Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Side 26

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Side 26
170 HEIMILISBLAÐIÐ myndu leggja sig alla fram til þess, að kornast að réttiátum og friðsamlegum úr- lausnum deilumálanna. Drotningin benti á það, að Clydeár- bakkar væri staðurinn, þar sem breski verzlunarflotinn befði fæðst. Það væri þess vegna engin tilviljun, og raunar al- veg eðlilegt, að á þessum stað gerðust markverðust furðuverk í skipasmíði, og að einmitt þarna væri smíðað stærsta skipið þeirra skipa, sem bruna yfir At- lanzhafið, fram og aftur, eins og skyttur í vefstól, og hnýttu bönd vináttu og gagn- kvæms skilnings á milli hinna náskildu, enskumælandi þjóða. Það væri því vel til fundið, að stórfenglegasta fleytan, sem nokkurntíma befði verið bygð í Slóra- Bretlandi, væri helguð þessari leið. »Mér er gleðiefni að liugsa til þess«, sagði drotningin, »að þessar þjóðir bind- ast nú enn traustari böndum, vegna sam- eiginlegra hátta og hugsjóna um frelsi, og sameiginlegrar trúar. Því að það er trúar- og helgiathöfn, að hrinda í sjó fram nýrri fleytu, eins og byrjun á hverju nýju starfi, sem menn ráðast í að fram- kvæma, er helgiathöfn.« »Vér getum ekki gert oss í hugarlund-, sagði drotningin að lokum, »hvernig fram- tíðin verður ásýndum, en ef vér reynum að búa oss vel undir hana, en bíðum annars átekta með stillingu, þá sýnum vér það, að vér treystum hinni guðlegu forsjón, — trúum á hana. »Vér vitnum um trú vora á það, að með Guðs hjálp og þolinmæði, duguaði og lipurð þeirra manna, sem að málun- um standa, muni enn takast að koma á ró og reglu, þar sem nú er mest ólgan og æsingin, og friði og spekt, þar sem nú virðist geta kviknað ófriðarbál á hverri stundu. 1 þessari von og með þessa bæn 1 huga, ýtum vér nú þessu mikla og glæsilega skipi úr vör, og senn mun það svo taka við hinu veglega lilutverki sínu.- (»Signal' 6. október 1938). Th. Á. Ha ust. Hallar surnri, blikna blómin, bresta strengir sumarhörpu; lengist nótt, en nálgast vetur, næðir kul í frosti skörpu. Hljóðnar allt á landi og legi; lifir rjúpa úti’ í móa, snjótitlingar heim að húsum halda, þegar fer að snjóa. Oft ég heyrði um óttuleiti unaðs fagurt kvak í móa, sameinuðust ótal raddir, alira fegurst söng þar lóa. Nú sést ekkert utan valur eða hrafn, á vængjum breiðum. Engir heyrast ástar söngvar upp 1 lofti’ eða út á heiðum. Fuglar vita af fögrum löndum fyrir liandan sæinn víða, þangað líða á léttum vængjum, ljós og lilýja eí þeirra bíða. Hvemig er það okkar megin, æfi þegar sumar líður? rötum vér að lífsins landi, ljós og ylur, sem vor bíður. Eru okkar fuglar fremri, fylgsnis leita, er sumar líður? Þeirri spurning sérhver sjálfur svara bezt og réttast hlýtur.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.