Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1920, Blaðsíða 18

Heimilisblaðið - 01.01.1920, Blaðsíða 18
16 HEIMILISBLAÐIÐ Verðlaun fyrir nýja kaupendur. Þeir, sem útvega 10 kaupendur og standa skil á andvirði fá í verðlaun söguna „Góða stúlkan" í gyltu bandi. Verð 4 krónur. Þeir, sem útvega 11—25 skilvísa kaupendur fá söguna „Bræðurnir11 í gyltu bandi. Verð 8 krónur. 4 Þeir, sem útvega 26—50 skilvísa kaupendur fá báðar ofantaldar sögur í gyltu bandi, og 10 eintök af Barnasögum Torfh. Þ. Holm, sem kosta 50 au. kverið. Þeir, sem útvega 51—100 skilvísa kaupendur, fá bókaböggul með öllum ofantöldum bókum í og mörgum fleiri skemtibókum, þar á meðal »Úrsúlu«, um 400 blaðsíður. Greiðið götu HEIMILISBLAÐSINS! Það vill gleðja, göfga og fræða og færa með sér yl og hlýju inn á heimilin Og bætist því margir nýir kaupendur, verður hægara um vik að gera blaðið vel úr garði. — Heimilisblöðin eru í öðrum löndum keypt á hverju heimili. Sérstakt hannyrðablað fylgir til allra skilvísra kaupenda. Heimilisblaðið kostar ö krónur árgangurinn framvegis. Um þessa verðhækkun þarf ekki margt að segja, að eins skýrskota tíl margfaldrar verð- hækkunar á öllum hlutum og pappír stígur stöðugt í verði í útlöndum. — Ef einhver kysi nú t. d. fremur að kaupa sér bók, í stað Heimilisblaðsins, þá yrði hann að borga fyrir hana, eftir núgildandi markaðsverði bóka og með sama lesmáli og er í blaðinu, 9—10 kr. Eg þakka öllum vinum blaðsins fyrir liðna árið. Fyrir skilvisi á borgun, vingjarnleg um- mæli, og dugnað þeirra margra að útvega nýja kaupendur, Eg vildi geta svarað fleiri bréfum en eg geri, en tími minn er svo af- skamtaður, þar sem alt mitt starf við blaðið er unnið í fristundum mínum og hefir verið svo í þessi 8 ár, sem það hefir komið út. En þetta aukastarf hefir verið mér til gleði, því eg vona, að Heimilisblaðið hafi haft á- hrif til góðs og flutt með sér frið og gleði inn á blessuð islenzku heimilin. Ef kaupendur blaðsins gera það sem þeir geta til að útbreiða það, þá má vel vera, ef lifdagar endast, að síðar geti eg varið ein- hverju broti af reglulegum vinnutíma fyrir blaðið. Eg sé þó sízt eftir frístundum mfnum í þarfir blaðsins, en mikil augnþreyta er far- in að sækja mig heim og gerir mér óhægt um vik. Hannyrðablað, sérstakt, prentað á góðan pappír, ætla eg að láta fylgja blaðinu á þessu ári og verður það sent öllum skil* visum kaupendum í sumar. Dráttur á útkomu þessa fyrsta tölublaðs stafar af vinnuteppu, sem varð upp úr nýár- inu, nokkra daga, og veikindum mínum. Eg óska svo lesendum blaðsins árs og friðar í Drottins nafni. Yandaða ogf ódýra roklra selar MarliÚK Ma"iiÚsson 1 Kirkjalœbjarboti i F’Jjótshlíð í K.vaUasýslo* Húnvetningar eru beðnir, eins og að und- anförnu, að greiða andvirði blaðsins til berra Kristófers Kristóferhonar á Blönduósi. Útgefandi: Jón Helgason, prentari. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.