Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1984, Page 15
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
15
Skrýtlur
Friðrik litli var að skila heima-
stílnum sínum og kennarinn horfði
mjög athugandi á stílinn.
— Rithöndin líkist grunsamlega
rithönd föður yðar, segir kennar-
inn. Hvernig stendur á því?
Friðrik þegir og kennarinn segir
óþolinmóður:
— Hverju svarið þér?
— Ja, þegar ég hugsa mig um þá
man ég að ég notaði sjálfblekung-
inn hans pabba í gær.
•
Dæmi um ameríska bjartsýni:
Réttur er settur í amerískri borg:
— Nafn?
— Kate Thornton.
— aldur?
— 76 ára.
— Gift?
— Nei, ekki ennþá.
Guðmundur
Gissurarson
Framhald af bls. 11
og bíll bíður úti fyrir. Hvað er að
gerast?
Jú, Guðmundur hefur skotist
heim og ætlar að sækja orgelið sitt
sem staðið hefur árum saman í stof-
unni og gefið heimilinu líf og lit á
jólunum og öðrum hátíðarstund-
um. Oft hefur Guðmundur létt af
sér áhyggjum dagsins við litla orgel-
ið, sem fyrir löngu er orðið ómiss-
andi vinur allra á heimilinu.
Já, hann Guðmundur ætlaði að
lána orgelið sitt um stundar sakir
upp á Sólvang. Það vantar svo til-
finnanlega hljóðfæri þar. Og orgel-
ið fór og stofan á Tjarnarbraut 15
var fátæklegri eftir en áður.
Árin liðu hvert af öðru. Orgelið
var stöðugt í láni uppi á Sólvangi og
gegndi þar þakklátu hlutverki. Það
kom aldrei aftur á heimili þeirra
Ingveldar og Guðmundar. Það er
enn í dag upp á Sólvangi, aldrað
meðal aldraðra og hefur nú verið
ákveðið að varðveita það þar og
geyma. En saga þess og tilurð vistar
þess á Sólvangi er ógleymdur vitnis-
burður um Guðmund Gissurarson,
manninn sem helgaði stórum hluta
ævi sinnar Sólvangi, málefnum
hans og fólkinu þar.
Þá finnst mér hjarta
bæjarins stöðvast
Hinn 1. júní 1958 fagnaði
Hafnarfjörður hálfrar aldar kaup-
staðarafmæli. Þá var Guðmundur
Gissurarson forseti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar og bar hitann og
þungann af veglegum hátíðarhöld-
unum af þessu tilefni.
Hann var lífið og sálin í öllum
undirbúningi og framkvæmd af-
mælishaldsins. Engum datt þá í
hug, að senn yrði hann allur. En þó
varð sú raunin á.
Hann andaðist hinn 6. júní 1958.
Hafnarfjörður drúpti höfði í sorg
og Sólvangur átti á bak að sjá vel-
gerðarmanni sínum og brautryðj-
anda.
Á ráðhúsi Hafnarfjarðar blakti
fáni í hálfa stöng þennan dag. Sjálf-
stæðiskona sem átti leið þar fram
hjá, spurði hvers vegna flaggað
væri. Henni var sagt lát Guðmund-
ar Gissurarsonar. Henni brá við,
þagði, en sagði síðan stundarhátt:
„Hvað segirðu? Er hann Guð
mundur Gissurarson látinn? Mér
finnst bara eins og hjarta bæjarins
sé hætt að sláí'
Hjá okkur veráa til
milljónamæríngará augabmgði.
15. janúar dregur til tíðinda. Breytist þín von í veruleika?
Vinningar í H.H.Í. 1985: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 108 á kr. 100.000; 2.250 á kr. 20.000; 18.855 á
kr. 4.000; 113.436 á kr. 2.500. 234 aukavinningar á kr. 15.000. Samtals 135 000 vinningar, kr. 544.320.000
HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS
milljón í hverjum mánuöi
Búnaðarbankinn
Garðabœ
r
Oskum öllum viðskiptamönnum okkar
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
VfSA
r
VISA
AND
Önnumst öll innlend og erlend bankaviðskipti. Sími 53944
Afgreiðslutími kl. 9.15-16.00 mánud.—föstud.
Síðdegisafgreiðslutími fimmtudaga kl. 17.00-18.00