Muninn

Volume

Muninn - 01.04.1957, Page 17

Muninn - 01.04.1957, Page 17
MUNINN' XI reiðubúinn. Ég bið hann að skýra mér nán- ar frá skipulagi á veizlum þessum. ,, }á,“ segir Óafur spekingslega, „takmark- ið er sko að éta sem allra mest af kræsing- um, og þar er ég afbragð annarra manna. Svo hef ég líka getið mér frægðarorð fyrir listrænar rjómaskreytingar í abstraktstíl á fésum nágranna minna“ — þegar hér er komið sögu, hneggjar Bergur grimmdarlega og gýtur ógnandi hornauga til Ólafs — „og sakir þess. að ég er öllum hnútum kunnug- ur á kvennavistum, hefur mér oftast verið falið að ráða kvenfólk til bökunarstarfa fyr- ir veizlurnar. Eftir veizlur skal jafnan hald- inn aftansöngur og lesnar kvöldbænir." Ég þakka Ólafi greinagóð svör, sný mér nú aftur að Bergi og spyr um stjórnarfyrir- komulag í félaginu. „Praetor er kjörinn vikulega á félagsfund- um. Hann er toppfígúra og skal konta fram sem fulltrúi félagsins út á við, einnig ber honum að kalla saman fundi og stjórna þeim. Fleiri föst embætti eru ekki, en á miklum hættutímum má skipa sérstaka menn til að stjórna aðgerðum gegn f jendum vorum. Félagsmönnum ber að sofa minnst fjóra daga í viku; sofi þeir minna, lieita þeir plebejar og eru ekki kjörgengir til embætta. Vaki einhver maður alla daga, heitir hann servus og skal hreinsa fundar- staði eftir fundi, en jtað er óskaplegt verk og liefur margan vaskan dreng lagt í gröf- ina fyrir aldur fram. Tvíhyggja er bönnuð í félaginu." — Hvað er tvíhyggja? spyr ég. „Sumir menn eiga erfitt með að taka ákveðna afstöðu í nokkru máli,“ segir praetor, „þeir flögra þá gjarnan á milli og segja eitt í dag, en annað á rnorgun. Þetta köllum vér tvíhyggju.“ Nú gengur Bragi Ingólfsson út, við mikil fagnaðarlæti áhorfenda. Það tekur undir í gólfinu, og ég velti því fyrir mér, hvort þetta muni nú ekki ríða að fullu jarð- skjálftamælisskriflinu hans Árna vinar míns ráðsmanns. Hurðin skellur á hæla Braga, og menn róast aftur. — Hvert er kjörorð félagsins? spyr ég. „Dagsvefninn lengir Iífið!“ orgar allur lýðurinn í kór og heilsar með nazistakveðju. Nú er ég búinn að fá nóg og býst til brott- farar, en Bergur býður mér að dvelja lengur og hlusta á almennar umræður. Þær hefjast með því, að Þórir kveður sér hljóðs og krefst þess, að praetor verði víttur fyrir að lileypa utanfélagsmanni inn á fundinn. En hann fær engan stuðning og er baulaður niðtir. Næst stekkur Bergur á fætur og kærir Ólaf fyrir ærumeiðingar og rjómaslettur. Verður nú rifrildi ógurlegt, Þórir brölar og baðár út handleggjunum og kveðst vera á móti öllu og öllum, en endurvarpsstöðin er horf- in og orð lians hljóma sem rödd hrópand- ans í eyðimörkinni. Ólafur er sekur fundinn og dæmdur frá öllum embættum. Fvlgis- menn hans neita að sætta sig við þessa ákvörðun og stofna til handalögmáls; taka menn nú að berjast með stólfótum, vatns- fötum og öllu, sem hönd á festir. Er leikur- inn stendur sem hæst. treður í salinn Bragi Ingólfsson og er hálfu ógurlegri en fyrr. Hann sópast um fast og veldur miklum spjöllum á báða bóga, og minnist ég þess ekki að hafa séð annað, er meir minni á ragnarök, eftir þeim sögnum, sent vér hof- um af þeim. En allt í einu slær þögn á hinn stríðandi múg. Utan við dyrnar heyrist söngur svo ægilegur.að okkur rennur öllum kalt vatn milli skinns og hörunds. Það er sem þarna sé kominn Garuso afturgenginn og öllu hljóðmeiri en í lifanda lífi. í fyrstu standa menn agndofa og hlusta, en þeim verður fljótlega Ijóst, að hér getur enginn annar verið á ferð en félagsins forni fjandi, Þórar- inn Andrewson. Bergur rífur upp hurð- ina og þeysir út með allan skarann á hælum Framhald á Itls. 24.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.