Muninn - 01.11.1978, Side 22
Afmieliskvedja
Þann 7. dag desembermánaðar 1977 komu nokkrir ungir
menntskælingar saman i tónlistarherbergi TÓMA, settu jassplötu
á foninn, tóku undir í sveiflunni og eins og sönnum jassgeggjurum
sæmir, dáðust að listamönnunum.
Þetta var afdrifarikur dagur, ekki bara fyrir hina ungu
"jassfílara," heldur einnig fyrir þá sem sátu á heimavistinni,
spiluðu bridge, horfðu á sjónvarpið svo ekki sé talað um þá
fjölmörgu sem hurfu inn í námsbækurnar.
Hér voru saman komnir þeir sem hafa haldið um stjórnvöl
skólafélagsins Hugins, menn sem voru "plataðir"af fyrri stjórn.
Eitt ár er nú liðið síðan "Gæfa og gjörvileiki" Mennta-
skólans á Akureyri hófst. Ennþá hefur enginn Falconetti fund-
ist og við Rudy, Wes, Billy og hinir erum eins og þeir segja
í útlöndunum "still alive and well".
Okkur hefur komið það til hugar að biðja vinkonu okkar
Enid Blyton að skrifa bók um okkur fimm og gæti hún t.d. heitið:
Fimm komast í stjórn Hugins eða Fimm á fölskum forsendum og
mætti vafalaust sýna þessa þætti á sunnudagskvöldum þjóðinni
allri til heilla. En bráóum sjáið þið nemendur góðir á bak
okkar úr stólunum og þvi getið þið tekið undir með skáldinu
sem forðum sagði:
"Bráðum kemur betri tíð
með blóm í haga".
Þessar línur eiga að vera smá þakklætisvottur til allra
þeirra, sem hafa umborið okkur og þá ekki síður til þeirra
sem hafa hvatt okkur til ýmissa góðra verka (að okkar mati),
Það hefði verið ógjörningur að starfa í stjórn Hugins ef við
hefðum fundið einhvern mótbyr. Við höfum eftir fremsta megni
reynt að sigla á milli skers og báru og varast að vera of
pólitískir. Ekkert er verra en að blanda pólitík inn í stjórn
Hugins og þó róttækari armurinn sé í meirihluta(?) þá væri
það gert á kostnað hinna. Þetta þýðir alls ekki að menn sem
leiðast út í félagsstörf af þessu tagi eigi að vera skoðana-
lausir, síður en svo. Allt of oft hefur það gerst að félags-
starf hefur verið lagt í rúst með pólitískum erjum. Mennta-
skóli á ekki að vera einhver vöggustofa sem elur upp í manni