Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 16
160
HEIMILISBLAÐIÐ
Áðalbjörn Stefónsson,
prentari.
Það hefir dregist iengur en skyldi, að
minnast míns góða vinar, Aðalbjörns
Stefánssonar prentara. Vildi ég þó að
Heimilisblaðið geymdi mynd hans og
nokkur minningarorð.
Veturinn 1896 var það ákveðið uð ég
skyldi nema prentiðn, átti ég að byrja
1. desember. Man ég vel, er ég þá gekk
upp í prentsmiðju, hálfkvíðandi í liuga,
því að þar þekti ég engan. Ég drap að dyr-
um og til dyra kom ungur maður, sem
tók mér hlýlega og fylgdi mér til yfir-
prentarans, Ólafs Ólafssonar. Þessi mað-
ur, sem mér strax féll svo vel í geð, var
Aðalbjörn Stefánsson. Þá var hann út-
lærður prentari og búinn að vinna lið-
lega eitt ár. En ég var öllum og öllu
og verða sannarlega frjáls og sjálfstæð
þjóð í einu hinu fegursta og blessaðasta
landi'Jþessa heims, og svo eiga von ynd-
islegra himneskra heimkynna um síðir.
Biðjum nú og vonum, vonum og biðj-
um og’breytum svo, að þetta megi svo
verða. Ó, Guð vors lands og lýðs, lát
þetta *vo verða í Jesú nafni. Arnen.
ókunnugur. Hann veitti mér margvíslega
fræðslu og gaf mér boll ráð, og mynd-
aðist snemma með okkur náinn kunn-
ingsskapur og við urðum æ samrýmdari
er við vorum lengur saman, því að við
áttum ýmislegt sameiginlegt. Hann var
sanngöfugur maður og elskaði alt sem
fagurt var og gott, og var mér ómet-
anlegt gagn að því að kynnast honum
og njóta vináttu bans.
Aðalbjörn var með bezt mentuðu prent-
urum, hann las mikið, hafði næman
skilning og minni gott. Hann var skáld-
mæltur vel, þó að lítið bæri á því. Fynd-
inn og spaugsamur í sínum hóp — og
eiginlega — þó hægur væri — »hrókur
alls fagnaðar«.
Arið 1905 byrjuðum við að gefa út
barnatímaritið »Fanney* og gáfum út af
því 5 hefti. Síðar seldi ég honum útgáfu-
réttinn, er ég var fluttur austur á Eyr-
arbakka og gaf hann flest heftin út á ný
og endurbætti þau að efni. Prentaði ég
fyrir liann tvö síðustu heftin.
Nú um allmörg ár hafði hann valið
skrítlur og ýmislegtTfleira smávegis til
skemtunar og fróðleiks í Heimilisblaðið
og Ljósberann.
Barnablaðið »Æskuna« gaf Aðalbjörn
út í 18 ár með Sigurjóni Jónssyni bók-
sala, og blómgaðist hún mjög á því tíma-
bili. —
Aðalbjörn var einn af stofnendum Hins
íslenzka prentarafélags og kjörinn heið-
ursfélagi þess 4. apríl 1937.
Fyrir Goodtemplararegluna starfaði
hann óslitið alla tíð í frístundum sínum,
var félagi í st. Verðandi nr. 9 og í barna-
stúkunni »Æskan« nr. 1, og var kjörinn
heiðursfélagi þeirrar stúku.
í prentarafélaginu voru honum falin
ýms vandasöm störf, eitt sinn var þar
haldið uppi leikfélagi, og var Aðalbjörn
þar fremstur í flokki. Einnig höfðu prent-
arar um líkt leyti söngfélag, sem Jónas
heitinn organisti stjórnaði, og’,var hann
Framhald á síðu 187.