Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 29

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 29
MUNINN 2» LOK Að síðusu viljum við þakka öllum sam- veruna á liðnum vetri. Skáldunum okkar þökkum við kvæði og sögur, djúpt hugsandi alvörumönnum skarpvitrar greinar um vandamál heimsins, brandarasmiðunum sitt tillag, kaupendum flestum velvild og skilning. Einstaka manni þökkum við heigulslegt baknag, afsprengi þekkingarskorts á vandamálum auralausrar blaðaútgáfu. Hvað hinu síðastnefnda við- víkur er bezt að láta nöfn liggja í láginni. Þá getur Móri jarmað, hvar sem hann er að finna. Við sáum í upphafi, að bezt mundi að lofa engu á hausti, þá yrði ekkert svikið undir vor. Inngangsorð fyrsta tölublaðsins eru að mestu leyti hvatningar og skammir, sem virðast þrátt fyrir allt hafa borið þó nokkurn árangur. Má vera, að blaðið hafi í vetur gefið eftir ýmsum fyrri ára útgáfum, hvað snertir efni og frágang. Um það tjóir lítt að sakast; við höfum gert allt, sem í okk- ar valdi stóð, reytt kaupendur og skáld, níðst á auglýsingagóðsemi velþekktra aðila niðri í bæ, haldið ágóðasamkundur o. s. frv. Þessi er árangurinn. Hann gat mætavel orð- ið minni. En hann gat alls ekki orðið meiri. Jæja, krakkar mínir, við orðlengjum þetta þá ekki frekar, en óskum ykkur byrjar í prófum og gleði á sumri með ítrekaðri þökk fyrir samvistirnar. Skólanum okkar þökkum við sjötta- bekkjaraðilar ritsjórnar allt, — miklu meira en kemst fyrir í einu tölublaði Munins. Megi hann verða öðrum slíkur, sem hann hefur okkur verið. H. S. M U N I N N Útgefandi: Málfundafélagið „Huginn". Ritstjári: Heimir Steinsson, VI. M. Ábyrgöarmaður: Arni Kristjánsson, Prentverk Odds Bjornssonar h:£. SKOLAFOLK! Látið Faxana bera ykkur heim að loknu prófi. FLUGFELAG ISLANDS H.F. TIL FERMINGARGJAFA: Skrifborð, 2 stærðir Bókahillur, 2 stærðir Kommóður Rúmfataskápar Dívanar Dívanteppi og margt fleira. Bólstruð Húsgögn h.f. Hafnarstr. 88 — Simi 1491

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.