, einungis ef hann útveg-
aði sjálfur peninga fyrir gjöfunum.
Og þó; það var ekki sanngjarnt.
Nei, það vantaði nú bara, að hann
setti föður sinn hjá. Ef hann gæfi
honum til dæmis sígarettukveikj-
ara. En hann var sjálfsagt fjarska
dýr. Já, og svo varð hann auðvitað
að gefa Ásu systur sinni eitthvað, og
Jóni litla bróður sínum, og
mömmu, og Gerðu frænku og
Hans frænda og Maríu frænku og
Evu frænku —já, og ungfrú Peter-
sen. Ungfrú Petersen varð hann
eitthvað að gefa, hún var honum
alltaf svo góð. Hann greip aftur
niður í vasa sinn. Jú, peningarnir
voru þar kyrrir! Hann leit í búðar-
gluggana, og þar var margt fallegt
að sjá. Allt sem maður gat óskað
mitt, skattstofan segir mér, hvernig
bókhald' ég eigi að hafa, bankinn
segir mér, hversu langt ég geti geng-
ið í rekstrinum, án þess að jafnvæg-
ið raskist, sölumennirnir segja mér,
hvernig varan eigi að líta út, við-
skiptavinirnir segja mér, hvernig
eigi að búa vöruna til og svo frv. og
svo frv. . . og ofan á allt þetta er ég
búinn að gifta mig!
sér blasti þar við manni. Skelfing
myndi hann verða ánægður, ef
hann fengi skauta.
Hann var kominn langt niður í
bæ. Hann vissi ekki gjörla hvað
gatan hét, en hann þekkti leiðina.
Hann hafði farið þetta áður með
móður sinni, svo að hann hlaut að
finna búðina, sem hann hafði í
huga ... Hann fann hana líka. Hún
var í gömlu og lágreistu timburhúsi
— allt húsið var ein verslun, skrýtin
verslun það. Úti fyrir dyrunum
voru skíði og skíðastafir, gamlir
skautar og vagnkjálkar. Hér var
það, sem móðir hans hafði keypt
gamlan barnavagn handa Jóni litla.
Finnur staðnæmdist úti fyrir stóra
glugganum. Þarna voru engir jóla-
sveinar eða skrautútstillingar —
ekki einu sinni jólatré heldur ein-
ungis gamlir, fornfálegir hlutir.
Hann svipaðist um, en kom ekki
auga á það, sem hann leitaði að. Svo
gekk hann upp tröppurnar, teygði
úr hálsinum og horfði inn í verslun-
ina. Maðurinn með vangaskeggið
hafði afgreitt móður hans; hann var
svo hrörlegur í útliti. Kjarkurinn
brast Finni, og hann hopaði aftur
niður tröppurnar. Hann var ekki
öruggur um, að sér heppnaðist að
koma fram fyrirætlun sinni. Hann
gekk nokkur skref frá versluninni,
en þá minntist hann aftur orða föð-
ur síns:
— Sá, sem engu vogar, vinnur
ekkert!
Þá sneri hann við, gekk ákveðn-
um skrefum upp tröppurnar, opn-
aði og gekk inn í verslunina. En inni
fyrir nam hann staðar. Maðurinn
með vangaskeggið leit kæruleysis-
lega til hans.
— Hvað vilt þú, drengur? sagði
hann.
Finnur varð hikandi þegar hann
heyrði hranalega rödd hans.
— Ég . . . ég ætla að kaupa jóla-
gjafir, stamaði hann — og þess
vegna datt mér í hug að . . . Hann
ætlaði að segja eitthvað meira en
maðurinn greip fram í fyrir honum.
— Vertu ekki feiminn, drengur
minn, komdu nær! rödd hans var
nú vingjarnlegri.
Finni jókst kjarkur við þetta, og
þokaði sér nær borðinu.
— Selurðu vekjaraklukkur?
spurði hann.
— Já, já, svaraði maðurinn. —
Það eru einmitt vekjaraklukkur,
sem ég sel! Hann beygði sig og tók
upp einar sjö eða átta, sem lágu
saman í öskju, og þær setti hann
fram á borðið.
Finnur virti þær fyrir sér. Og það
lifnaði yfir honum, þegar hann
kom auga á eina bláa.
— Hvað . . . hvað kostar þessi
hérna? spurði hann.
— Það er sú dýrasta, sem ég á,
svaraði kaupmaðurinn. — Þetta er
afbragðsgóð klukka. Ég keypti
hana fyrir fimmtán krónur, en af
því að það ert þú, þá skal ég láta þig
hafa hana fyrir átján. Þú skilur að
ég verð að hafa ofurlítinn hagnað.
Ég gæti hvenær sem er selt hana
fyrir tuttugu og fimm krónur. Það
eru einmitt svona vekjaraklukkur,
sem fólk vill eiga. Bara að ég gæti
fengið margar slíkar, þá yrði ég
auðugur maður.
Finnur varð hugsandi.
— Já, einmitt, eru þetta svona
góðar klukkur, sagði hann. — Og
hann hneppti frá efstu tölunni á
peysunni sinni og tók undan henni
nákvæmlega eins vekjaraklukku,
eins og var á borði kaupmannsins.
— Þú getur fengið þessa keypta
á tíu krónur, sagði hann. — Þá
græðirðu fimmtán. — Ég er nefni-
lega að safna mér peningum fyrir
jólagjöfum!
En varið ykkur nú, þessar gátur
eru ekki allar það, sem þær sýnast.
1. Hve mörg linsoðin egg getur
stór og sterkur maður borðað á
fastandi maga?
2. Ég gekk eitt sinn eins og leið
liggur frá Hafnarfirði til
Reykjavíkur (já, ég meina það).
Á leiðinni mætti ég einum karl-
manni og sjö konum. Hver
kona hafði poka á baki og í
hverjum poka voru sjö kettir
(þið ráðið hvort þið trúið því),
með hverjum ketti voru sjö
kettlingar. Hve margt lifandi
var á leið til Reykjavíkur?
3. Hvað er upphaf og endir alls?
(Varið ykkur nú).
4. Og hér er ein, sem hefur þvælst
fyrir langskólagengnu fólki:
Hvaða eyja var stærst í heimi
áður en Grænland fannst?
5. Hvaða orð verður styttra þegar
maður bætir við tveim stöfum?
6. Ég hef þaðekki, og vildi satt að
segja helst ekki hafa það. En
hefði ég það, þá vildi ég ekki
fyrir nokkurn mun missa það.
Hvað er það?
7. Hvaða sjúkdómur hefur enn
ekki herjað á nokkurt land?
8. Hvaða mánuður hefur 26
daga?
9. Getir þú rétt, þá getur þú
skakkt, en getir þú skakkt, þá
getur þú rétt. Hver er ráðingin?
10. Eru til nokkur lög, sem banna
manni að giftast systur ekkju
sinnar?
11. Og að lokum: Hver er sonur
tengdamóður mömmu hennar
Siggu?
9
■
Svörin eru birt annars staðar i
blaðinu.
Bros á jólum