Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Side 13

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Side 13
HEIMILISBLAÐIÐ 157 Drottinn talar, hlýða lögmáli hans og vilja, þá sér hann dýrðar- og fagnaðar- sýnir fram undan fyrir land sitt og fólk, þar sem -miskunn og trúfesti mætast, réttvísi og friður kyssast«, og jörð og him- inn skiftast á um blessunargjafir handa landi og landsfólki. En að öðrum kosti muni fara sem fyr, að freisi og farsæld glatist. Slíkar og þvílíkar voru minningar og tilfinningar, óskir og vonir og hugsýnir hinna mestu og beztu manna Gyðinga- þjóðarinnar, og kunna að vera það enn, þrátt fyrir allar þeirra þrautir í nær 2000 ár! En mundu þær ekki vera allar eða flestar hinar sömu eða svipaðar meðal flestra annara þjóða, þar sem hið sama eða svipað hefir skeð eða skeður? Á þessum síðustu mánuðum þessa út- líðanda árs, 1938, hefir nú næstum því liver einasta þjóð í vorri álfu, og jafnvel flestar þjóðir í öllum álfum þessa heims vors átt svipaðar eða samskonar minn- ingar, og nú líka margar haldið 20 ára afmælishátíðir um afstaðnar >heimsstyrj- aldar hörmungar«, og fenginn frið og grið 1918. 1 minninga alls þessa hafa nú þjóðirn- ar verið að halda 20 ára friðarafmælis- hátíðir, og sumar einnig jafnframt hátíð þjóðlegrar lausnar undan yfirdrotnun og ánauð annarlegra þjóða eða ríkja, sem fékst upp úr hinni ægilegu heimsstyrj- öld. Á slíkum hátíðum komast menn og þjóðir ekki hjá, að minnast þess og kann- ast við það, að aðalorsök heimsstyrjald- arinnar, og allra styrjalda, var og er mis- gjörð og synd bæði einstaklinga og meiri hluta þjóða, eða það, að þeir og þær vildu eða vilja ekki >heyra það, sem Drottinn talar«, og að það var og er loks- ins neyðin sjálf, afleiðing misgjörðanna, sem neyddi og leiddi til friðar og betra vegar, og jafnvel til að blusta eftír frið- arorði Drottins, Og meðal þessara þjóða er nú líka litla þjóðin vor Islendinga. Einnig hún öðlað- ist sjálfstæðisviðurkenningu og lausn frá margra alda yfirdrotnun erlendra þjóða upp úr heimsstyrjöldinni miklu og held- ur nú einnig 20 ára minningarhátíð um það. En einnig hún hlýtur þá líka að vita og játa, að orsökin til allrar hinnar löngu og þungu erlendu yfirdrotnunar, í 6 ald- ir, var engin önnur en óguðlegt ráðlag og athæfi ramviltra og spiltra forfeðra vorra, aðallega á 13. öldinni, og þá einn- ig jafnhliða, að upp úr öllu þessu er nú frelsið fengið fyrir vitkun, iðrun og yfir- bót einstaklinga og þjóðar vorrar, og sam- tímis vitkun og sinnaskipti hinna erlendu yfirdrotna, og þó fyrst og síðast fyrir miskunnsamlega forsjá, handleiðslu og stjórn Drottins herskaranna, föðurins allra þjóða. Segja mætti því nú, að þjóðin vor, og ýmsar fleiri, hafi nú tvöfalt tilefni til 20 ára afmælishalds: 1 fyrsta lagi það, að heimsstyrjaldar ógnunum lauk, og í öðru lagi það, að upp úr þeim fékst alþjóða- viðurkenning um fult þjóðlegt frelsi vort og sjálfsstjórnarrétt. En hér hjá oss, 1 þessari sókn og sveit, og ýmsum fleirum í landi voru, mætti líka bæta þriðja tilefninu við. Því að sannlega höfum vér þriðja tilefnisins hér að minnast frá árinu 1918. Því að það ár dundi yfir oss einn hinn allra mesti gras- og gróðurbrestur, Kötlugosið og öskufallið mikla, og síðast þar á ofan >spánska veikin« svo nefnda, sem hér, í okkar fámenna kalli, lagði 13 manneskj- ur á líkfjalir, og mikinn meiri hluta safn- aðanna á sóttarsæng lengur eða skemur. Þá, á sjálfum sjálfstæðisfæðingardeginum, 1. des., og bæði fyrir og eftir hann, lág- um vér margir lágt á sjúkrabeði, og all- ir hinir dánu uppistandandi og ógrafn- ir minst í mánaðartíma, vegna veikinda hinna, sem eftir lifðu. 1 sannleika höfum vér hér'því þrefalt tilefni, þrefalda ástæðu til 20 ára afmæl-

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.