Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Qupperneq 29

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Qupperneq 29
HEIMILISBLAÐIÐ 173 fyrir mig’-, sagði hún, »mig iangaði ein- mitt í kaffi núna«. »Það fór vel, bles,suð! Hfifðu þá gott af þessu«. Iíún leit fast á Ingu. Henni duldist ekki, að e'tthvað amaði að þessari ungu og fríðu stúlku. »Mikið hefir þú þarna fallega. mynd yfir rúm nu þínu, stúlka mín«. »Hún er af henni móður minni sálugu«, sagði Inga lágt. »Djarímannlegur svipur«, s.agði gamla konan, »Áltu föður á lífi?« »Nei, hann dó þegar ég var 10 ára«. »Hvað ei- þetta! — En systkini áttu þó, stúlka mín? Fyrirgefðu forvitnina«. »Nei«, sagði Inga, »ég var einbirni. Ég á engan að«. Rómur hennar skalf. Gamla konan gekk að henni og tók báö- um höndum um aðra hendi hennar og sagði: »Þú ert svo lík stúlkunni, sem ég misti fyrir þremur árum, að mér finst sem ég þekki þig. Þú átt mig að, stúlka mín, með- an þú dvelur hér. Það er auðvitað ekki mikið í það varið, góða mín, að eiga Mettu gömlu að vinkonu, en þú ert sú fyrsta, sem ég hefi bc.ðið vináttu mína. Þú ert svo sviplík blessuðu barninu mínu«. Hún þurkaði sér um augun með svuntu- horninu, reyndi að harka af sér og sagði: »Ég hefi heyrt, að þú heitir Inga Guð- brandsdóttir. Er það ekki rétt? — Þú ert komin í g.'ðar hendur. Prcsturinn er guli að manni, cg húsmcð.rin, er vaikvendi, — kanske nokkuð þur á manninn svona fyrst, en þaö hverfur nú fijótt. — Jæja, ég er nú búin að rabba svo mikið við þig. Þú ættir bara að ganga fram til okkar. Það er alt hérna í slátri núna, svo frúin er önnum kafin. Ég bý í gamla, bænum, sem kallaður cr. Þú ert velkomin til mín þeg- ar þú vilt«. Síðan greip Metta gamla bakkann og hvarf út úr clyr unum um leið og hún brosti Uííjlega til Ingu. II. Inga var búin að vera mánuð á prests- setrinu og virtist hún öllum vel. Ilún var stlt og alvarleg; en hjálpfús og blíð í skapi. Metta tignaði hana og reyndi að gera Lenni alt til yndis og ánægju. Ekki hafði hún farið neitt út af ,bæ síðan hún kom,, en, margt hafði hún heyrt vinnufólk- ið rv. ða sín á m lli til eins og annars, og þó hún vildi ekki hlusta eftir því, heyrði hún mörgum lögð lastyrði á bak. Þó koro, það aldrei fyrir í nærveru hjónanna. Org- elhljómur var þar daglega, því frúin lék forkunnar vel. Inga var orðinn heimagangur hjá Mettu gömlu og Jóni manni hennar, sem var tals- vert yngri en hún. Virtist henni sambúð þeirra fremur þur og þreytandi. Bar hún innilegt vináttuþel til Mettu fyrir alúö hennar við sig. Frúin og Inga voru einnig orðnar samrýmdar, enda kynnist fólk fyr í sveitum,, einkum þá er veturinn leggur kiakabönd sín yfir láð og lcg. Þá er gott að sitja vic hlýjan heimaarinn hjá góðum kunningjum. Þó gat Inga setið tímum saman þegjandi við gluggann sinn og mænt út í bláinn. Hún haföi sagt. hjónunum ágrip af æfisögu s'nni, sem var mjög óbrotin. Hún var uppalin í Ö ... kaupstað, er lá við sjó. Tii 10 ái a aldurs lék alt í lyndi fyrir henni, cn þá diuknaði faðir hennar í fiskiróðri. Móðir hennar var altaf heilsu- tæp, og dó hún þegar Inga var tvítug. Síðan fór Inga t l Reykjavíkur í vistir, en leiddist sá starfi. Varði hún þá því, sem hún átti, til að læra ljósmóðuistörf. »Hér verð ég sjálfsagt eilífur augna- karl«, sagði Inga einhverju sinni við prestshjónin og brosti þunglyndislega. »Engin hætta mun á þv.í«, sivaraði frúin g aðlega, »þær eru vanar að gifta sig fljót- lega, blessaðar Ijósmæðurnar. Væri ég piparmey. mundi ég sem fyrst fara að læra húsmúðurfræðk. Inga hlc stuttan kuldahlátur og tók fram í:

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.