Muninn

Årgang

Muninn - 01.11.1978, Side 15

Muninn - 01.11.1978, Side 15
Stutt yfirlit: Ferðin öll var hin ánægjulegasta og mun seint gleymast. Að undanskildum rúm- og rúðubrotum og hálfsmánaðar fylliríi má hver og einn vel við una. Gunni JÓhanns keypti 15 boli og sló þar með nýtt met sem þegar er skráð í heimsmetabókinni. Siggi Óla átti setningu ferðarinnar: "Vopnasafnið, er það ekki þar sem byssurnar eru? Þá hef ég komið þangað en ég er ekki viss um hvort ég hef komið á þjóðminjasafnið. Höfundur Njálu. H. Indriðason & Friends. Segja þér vil ég sögu af sannleikans heiðri mest. Birta um drengi bögu sem bjórþambið lék hvað verst. Til Hellas þeir fræknir fóru fimm þessir heiðursmenn. Drukknir þeir dag hvem vóru dóu og lifðu í senn. Fyrstan skal frægan telja framlágan nafna manns. Bindæma drykkjuelja einkenndi túrinn hans. Drakk er dag tók að halla. Drakk hvert einasta kvöld. Drakk þar út dröfnu alla. Drakk uns morgunn tók völd. Blöndalinn oft var óður einatt var fullur þar. Hafði þó með sér móður mæta sem Ema var. Gerlegt er ei að greina frá gerðum hans marga nótt. Edrú hans kvöldið eina upphófst blóðþrýstisótt. 15

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.