Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Side 7

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Side 7
HEIMILISBLAÐIÐ 151 legri raddhreimurinn, »það hefi ég reynt, en það er árangursiaust. Hér þarf eitt- hvað til, ennþá kraftmeira«. »Það þarf ekki annað en trú. Ekkert er til í heimi þessum kraftmeira. Segðu mér nú, hvað það er, sem amar að þér«. Nú fanst henni það gott, að biskup hélt báðum höndum utan um höndina á henni. Henni fanst það gera sér auð- veldara að segja það sem henni bjó í brjósti. Henni fanst þetta líkast því, að tala trúnaðarmál við góðan föður. »Við Jens megum ekki hvort af öðru sjá. En þó getur okkur aldrei komið saman. Satt að segja held ég, að það sé mér að kenua. Ég get ekki á mér setið, að vera altaf á annari skoðun en hann. En það er líka honum að kenna. Hann getur ekki setið á sér með að segja hitt og þetta, sem gerir mér ýmist gramt í geði, eða sem mér er alveg ómögulegt að trúa og samsinna. Og síðan eykst þetta orð af orði, og við stælum og erum að rífast, heila og hálfa dagana. Á eftir töl- um við ekki aukatekið orð hvort við annað í marga daga. Svo sættumst við og erum vinir, þangað til næsta hríð skellur á. Mér er að verða þetta óbæri- legt, en þó get ég ekki við þessu gert«. Það var ekki trútt um, að biskupi þætti vænt um þetta að vissu leyti. Hann sá af þessu, að ekki höfðu þó öll orð hans í kirkjunni hitt á harðan jarðveg. »Veit fólkið um þetta?« spurði hann vingjarnlega. »Já«, svaraði hún, »annars hefði það ekki horft svona á ®mig í kirkjunni. Þetta vita sjálfsagt allir, og sú tilhugsun er mér alveg óbærileg-. Biskup slepti hönd hennar. Hann sat hljóður og hugsandi stundarkorn og brosti öðru hvoru. »Ég get eflaust hjálpað þér«, sagði hann að lokum. »Þú verður að hafa hama- skifti, bæði sjálfrar þín vegna og sveit- unga þinna. Þú verður að gerast fyrir- myndar prestskona. Er ekki til einhver helg lind, hér á Oddanum?« Það birti yfir svip Geirþrúðar. Biskup hafði vafalaust tekið þetta réttum tökum. Hér þurfti eitthvað, sem sterkara væri en orðin ein. O-jú, — á Oddanum var einmitt til helg uppsprettulind. Og Geir- þrúður hafði reynt hana líka. Ekki hafði það þó komið að neinu gagni. • Þetta datt mér í hug«, mælti biskup. •Vatnið í þessari lind er þá heldur ekki gætt neinum heilögum krafti. Ég þekki aðeins eina uppsprettu, sem nokkurt gagn er að. Ég er með ofurlitla lögg úr henni á brúsa, sem er úti í vagninum mínum. Það er altaf gott, að hafa það með sér. Ég villist aldrei á ferðum mínum og aldr- ei hefi ég orðið fyrir neinum skakka- föllum. Seztu nú hérna á stólinn og lok- aðu augunum. Þú mátt ekki líta upp, fyrr en ég kem aftur. Ef þú lítur upp, missir vatnið kraftinn«. Geirþrúður settist niður og lokaði aug- unum og þannig sat hún þangað til bisk- up kom inn aftur. Hún var til að sjá eins og sofandi barn. Nú leit hún upp og lesa mátti nú í augunum einlæga trú og óbilandi traust. • Líttu nú á«, sagði biskup, »þetta er nú ekki nema rétt aðeins í litla skál. Meira má ég ekki missa. Og meira þarft þú ekki heldur. Þetta er kraftmikið vatn. Og þegar maðurinn þinn fer næst að tala við þig um eitthvað, sem þig langar til að andmæla, þá skaltu flýta þér að súpa gúlsopa af vatninu. Ekki skalt þú þó renna því niður eða sýta því út úr þér. Máttarins nýtur aðeins á meðan þú hef- ir vatnið í munninum. Og gleymdu nú ekki þessum fyrirmælum«. Grátandi lofaði Geirþrúður þessu. Og hún trúði því alveg statt og stöðugt, að vatnið myndi verða henni að gagni. Hún þakkaði biskupi hjartanlega fyrir þá miklu greiðasemi, að gefa henni svona dýrmætt meðal. Og nú fór hún strax að *

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.