Heimilisblaðið - 01.12.1921, Blaðsíða 1
Heimilisblaðið
Fylgiblað II
lert á banniau í BandaríkjuDum
Ný andbanningaósanniudi afhjúpuð.w *
5. þ. m. flutli »Morgunblaðið«, grein
um bannið í Bandríkjunum og reyndi
að sína fram á, að á bannlögunum þar
hefði verið slakað og heimabruggun
leyfð. Er þetta tekið upp úr dönskum
blöðum, sem íluttu langar greinar um
þetla mál og fögnuöu yfir hinum óvænta
sigri er brennivínsmenn hefðu nú unnið.
Er þetta sönnun þess, hve mikils virði
þeir telja það fyrir sinn málstað ef
snurða skyldi hlaupa á framkvæmd
bannsins í Bandaríkjunum.
En »Adam var ekki lengi i Paradís«
og nú er fullsannað, að alt umtai
andbanninga og fullyrðingar um þetta
eru helber ósannindi.
»Afholdsdagbladet« llytur 16. f. m.
greinilega skýrslu um málið, sem vér
leyfum oss að birta í lauslegri þj'ðingu.
Er skýrsla þessi tekin eftír umsögnum
blaða, sem sumpart eru með banninu
eða móti því og sumpart óháð.
Baráttan nm ölið sem lyf.
Til umræðu og meðferðar hafa verið
í sambandsþinginu hin svo nefndu
Willis-Campbell-lög. Þau voru borin fram
vegna úrskurðar, sem dómsmálaráð-
herrann, Palmer .haföi gefið út um að
að löglegt væri að gefa út lyfseðla á öl
sem lyf, en flytjendur bannlaganna héldu
þvi fram, að það hefði ekki verið ællun
þeirra að leyfa þessháttar lyf, og þeir
bættu því við, að í lyfjaskrá ríkjanna
liefði öl aldrei verið skráð sem lyf og
þessvegna væri lögskýiing Palmers
heimskuleg. Dómsmálaráðherrann hélt
því fram, að af orðalagi laganna mætti
álíta að ölið væri leyfilegt að framleiða
og selja til lyfjanotkunnar. Skömmu
síðar fór ráðherrann frá og þá báru
þeir Villis og Campell fram lagafrum-
varp það, er nefnt er hér að framan, í
þvi skyni, að fella úr gildi lagaskýringu
hans. — Frunivarpið bannar að nota
öl sem lyf og takmarkar mjög rélt
lækna til þess að gefa út brennivíns- og
vín-lyfseðla og ákveður ennfremur, að
bannlögin skuli ná til Hawai og eyjanna
sem áður lutu Dönum.
Laeknar og stór-brnggararern andstæðir
ölinn, en andbanningav lialda
baráttunni áfrani.
Fyrra atriðið kom hugum manna í
hreyfingu. Lagaskýring dómsmálaráðu-
neytisins hafði vakið sjúkdóminn. Mest-
ur hluti læknanna hafði látið það álit
í ljósi, að ölið geti ekki læknað neinn
sjúkleika og það sem mesta eftirtekt
vakti var það, að fulltrúar allra stærri
brugghúsa létu hið sama í Ijósi við
rannsókn, er þingið lét gera út af
málinu.
/