Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 10

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 10
10 MUNINN LAUSAVISNAÞÁTTUR Aðfaranótt sunnudags 10. marz áttu menntlingar Akureyrar og Reykjavíkur með sér skákhildi. Óhæfa þótti Sunnlenzk- um að skáka Norðlingum aðeins í manntafli og buðu okkur því rit í skanderingu. Höfðu þar ýmsii betur, en misjafnar vísur flugu millum landshorna. Nú hefur skanderingu: Sunnlendingar ögruðu Norðlingum, sögðu þá þá ekkert kunna fyrir sér, nema hvað einstaka bögur hafi ollið úr þeim. Stóð þá gneistur af Jóni Einarssyni og reri hann fram í gráðið: Við skulum glíma vel í nótt, við skulum tímann nota, við skulum kíma að Víkur-drótt, við skulum rímum ota. Löngu seinna barst svo stakan Kristjáns Bersa: Yfir freðinn, kaldan Kjöl, kemur loksins stakan. Væri hér til eitthvert öl, entist betur vakan. Ari og Jón áttu í bræðingi: Vel hér nyrðra vökum enn, þótt vanti nrjöð í staupin. Syfjar ykkur sunnanmenn? Sækjast illa hlaupin? Reykvíkingar þungir á brúnina: Þó að kaffi þambi og te þrjótar norðan fjallabands, ekki vilja vopna-lilé vísnasmiðir sunnanlands. Ari ólmur í skammirnar: Velkist sunnan vísnager vel því kunna að svara: Þeirra grunnur andinn er og ærið þunn sú vara. Kristján Bersi heyktist á meiningunni: Þótt norðanlýð sé næsta tamt að negla í skynding flímið, er í þeirra óðttm samt ekkert nema rímið. Að svara vísum ykkar er ekki mikill vandi, hátt þó reyni að hreykja sér hrókar norður í landi. Engir eru skömmóttari en Húnvetningar, Arngrímur kvað: Sunnandrótt í liúmi hljótt hræðsla og ótti fleka. Við í nótt af viti og þrótt víst munum flóttann reka. Víkurskessur vígreifar viljugt pressa hugarsáld, vísnaklessur kveður þar Kristján Bessi sálmaskáld. Auðólfur Gunnarsson sendi fyrri hluta norður: Viltu snjallur Blöndals bur botn í dallinn smíða? Halldóri varð svo hverft við, eins og hann sagði, er Auðólfur fór að yrkja, að alla rím- snilli þraut. Fyrir hann var botnað:

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.