Muninn

Volume

Muninn - 01.04.1957, Page 7

Muninn - 01.04.1957, Page 7
MUNINN 7 Gönguför um nótt Klukkan slær tvö högg. Harðir skósólarnir ikella á gangstéttinni eins og smiðshögg, og hvellt fótatakið berst út á myrkvað strætið. Það er innantómt, svo í jarlægt tónfyllingu klukknahljómanna, sem enduróma um næt- urloftið. Það deyr út jafnóðum, alveg eins og sálarlaus líkanti leysist upp í mold. Það kafnar í kyrrðinni. í hvert skipti, sem ég stíg niður fæti, slæ ég falskan tón í sinfóníu næturinnar, sem andvarinn leikur á gafla og upsir húsanna, skúmaskot hliðarstrætanna og opna g'lugga. Það þýtur, ýlfrar og ískrar. Bréfarusl þeytist eftir þurrum göturæsun- um, hálfrifin auglýsing blaktir, frakkinn ntinn flaksast til. Það er dimmt. Dökkur himinninn grúfir yfir, götuljósin píra. Umhverfis þau er dauflýstur hringur, en útlínur hárra, fjar- lægra húsa renna sarnan við myrkrið og nóttina. Það ríkir kyrrð og drungi yfir borg- inni, sem annars bergmálar af skarkala dag- fegs lífs. Nótt og' dagur eru hér sem tveir heimar. Dagurinn heimur vinnu og strits, heimur háværðar hins vakandi veruleika. Nóttin heirnur hvíldarinnar, heimur þagnar og drauma. En nótt kentur eftir dag, dagur eftir nótt; þessar tvær andstæður eru eins óaðskiljanlegar og upphaf og endir, líf og dauði. Umhverfið er svefnþrungið. Allt virðist það samlagast hinni djúpu kyrrð og taka undir liinn þunga andardrátt golunnar. Húsin liggja sent launsátursmenn í myrkr- inu, ijósastaurarnir sofandi varðmenn. Ég geng hratt í mót kulinu, andstuttur, og er ég anda frá mér, liðast gufustrókur aftur með andlitinu. Ég stanza og blæs um stund. Andardrátturinn hægist og hljóðnar. Um stund er ég grafkyrr. Ég finn til þreytu, þrái hvíld, er stunginn svefnþorni hins ntókandi umhverfis. En skyndilega er ég uppvakinn af óljósum grun. Ég hrekk við, gjóa augun- um og legg við hlustirnar. Við hvert þrusk, hverja óvænta sjón, þenjast taugarnar eins og bogstrengir veiðimanns í dimmum, villt- um skógi. Ég geng af stað á ný og greikka sporið. Éo hugsa: MYRKFÆLNI? Það er hræðsi- an við hugsanlegar ógnir myrkursins, hins ókunna. Við slíkar aðstæður er athyglin andvaka. og ímyndunin fyllir í skörðin, sem skynfærin ná ekki til. Ergo — einn þáttur hinnar útbreiddu móðursýki. DRAUGlTR? Það er yfirnáttúrleg vera, sem sumir segja, að sé til, séð og staðlest af óvenjulegu fólki með dulrænar gáfur, innprentuð venjulegu fólki með hryllingssögum og furðuleglieit- um svo að beztu menn verða varir um sig. Ergo — afsprengi myrkfælninnar. Ég yppti öxlum. Ég er venjulegur, jarðneskur mað- ur, og allt, sem hingað til hefur hrærzt með mér og umhverfis mig, liefur verið nákvæm- lega eins venjulegt og jarðneskt og ég. —■ En það er annað: Nóttin er tími hryðjuverka og ósæmilegra athafna; myrkrið skjól glæpa- manna, andlega albrigðilegra manna (sbr. mína heiðvirðu og sannorðu forfeður, sem skópu þetta orð: glæpur — glópur — af- glapi). Ég yppti aftur öxlum. Ég er heiðar- legur maður, og ég vona, að mínir ágætu landar séu það líka, jafnvel þótt úr höfuð- borginni séu og eigi helzt ekkert erindi við mig nú. — Hvað er því að óttast? Ég er móður. Þrátt fyrir liina rökréttu, vísindalegu hugsun skynseminnar er mér ekki rótt. Það er hrollkalt. Framliald á bls. 24.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.