Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1920, Blaðsíða 15

Heimilisblaðið - 01.01.1920, Blaðsíða 15
HEIMILISBLAÐIÐ 13 |g brúnni. Eftir Sigurð Heiðdal. Rauður þrammaði í hægðum sínum og dró kerruna. í henni sátu þrír menn, hjónin °g Sigga litla dóttir þeirra. Umhverfis var sumarfjör og sunnudagsfrið- Ur* Sólin brosti í heiði. Grænar brekkur, halfslegin tún og grasi vafðar engjar blasti v*ð á báðar hliðar. En það var ekki sumarfriður í litlu kerr- unni. Brandur horfði fram á veginn og slýrði Rauð. Elín horfði aftur af kerrunni. Hvorugt Sagði orð, nema þegar Sigga litla yrti á þau. þá svöruðu þau einsatkvæðisorðum, ^ljómlaust og dapurlega. Aumingja Sigga litla vissi ekki hvað hún atti að gera af sér. Hún hafði hlakkað til Þessa dags alla vikuna. Á hverju kvöldi, Þegar hún var búin að lesa »Faðirvorið« s*tt, hafði hún beðið Guð að láta vera gott Veður á sunnudaginn. Og Guð hafði gert það fyrir hana. — En þá þurfti þetta að koma fyrir. Henni lá við að gráta, en þorði ekki láta á því bera. Hún vissi, að pabbi og ^tnma —• einkum þó pabbi — voru hörð Vlð hana, þegar svona lá á þeim. En aumingja pabbi og mamma, sem voru þó stundum ósköp góð. — — Af hverju §atu þau verið svona aðra stundina. — — 'íll> — hún vissi af hverju það var núna. — *cgar þau agu og tóku upp nestið, þá vant- aði brauðið. Pabbi sagði, að mamma hefði §leymt því — »kannske«. Hvers vegna þurfti öu pabbi að segja þetta óhræsis »kannske«, segja það svona, eins og hann sagði það. a*ma varð eins og oft áður, þegar þetta )ar að koma — þetta, að þau töluðu hvort kapp við annað í bræði og þögnuðu svo alt í einu og töluðu ekki orð saman dagana á eftir. Já, þannig hafði það verið, þarna, þegar þau áðu. Pabbi sagði þetta vonda »kannske«, og mamma sagði eftir stutta stund líka »kannske«. Pá sagði pabbi »já«, — voðalega ijótt »já«. Og mamma sagði »ju-ú«, — ótta- lega langt og ljótt »ju-ú«. Pá sagði pabbi »ójá«, — stutt, alveg hræðilegt »ójá«, og þá vissi Sigga litla hvað í vændum var. Pabbi og mamma þögðu litla stund. Svo sagði mamma einhver ósköp og greip fram í öðru hvoru. Pá tók pabbi við og mamma greip fram í. Þannig töluðu þau á víxl alllanga stund. Hvorugt át af nestinu, og hvorugt bauð Siggu af þvi. Og þó var svo mikið af sælgæti í töskunni. Loksins ýtii mamma töskunni til Siggu litlu og sagði: »Jettu, barn!« Sigga fór að tína upp úr töskunni, brjóst- sykur, sætabrauð, súkkulaði, hangikjöt, harð- fisk, límonaðiflöskur, mjólkuiflöskur og margt annað góðgæti, en brauðið vantaði. Sigga át lítið. Hún hafði ekki matarlyst. Pabbi og mamma voru svo — — voru svo — — — Hún vissi ekki, hvað það hét, þetta, hvernig þau voru. En þau voru svo — — Og alt af voru þau að tala. Loks sópaði mamma nestinu saman og fleygði því niður i töskuna. Svo var lagt af stað heimleiðis. Og nú voru þau pabbi og mamma hætt að tala — steinþögðu. Sigga vissi, að þau höfðu ætlað að fara lengra. Hún þorði ekki að spyrja, hvers vegna þau sneru við. Hún vissi, að það var af því, að þau voru nú orðin svona ------- svona. Að hann pabbi skyldi mí þurfa að segja þetta »kannske«. Gat hann ekkj látið það bíða til morguns? Þurfti nú að verða svona

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.