Muninn

Árgangur

Muninn - 01.11.1978, Blaðsíða 5

Muninn - 01.11.1978, Blaðsíða 5
Þá er ekkert eftir nema að taka svarta málningu, endalausa svarta málningu, bíta á jaxlinn og hella yfir léreftið uns órofin svört hula felur huldubarnið er aldrei varð mennskt. Og þegar þessi vanskapningur, þetta örverpi hefur verið klætt felulitum, vörumerki kröfuharðs listamanns, er aðeins um eitt að gera, að hefjast handa á nýjan leik. Hringferðin byrjar aftur, blanda, hella og bæta þar til eftir stendur - mótsagna- ríkt en í algjöru jafnvægi - samspil huga, handar og tilviljun- ar, hið fullkomna^listaverk. KK. Leiðist mér nú lífið allt á líkam' og sálu þjáður. NÚ er þeirri konu orðið kalt er kraumaði glaðast áður. Öðruvísi mér áður brá aldregi mér hún neitti. Ótæpilega ástrík þá öll sína blíðu veitti. Áhuga sinn lét aldrei frá ástarleikjunum hvarfla. Svo var hún góð að sofa hjá að svoleiðis þekkist varla. Það varð fljóðinu loks til falls að fróðustu manna hyggju er nutu þeir hennar nítján alls niðri á Höephnersbryggju. Ég get víst aldrei grátið nóg að gleymdi ég þar að mæta. Farðu nú samt í friði og ró fjöllynda heimasæta. Error '78 5

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.