Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 10

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 10
154 HEIMILISBLAÐIÐ þá býðst að vaka um stund. Til skiftis hýra sveina þar huldu rjóður greina í náðar nærðum blund. Þá dreymdi fagra drauma í dásemdanna geim; þá dreymdi dýrðarstrauma, sem dauðans lýstu heim; Því ljóssins loga veldi þá leið frá himins eldi og birti’ um djúpin breið. brosir himinn fríður. Hér er fædd sú helga mynd, hold á jörðu, laust við synd fagra friðinn bíður. Hósanna í himins sal, hósanna á jörðu, liósanna vort hjartans val, hljómar gleði’ á jörðu. Gegnum himins bjarta horg birta skín á jarðartorg sefast sárin liörðu. II. Kallar himinn, kallar strönd, kallar allt, sem hljómar, kalla höfin, kalla lönd, kalla endurómar! Heyrið sönginn himnaranns, heyrið boðskap frelsarans, heilög harpan rómar. Friðarengill fagnandi fríður stóð á jörðu: Yerið, hjarðmenn, vakandi, varpið angri hörðu! Heilög fylling himins skín hjörtunum, sem aldrei dvín, særðu og sundurmörðu. Frelsarinn er fæddur nú, friðarljóminn skæri; heilaga þér honum trú heitið — nú er færi! Farið því og frelsarann finnið bæði Guð og mann, — alla náðin næri. Þúsundanna þýður blær þá um geima líður; bergmálið í birtu grær, III. Nú farið, hjarðmenn, friðinn sanna, þér fáið brátt að sjá, og dýrðarinnar dásemd kanna frá Drotni jörðu á; þeir frjálsir gengu fagrar brautir í friði’ og ró því leystar voru þrautir, þá birtan skein um hlíðan geim og blessuð stjarnan lýsti þeim. Þeir fóru yfir fjallagrundu blíða í fegurð söngva liljóms, þá heitum ljóma hjörtun prýða, þeir helgu kraftar óms, þar stjarnan leiddi stillt og fögur til staðar þess er geta helgar sögur, til Betlehem þar borinn var hinn hlíði faðir miskunnar. Nú stanzar stjarnan lofts um leiðir svo Ijúf og eðlaskær, sem hjörtu fann og huga seiðir þeim hæstu strengjum nær; þeir stanza líka á staðnum kæra, hvar straumur lífsins vill þá endurnæra þeir hittu fyrir hellirinn hvar fæddist friðarhöfðinginn.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.