Muninn - 01.11.1978, Qupperneq 4
EINRÆÐA SKAPARA
Eg er málari og mála. Ég er trúr köllun minni og vil vera
öðrum listamönnum góð fyrirmynd, jafnframt því sem verk min
verða kveikjan að bestu hugmyndum þeirra.
Ég er ötull málari og afkastamikill. Samt fer ég ekki troðn-
ar slóðir en þverbrýt reglur listarinnar. Að vísu hræri ég
liti, set upp trönur og stranga og spýti í lófana. En ánægja
mín felst ekki í því að festa á blað sveiflur hughrifa minna,
skyndimyndir augnabliksins. Þær eru alveg eins vel geymdar í
fylgsnum sjálfs mín þar sem ég get gengið að þeim vísum. Ég
vil ekki gera mynd af hlut sem ég horfi alltaf á, hlut sem
þegar er til. Sköpunargleði mín fær aðeins útrás í því óvænta,
i því óræða. Þess vegna tek ég málninguna og helli henni niður
á hvítan strigann, helli litum alheimsins í tilviljunarkenndum
hlutföllum niður áþessalitlu spegilmynd hans. í stað þess að
taka völdin af litunum, í stað þess að þrengja boðum minum og
vonum upp á samspil litanna þá gef ég þeim lausan tauminn.
Ég horfi á þá renna yfir léreftið í lækjum og dropum, setj-
ast til og mynda torræð mynstur, margbreytilegri en ég hefði
nokkru sinni getað ímyndað mér.
Veröldinni hefur bæst nýr raunveruleiki fyrir tilstuðlan mína
og oftast get ég með velþóknun dáðst að því sköpunarverki sem
ég hef kallað fram án vissu um afleiðingarnar, vitandi að
þrátt fyrir uppruna sinn í heimi tilviljunarinnar er hið nýja
verk mitt fóstur, hluti af mér.
Seinna get ég lagfært og fullkomnað, bætt við eða skafið burtu
hér og hvar uns ýtrustu kröfum er fullnægt og stoltið yfir því
framkvæmda tekur við af óvissunni yfir því sem enn er í mótun.
Þannig eru vinnubrögð min, ég tendra bál sem ég aðeins að litlu
leyti get tamið. Sjóndeildarhringur minn víkkar, einbeitingin
skerpist.
Oftast tekst það. En örsjaldan taka formin á sig öfgafullar
kynjamyndir, myndir sem varpa óhugnanlegri birtu um salarkynni
mxn. Það er sama hve miklu ég bæti við af litum - myndin spill
ist því meira uns ósamræmi hennar og viðbjóður þenja taugar min
ar, uns sálarró minni er hætt í taumlausri hringiðu, hamförum
æpandi mótsagna verksins.
4