Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Síða 8

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Síða 8
152 HEIMILISBLAÐIÐ hafa áhyggjur út af því, að nú myndi hann ef til vill verða íyrir einhverjum óhöppum á ferðalaginu, og þá væri það henni að kenna, af því að hún liafði fengið vatnið úr brúsanum. »Það er talsverður slatti eftir í hon- um ennþá*, sagði biskup brosandi, »og svo er þess að gæta, hve rnikill kraftur fylgir einum einasta gúlsopa. Það er eng- in hætta á því að ég villist eða að vagn- inn velti út af veginum. Og ég kem hing- að aftur út á Oddann eftir þrjú eða fjög- ur ár. Þá skulum við talast við aftur«. —-------Daginn eftir hélt biskup áfram ferð sinni. »Jæja Lars«, sagði hann, þegar þeir voru komnir spölkorn áleiðis upp á Odd- ann, »hvernig lýst þér á fólkið hérna á Oddanum?« • Hvernig mér lýst á það?« sagði Lars og sló í klárana. »Ég get uú eiginlega lítið um það sagt«. »Attir þú ekki tal við neinn?« »Það get ég varla sagt. O-jú, — ég yrti á einn karlinn fyrir utan kirkjudyrnar og spurði hann hvorum 'siðnum hann fylgdi, þeim gamla eða hinum nýja. Hann svaraði því til, að liann fylgdi nýju trúnni. Hann sagði, að í gömlu kenningunni væri því haldið fiam, að sjórinn ætti að fæða okkur, en hin nýja mælti svo fyr- ir, að brjóta skyldi heiðarnar. Og hann kvaðst vera byrjaður á því að sínu leyti.« »Litlu hefir þú orðið nær af þessu svari«, mælti biskup hlæjandi. »Ekki segi ég það«, svaraði Lars og lét sér hvergi bregða, »því að ég komst þarna að raun um, að íólkið á Oddanum kann að hafa taumhald á tungu sinni, og ekki eru þeir að jafnaði lélegastir, sem kunna það«. Biskup vissi hitt og þetta um l'ólkið á Oddanum. Og um hugarfar einnar manneskju vissi hann sérstaklega. Geir- þrúður var borin og barnfædd á þessuin slóðum. Hann var að hugsa um hana. •Mörgum þeirra, sem fyrstir hyrjuðu að brjóta niður páfaveldið, varð á sama glappaskotið, sem oft hendir trésmiðinn, sem er að rífa niður gamalt hús: honum verður það á að brjóta stoðir og laus- holt og annað því um líkt, sem nota mætti í nýja húsið. Það er ekki hyggi- legt. Yér eigum að nota það sem not- hæft er af gömlu viðunum til að byggja úr hið nýja«. Lars sagði bara »já« og »a-nú«, — en annars lánnst honum þetta torskilið tal. ★ — — — Fimm ár liðu þangað til Palla- díus hiskup hafði tíma til að vísitera Oddakirkju aftur. Ekki liafði honum unn- ist tími til að koma í allar sóknir tvisv- ar sinnum. En út á Oddann vildi liann komast fyrir livern mun. Hann hafði lof- að Geirþrúði því og sjálfum sér líka. Og hann vildi efna það. Landið var jaín eyðilegt og hrjóstrugt og það hafði verið. En kirkjan var kom- in í nýjar flíkur, og mátti lieita, að þær væru eins og biskup vildi hafa þær. Þak- ið og gluggarnir voru nú í bezta lagi. Á altarinu var hreinn dúkur og tvær kerta- stikur. Heiðarblómum var stráð á gólfið. Og presturinn var búinn að fá prédik- unarstól, svo að nú gat liann horfst í augu við söfnuð sinn. Fólkið var svipað ásýndum og það liafði verið. En nú kunni það þó nokkra sálma og söng þá fullum hálsi. Geirþrúður hafði tekið mestum stakka- skiftum. Hún var ekki lengur flóttaleg og feimin. Þrjózku-svipurinn var líka horfinn. Nú var hún stillileg og glaðleg prestskona. Biskup var leiddur inn í hlýja stofu og honum boðinn hægur sess að lokinni vísitasíunni. Og Geirþrúði dvaldist lengi inni lijá honum. Hún þakkaði honum lijartanlega fyrir heilræðin góðu og vatn- ið, sem hann hafði gefið henni. Það halði ekki brugðist. Hún kvaðst hafa fylgt ráð- um hans nákvæmlega, og þegar hún hefði verið húin að súpa á vatninu, þá hefði

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.