Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Qupperneq 12
106 HEIMILISBLAÐIÐ aði svo svitann af enni sér. með erminni. »Sáað þér hann greinilega?« »Ég' gat nú ekki vel komist hjá því að sjá hann,« svaraði Caverly. »Hann hleypti beint í áttina til þeirra þar sem flestir voru fyrir. Eg hefi aldr- ei á æfi minni séð annað eins hugrekki.« Caverly leit á hana til þess að reyna að komast að, hvort hún segði þetta í alvöru. og honum varð það ljóst, að þetta var í fylstu hreinskilni mælt, og að hún dáðist að þessu afreki Lontzens á úlfaldanum. Dökk augu hennar glömpuðu af aðdáun. Ilann var viss um. að hún hafði ekki kom- ið nógu snemma til þess að sjá, hvernig Lontzen hamaðist við að reyna til að sveigja úlfaldann í aðra átt. »Já, mér finst það alveg einsdæmi,« sagði Caverly. og lét svo við það sitja. Jafn- vel þó Lontzen hefði heppnast að kom- ast undan kúlum Zúai-anna, átti hann þó dauðann vísan þarna út í eyðimörkinni í enn ægilegri mynd. Það var engin ástæða tii að öfunda hann — og' því var ekki vert að svifta hann þessum fátæka heiðri. Caverly sýndist hann sjá túrbanklætt höfuð gæg'jast upp yfir næstu sandölduna. Hann miðaði nákvæmlega, og hann naut þess með einkenniegri hrifni. að finna aftur kipp riffilskefisins við öxl sér. Það voru nú full tvö ár, síðan hann hafði hald- ið á byssu, og' þess vegna olli það honum gleði að finna til riffilsins við kinn sína. Hann var ekki viss um, hvort hann hefði hitt ræningjann eða ekki. en höfuðið var að minsta kosti horfið af brúninni. Lestarmennirnir vörðu sig eftir beztu getu í einhverju örvæntingaræði. Þeim var nú tekið mjög að fækka. Tveir eða þrír þeirra lágu á milli tjaldanna eins og þvottahrúgur. Kúluförin í sandinum hringinn í kring- um tjöldin, mintu helzt á. holur eftir stóra regndropa. Caverly sá mann í hvítum búrnus spretta upp fyrir aftan reiðtýgja- garðinn og' hníga óðara niður. Uppi á sandöldunni komu nú nokkrii menn í ljós, og- héldu af stað ofan brekk- una. Caverly skaut fjórum skotum, hverju á eftir öðru, en við fimta skotið klikkaði byssan. Tveir mannanna féllu og lágu hreyfingarlausir. en sá þriðji skreiddist aftur í hvarf á bak við sandölduna. Skothríð lestarmanna dvínaði nú óðum. Einn þeirra lá stynjandi undir farangurs- hlaðanum. Caverly fleygði frá sér tómum rifflinum. Hann fann það á sér af gamalh reynzlu, að nú myndi Tagar og menn hans þá og þegar gera loka-árásina og koma a harða spretti ofan af sandhæðunum. Hann sneri sér að ungu stúlkunni og sagði: »Hættið þér bara þessu.« Hún leit út fyrir að vera bæði skelkud og hálfringluð, en samt herti hún upp hugj ann stóð kyr á sama stað og fylti á ný skothólfið í leikfangs-rifflinum sínum. »Við fáum engu áorkað,« mælti Caverly. Hann tók utan um olnbogann á henni og' ýtti henni inn í tjaldið. sem Sídí Sassi hafði verið í. »Hvað á þá til bragðs að taka?« sagði hún vandræðalega. »Mér hefir dottið dálítið í hug. Skeð getur, að það hepnist. Það er að minsta kosti ofurlítil líkindi.« Hún hristi höfuðið. »Það er úti um okk- ur! öllu er lokið. Ég veit það svo vel. Þér þurfið ekki að reyna til að skrökva að Smér.« Caverly fór á eftir henni inn í tjaldið. Hann fleygði sér niður á fjóra fætur og' stakk höfðinu út undir tjaldskörina. Sídí Sassi lá þar, sem hann hafði fallið, og' voru fætur hans rétt við tjaldskörina. Cav- erly tók í þá og dró líkið inn í tjaldið. Svo rétti hann út hendina. greip um úlflið- inn á stúlkunni og dró hana niður við hlið- ina á sér og sagði í skipandi róm: »Graf- ið í sandinn!« Hann lá sjálfur á fjórum fótum og sóp- aði sandinum í stórum gusum aftur á milli knjánna. Bó Trevers starði á hann sljóum augum. »Til hvers svo sem?« »Við verðum að grafa holur handa okk- ur öllum þremur, handa okkur tveim, sem lifandi erum, og handa hinum dauða höfð- ingja.« Hún skildi ennþá ekki hvað hann fór> en hún lagðist niður í sandinn við hlið- ina á honum og tók líka að róta upp sand- inum. »Það er ekki til neins að hugsa sér að komast undan fyr en í kvöld,« sagði hann. »Við verðum líka að hugsa um morgun- daginn og vikurnar sem á eftir koma. Til hvers væri að bjarga lífinu í kvöld, ef við svo eftir á deyjum úr hungri og þorsta í eyðimörkinni. Þessi ungi maður þarna,« hann kinkaði kolli í áttina til höfðingja- sonarins — »getur orðið okkur til ómetan- legs gagns síðar meir.«

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.