Heimilisblaðið - 01.08.1938, Blaðsíða 2
114
HEIMILISBLAÐIÐ
Skuggsjá.
Þvi er haldið fram, að fullþroska menn og kon-
ur nútíðarinnar, séu að jafnaði tveim þumlung-
um hærri en afar þeirra og ömmur voru. Pessu
er þannig farið urn allan heim. En hinu er neit-
að, að þetta eigi sér stað nema öðru hvoru. Nú
þegar þykjast menn sjá þess merkí, að munur-
inn sé að minka og muni jafnvel hverfa með
næstu kynslóð. Það er því alveg óvíst, að þessi
vöxtur sé betri lifnaðarhátlum vorra tíma, betra
fæði, fullkomnari líkamsæfingum, meiri svefni
eða sólarböðum að þakka. Það er mögulegt, að
hann eigi sér aðeins stað á vissum tlmabilum
mannkynsæfinnar, af ástæðum sem engir enn
þekkja.
★
Mannslíkaminn. inniheldur svo mikla. olíusætu,
að hún er nægileg sprengihleðsla í stóra fallbyssu.
★
Sinn er siður i landi hverju. i Koreu fær brúð-
urin ekki að sjá mannsefni sitt. Tvo daga stend-
ur brúðkaupið og á þriðja degi eru þau gefii.
saman og þá fær hún fyrst að sjá mann sinn.
Áður en brúðkaupið byrjar eru augnalokin límd
saman með sterku lími, sem svo er leyst upp
í volgu vatni, þegar brúðurin má opna augun.
★
Til eru í heiminum alls 64 brýr, sem eru 1
km. á lengd og þar yfir. Lengsta brúin er 19 km.
og er bygð yfir Salt Lake.
★
Ef öllu landrými jarðarinnar, sem er ca 150
miljónir ferkílómetrar, væri skift jafnt niður á
2 miljarða íbúa, sem jörðina byggja, myndi hver
okkar fá ca 7 hektara. En aðeins væri hægt aö
rækta rúmlega helming þess landrýmis.
★
Veitingamaður einn i borginni Budapest brá
sér nýlega á cirkussýningu. En sú skemtun varð
honum dýr. Hann hafði með sér veski með mikl-
um peningum i og lagði það hjá sér á meðan
hann fcorgaði inngangseyrinn. En taniinn fíll kom
auga á veskið og greip það með rananum meö
svo miklu snarræði, að eigandinn náði því ekki.
Dýratemjarinn neytti nú allra. bragða að ná þvi,
en ekkert dugði, hann át það' upp til agna og
kyngdi með beztu lyst allri seðlatuggunni. Veit-
ingamaðurinn fór í mál, en hafði ekkert upp úr
því, fíllinn var sýknaður með þeim forsendum,
að ekki kæmi til mála a.ð setja fílinn i hegning-
arhúsið.
★
Þegai heimsstyrjöldin brauzt út átti þýzki her-
inn 21000 bréfdúfur, sem skift var niður á landa-
mæraherdeildirnar.
Komið getur fyrir, ef dýr eru í of mikilli sói,
að þa.u fái einskonar átumein. Sumstaðar í Ástrai-
iu hefir komið i ijós, að fé, sem ekki hefir nægi-
legt skjól fyrir sólinni, fær þenna sjukdóm, sem
venjulega byrjar í eyrunum, þar sem húðin er
veikust.
★
Stærsta orðabók í heimi kom út í Lundúnum
árið 1928. Hún gefur allar upplýsingar um 414,000
ensk orð, sem notuð hafa verið siðan árið 1200.
Fimtíu ár hefir það tekið að semja þessa orða-
bók, sem er 12 bindi, og koma henni út. Hún
kostar 7500 dollara.
★
Þangað til fyrir hundrað árum síðan keypti
England einungis te frá Kína. Um það leyti byrj-
aði Indland að framlefcða te, en Ceylon íyrst 1870.
Brezkir þegnar drekka, nú 97,500,000,000 teboila
yfir árið', eftir þvi sem Englending einum hefir
reiknast tifc
★
Á Ceylon er auðvelt fyrir hjón að fá skilnað.
Þegar maðurinn segir eða skrifar til konu sinn-
ar: »Þú ert skilin«, eru þau skilin, hvort sem
henni likar betur eða ver. Þegar kona nokkur
nýlega mótmælti skilnaðinum fyrir rétti og hélt
því fram, að hún hefði ekkert bréf móttekið,
veitti rétturinn manninum fylgi sitt. Fyrst hann
bara skrifaði orðin, skifti, það engu rnáli, hvort
hún hefði fengið bréfið.
★
I bænum Columbus i Montana-fylki í Banda-
ríkjunum, er hver maður, sem ekki tekur ofan
höfuðfat sitt, þegar borgarstjórinn gengur fram
hjá hoiium á götu, dæmdur í fésektir fyrir ókur-
teisi.
★
Við landamæri Persíu búa Selim Agar og kona
hans. I'au halda því fram, að þau séu elstu hjón
í heimi, þar sem þau eru búin að vera- gift i yf-
ir 100 ár.
★
»Eilíf« eldbál þekkjast'víða á yfirborði jarð-
ar. Oft.ast stafar þetta af jarðargasi, sem ein-
hverntima. hefir af tilviljun kviknað í. 1 Kína
fanst »eldbrunnur«, sem brunnið hafði látlausf
i 1100 ár og fyrst slokknaði, þegar alt eldfimt
efnT var uppbrunnið. 1 suð-vestur Litlu-Asíu er
haldið að einn slíkur gasbruni hafi staðið yfir
í 3000 ár. Einnig í Kákasus finnast »stöðug« jarð
gasbál. í St. Ingbert i Saar-héraðinu hefir minni-
háttaj’ jarðgas-bruni logað í 100 ár þrátt fyrir
allar slökkvitilraunir. Þetta sama hefir skeð >
Pennsylvaniu og Kentucky, þar sem bálin hafa
logað síðan 1884 og 1873.