Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 35

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 35
HEIMILISBLAÐIÐ 179 að 1 þetta sinn hreif hann svo áheyrend- ur sína, að þeiin kom sanian um, að hér væri á ferðinni sannur söngvari af Guðs náð. Hrifningin var að ná hámarki í kirkj- unni, — en þá varð óvænt hlé á athöfn- inni. — Sendimaður kom þangað og flutti Enrico þá fregn, að móðir hans væri lát- in. Drengurinn hafði mist móður sína og unnið fyrsta listarsigurinn á sama augna- blikinu. — — — Caruso söng ekkert um hríð, fyrst eft- ir að móðir hans lézt. Hann var þá 15 ára. En þá datt honum það í hug, að jafnan hafði það verið hin mesta gleði móður hans, að heyra hann syngja. Myndi það þá ekki geta glatt hana líka á himn- um uppi, ef hann héldi áfram að syngja — ef hann gæti orðið góður söngmaður? Og honum fór altaf fram. Hann stund- aði söngnámið í hjáverkum, söng altaf öðru hvoru í kirkjum og á skemtistöð- um, og varð brátt mjög vinsæll heima fyrir. En vinnuna í vélaverksmiðjunni stundaði hann þó með stakri samvizku- semi og dugnaði. Seinustu árin, sem liann vann þar, gegndi hann bókhaldarastörf- um, og er sagt að hann hafi leyst þau vel af hendi. Eftir að hann komst úr mútum, var röddin fyrst fremur lítil og »mjó* ten- órrödd, en stækkaði og breikkaði vonum bráðar. En hinn frægi söngkennari, Yer- gine, sem eftir mikið þref, félst á að kenna Caruso, sagði um röddina, þegar hann var búinn að heyra til Enricos í fyrsta sinn, að hún væri »eins og vindur- inn, þegar hann þýtur vælandi í gegnum brotna gluggarúðu«. Annars er það í frá- sögur færandi um viðskifti þeirra Enric- os og þessa söngkennara, að Vergine lét Caruso skrifa undir skuldbindingu um það, að hann skyldi greiða Vergine 25% af tekjum sínum í fimm ár, eftir að hann væri farinn að liafa ofan af fyrir sér sem söngvari. Árið 1899 keypti Caruso sig undan þessari kvöð með tuttugu þúsund lírum. Hjá Vergine stundaði Caruso námið í sex ár samfleytt. Og Caruso segir svo sjálfur frá, að tilsögnin hafi verið frá- bærilega góð. Einkum leggur hann áherzlu á það, að Vergine tókst að kenna honum að syngja svo eðlilega, að aldrei þurfti að bera á því, þó að hann væri kominn að þrotum. Erfiðust var Caruso glíman við hæstu tónana. Hann náði þeim að vísu leikandi, en röddin vildi bila, — »það brann fyrir hjá honum«, sem kall- að er, það var eins og raddböndin væru að einhverju leyti gölluð, eða þyldu ekki þensluna, — eða þá, að andardrátturinn var ekki eins og hann átti að vera. Og það var ljóður á mentun hans, að hann lærði aldrei að leika á nokkurt hljóð- færi og aldrei lagði hann stund á hljóm- fræði. Þrátt fyrir þennan mentunarskort, söng Caruso allra söngvara »músíkalsk- ast« og hrynjandavitund lians skeikaði aldrei. Hvort tveggju þetta var honum í blóðið borið. Caruso lét ekki af störfum sínum í verksmiðjunni fyr en hann var 21 árs, og hafði hann þá nýlokið herþjónustu. En nú tók hann að syngja allstaðar þar, sem að varð komist, sér til viðurværis, og gekk á ýmsu fyrir honum um hríð. Árið 1894 fékk hann að »debútera* í söngleiknum »L’ Amico Francesco*. Ekki var mikið eftir honum tekið 1 það sinn, — en nú var hann kominn upp á leik- sviðið og hann bafði hug á, að láta ekki hrekja sig þaðan. Hann fékk ný hlutverk en lítið var um undirtektirnar lengi vel, og lifði Caruso þá oft við þröngan kost. En hann hafði óbilandi trú á því, að »þetta myndi nú lagast«, þá og þegar. Og lionum varð að þeirri trú. Tenór-söngv- ari Bellini-leikhússins varð skyndilega veikur. Það var verið að leika Fást og Caruso var ráðinn til þess að hlaupa í skarðið fyrir tuttugu og fimm lírur. Það var mesta þóknun, sem hann hafði þá nokkurntíma fengið. Og í þetta sinn náði hann tökum á áheyrendunum og var ráð-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.