Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1957, Síða 6

Muninn - 01.04.1957, Síða 6
6 MUNINN verkið. Honuni tekst að gera þennan full- trúa danska konungsvaldsins að ólýsanlega auvirðilegri mannpersónu, þar sem hvergi örlar á skynsamlegum viðbrögðum né mannsæmilegri hegðan. Fógetinn verður glórulaus kraftidíót. (iÞjóðhollusta og vér samfögnum.) Látbragð Tryggva er stór- kostulegt, og mun leikur hans lengi í minn- um hafður. Maddama Magnea er skapmikil kona, og Sjöfn dregur sannarlega ekki úr því með leik sínum. Þegar ofsi hennar fær útrás, leggur (ilieillaanda um gjörvallan salinn, og alvarega þenkjandi menn, sem kvíðafullir hlýða á hina skæðu viðureign hjónanna, blikna í sætum sínum. — Lærdómrsík stund. Hláturmildir áhorfendur fá líka nóg að gera í fjórða Jrætti: Rökræðurnar eru hlægi- legar með afbrigðum, en skopið'í þættinum nær algerum yfirtökum, og ádeilan missir mátt sinn. Annars er leikur þremenning- anna, Enari, Péturs og Drésa fógeta, mjög hæfilegur ýkjur ekki ýkja-miklar og hraði góður. Strax og tjaldinu hefur \ erið svipt frá fyr- ir fimmta þátt, kveður við þrumuraust, og innan tíðar treður fram á sviðið hálftröll eitt, illvígt útlits, í fylgd með hinum vit- granna fógeta. Heljarmenni þetta er einnig í kóngsþjónustu; segist vera formaður á kóngsskipi, og enginn rengir ])að. En óneit- anlega er mannsmyndin hin athyglisverð- asta ásýndum og í fasi öllu og Jiví umtals- verð: Arni er málskrafsmikill berserkur og óvægur í viðskiptum öllum, eins og fram kemur. Segja má því með sanni, að Örn Guðmundsson uppfylli kröfur hlutverksins, bæði hvað snertir líkamsburði og málfar. Níels, fanginn, vekur mikla kátínu. Leik- ur Þórarins Andrewssonar í þessu hlutverki er lýtalaus, enda ekki vandasamt. Hann er líka í góðtiin félagsskap á sviðinu. „Aldrei Jrykir skassinu skönnn að sér, og skiptu þér ekki af Jíessu, kona,“ segir nú Eg- ill. Og — Sjöfn þegir. Þá er mörgum skemmt og þykir nú leikurinn orðinn lítt eðlilegur. Endalok eru líka í nánd. Eftir prédikun Arna formanns rís kempan Enar- us á fætur — hversu hræðileg stund: Þarna horfum vér menntlingar upp á ægilegt skip- brot; að hversdagslegt fyrirbrigði eins og ást skuli geta brotið sigurþrek hins vitra manns! — En ekki er ein báran stök, segir máltækið — og hver veit hvað? E. t. v. er líka vissara að vera á verði. — Og tjaldið fellur. A góuþræl 1957, Þórir Sigurðsson. Skapari himins og jarðar Fyrir ævalöngu hóf snillingurinn sköpun. Hann málaði fagurgræna og grænbláa fleti. Gerði bláa kúpu með gráum og hvítum flekkjum. En meistarinn varð ekki ánægður. Hami ýfði bláu fletina. Litaði grænu fletina fölgula. Hann skyggði kúpuna. Málaði flekkina purpurarauða. Festi á hana silfurskæra smádepla. Sífellt breyttist listaverkið. Ýr.iist var það dauft og friðsælt eða blóðrautt og ólgandi. Breyttist eftir skapi snillingsins. Hann er að verki enn í dag. En fyrr eða síðar verður meistarinn leiður. Þá kastar hann myndinni á bál. ABI JÓSEFSSON.

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.