Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 32

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 32
176 HEIMILISBLAÐIÐ inn féð, ?at Inga hjá Mettn og studdi hönd undir kinn., og var venju fremur stúrin. Metta tók vel eftir henni, en vildi ekki trufla hugsanir hennar. Hún vissi af eigin reynslu að hið dýrmætasta sem mannssál- in á eru ljúfar minningar horfinna unaðs- stunda. Inga rétti sig upp og dró andann djúpt og sagði: »Ætli ég eei ði nú sótt um jólin?« Metta leit upp og brosti, því vel vissi hún að Inga hafði ekki haft þetta í huga. »Heldurðu það?«- svaraði Metta, »hefir þér niokkuð verið gert aðvart um, það « »Nei, en eftir því sem hún frú Þórunn sagði ---------—«. »Frú Þórunn!« sagði Metta fyrirlitlega, »það gæti þá orðið með þorra«. »Hver er þessi Manga Rauðnefja„ sem Sæunn er búin að taka?« »Það er fáráðlingur sem var veik í vor, og hefir flækst síðan frá einum 11 ann- a ,s;’ en me'nlaus og þ g er hún, skinnið, en fólk talar svo margt hérna sem annars- s'aðar, Inga mín. Eitthvað bull var um hana tímann sem hún var hjá lækn num, en cg iæt þ:sskonar liggja milli hluta. Kannske hann, karltuskan., sé ekki eins breiskur eins og sagt er. Þegar þú kemur til Sæunnar skaltu láta berast í ta! um huldufólk, ef þú verður. þar svo lengi að þú kynnist hcnni eitthvað; það er sagt að það sjáist oft þar í Hyrn- unni«. »Eg er ótrúuð á slíkt«, sagði Inga hlæj- andi. »Nú er ldukkan orðin fimm«., sagði Metta. »Nú, þegar allir eru komnir inn drögum við jólasveinana«. Inga starði á hana forviða. »Að draga jólasveinana! Hvað er það?« »Það er gamall siður sem enn helzt sum- staðar í sveitum;, einkum þar sem gest- kvæmt er. Maður skrifar upp alla þá, sem koma um föstuna, en engan, þó nema einu sinni. Svo er dregið um það og þykir það góð skemtun. Við erum ekki eins formfág- uð hérna eins og í kaupstöðunum«. J ó 1 a b æ n. O, Guð, sem ríkir hátt í hœðum hönd þína réttu fallnri jörð; andi þinn dreifi ástargœðum inn í vor hjörtu, köld og hörð. Lát elsku þinnar Ijóma sól og lýsa skœrt um þessi jól. Að þér tak, Jesús, þreytta, þjáða, þerraðu tár af liverri hrá; ger lífsbraut þeirra blómum stráða er böl og harmar mœða’ og þjá. Lát alla mœna upp til þín eilíf þar dýrðarsólin skín. Astvini geymdu okkar alla í þínum faðmi, Jesúis kœr; þegar oss liéðan þú vilt kalla, þeim lát oss vera hjá þér nœr í þeirri dýrð, sem dásöm skín, drottinn í kringum börnin þín. G. P. »Mér feílur vel að \ era hér«, sagði Inga, »þótt tg sé alin upp við aðra siði«. »Gó3a segðu mér nú eitthvað frá þín- um s:ðum«, sagði Metta. »0g það er nú frá litlu að segja«, sagði Inga. »Síðustu jólin var ég í Reykjavík. Þar fundust mér jólin alt aðrir dagar en he'ma. Æ, ég get ekki lýst því fyrir þér, Metta mín, — ekki núna«. Það var grát- stafur í rcmnum. »Kærðu þig e’ kert um það, góða mín«, svaraði Metta, »nú koma blessuð jólin, þau eru okkur öllum sönn fagnaðarhátíð, ef við hcldum þau i'éttilega. — Blessuð stúlkan mín, sem dó, skrifaði mér síðasta bréfic sitt síðustu jólin, sem hún lifði. Þá var hún á Vífilsstöðum. En Guði sé lof! Bréfið ber það með sér, að hún vissi ,á. hvern hún tiúði. Einhcemtima skal ég sýna þér það bréf«. Inga gekk fram. Hún vildi lofa gömlu konunni að sitja í ró með hugsanir sínar. Frh.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.