Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Qupperneq 17

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Qupperneq 17
HEIMILISBLAÐIÐ 161 RNÁNI Saga eftir Ágústu Ólafsdóttur Sagan byrjar úti í himingeimnum, þar sem stjörnurnar vagga sér í ljósvakanum eins og lítill bátur á lygnum firði. Þarna ríkti mesfa bróðerni, sátfc cg samlyndi. Þær vissu upp á hár, hvenær mátulegt var að vakna, nudda stýrurnar úr augunum og brosa til sólarinnar, sem skein á þær og léði þeim ljóma, sinn. Ein af stjörnun- um var langfegurst. Hún ljómaði og tindr- að:, líkt eins og augu nývaknaðs barns, er brosir til móður sinnar, og sélin elskaði þessa stjörnu, og hinar stjörnurnar dáð- ust að henni, og líklega hefir hún ekki þolað þetta, því að alt í einu var hún alveg full af hroka, Ég er alveg eins íögur og sólin, meira að segja enn fallegri, við höf- um ekkerfc með sólina að gera. Ég* skal taka að mér að lýsa jörðinni og ykkur, sagði hún. Og margar stjörnur tóku undir með henni og sögöu: Burt með só’lina, við viljum enga sól hafa. En h c st hafði feg- ursfca stjarnan, sem 1 afði verið svo sak- laus. Sólin heyrði þetta og hún staðnæmd- ist um ,stund á bak tunglið, og myrkur varð á. jörðunni og menn grétu og hróp- uðu, að það væri korninn heimsendir, og stjörnurnar fyltust skelfingu, er þær sáu ekki sólina og gráfcbændu hana um að koma aftur, allar, nema litla, fallega stjarnan. Hún srgði, að hún skyldi lýsa þe'm cg koma í stað sólarinnar. Hún vissi ekki, að hún var nú einungis dauður, kald- ur hnötfcuj’. Þá var alt, í einu kominn til hennar snjóhvítur engill. Ilann horfði á hana, dapurlega, »Ert þú kominn til þess- að dázt að mér?« spurði hún. »Ég dáðist; að þér, meðan þú ljómaðir í auðmýkt, en þú vildir taka að þér ann- ara hlutverk, en vanræktir þitt e:gið. Hver átti að vinna þitt hlutverk? Þú brást skyldu þinni. Guð seg'ir: Taktu hana burtu«. Og engillinn fór með hana langt burtu frá sólunni, — stjarnan hrapaði. hrapaði.------- Þegar stjarnan rankaði við sér, var heldur kynleg breyting orðin, — hún var orðin að manni — voldugum konungi, sem sat í hásæti, klæddur pelli og purpura og horfði með mikilli velþóknun á krjúpandi og smjaðrandi hirð'na. En umhverfis ljómaði alt og glitraði af gulli og gersem- um. Allir lutu boði hans og banni. — En þó var hann ekki ánægður, inst inni í fylgsnum sálar hans var helaumur blett- ur, sviðandi sársaukakend um, að annað- hvort hefði hann verið órétti beittur eða hann beitt einhvern órétti, en livað sem það nú var, þá. skyldi þess geypilega hefnt, og liann var grimmur og óvæginn við alla, sem hann náði til, með því hugðist hann að gleyma sársaukanum, og það tókst á daginn 1 svalli og giimdarverkum, en í hljóði næturinnar var hann fátækur og einn. Og svo kom að þeim tíma, að þjóðin vilcli ekki Lngur þola kúgarann. Uppreisn brauzt. út og allir yfirgáfu hann. Höll hans var umkringd og hann bjóst við kvalarfull- um dauða. Þá kom til hans auðvirðilegasti þjónninn og sagði: »Herra, kom þú«. Og hann klæddi hann í þjónsbúning, fylgdi honum um bakdyr í náttmyrkrinu, þegar mennirnir, sem áður höfðu verið þegnar hansi, voru glaðir yfir því, að þeir þófctust hafa ráð hans í hendi sér. Þeir læddusfc út í þéttan skóginn — áfram — áfram, alt- af lengra og lengra frá borginni. Um morg- uninn sagði þjónmnn: »Hér skiljum við, herra. Ég er gamall og get ekki'-yfirgefið land mitt. Ég ætla að gera mér kofa í þess- um skógi og. eyða þar afi minni«. Og hann rétti konungi hönd sína. »Ég þakka, þér«,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.