Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 37

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 37
HEIMILISBLAÐIÐ 181 hann að leggja það á sig, að læra þá á öllum höfuðmálum Evrópu, svo að lýta- lítill væri framburðurinn. Árið 1901 söng hann í fyrsta sinn á Teatre della Scala, í Milano. En þar þótti miklu skifta, að vel tækist. Og Car- uso sigraði, en hinn heimskunni hljóm- sveitarstjóri, Toscanini, tók liann undir verndarvæng sinn. Skal ekkert um það sagt hér, að hve miklu gagni sú vernd varð Caruso. En nú rak hver stórsigur- inn annan. Hann varð á skömmum tíma heimsfrægur söngvari. Hélt hljómleika í öllum stórborgum Evrópu: París, Berlín, Lissabon, London og víðar og þótti lang- samlega bera af öðrum söngvurum. Hann var að vísu það sem kallað er -hetjuten- ór«, en sigrar hans byggðust ekki á kraft- kynginni einni, heldur og því, hve söng- uriun var dásamlega ljúfur, — áheyrend- um fannst hann bera þá á vængjum hins guðdómlega söngs, til æðri heima, — opna þeim hlið himins. Blaðadómarnir um söng Caruso voru ekki lengur dóm- ar, það var aðeins leitast við að finna hin fegurstu áherzluorð um söng hans. Þó er sagt frá einum »ósigri«, eftir að búið var að slá því föstu, að hann bæri mjög af öðrum söngmönnum, og mun hann hafa tekið þann ósigur mjög nærri sér. Það var í árslok 1901, sama árið, sem hann vann hinn glæsilega sigur í Scala í Milano. Hann var ráðinn til að syngja nokkrum sinnum í leikhúsi í Neapel, fæðingarborg sinni, en þar hafði hann þá ekki sungið eftir að hann varð full- þroska söngvari. Hann hafði hlakkað mikið til þess, að geta nú sýnt samborg- urum sínum, hver maður hann væri nú orðinn og taldi, með sjálfum sér, að verða rnyndi það hámark hamingju sinnar, að ávinna sér hylli þeirra og aðdáun. En þetta fór á alt annan veg. Hér voru öfl að verki, sem hann varaði sig ekki á. Castagnetto prins réði lögum og lofum í Neapel um þessar mundir, um alla þá hluti, er lutu að listum og tízku, eða réttara sagt, hann réð því, hvaða list var tekin »gjaldgeng«. Caruso hafði að vísu eitthvert hugboð um það, að það myndi skifta hann nokkru máli, að hann gerði prinsinum heimsókn og kæmi sér vel við hann. En slíkar aðferðir voru honum jafnan ógeðfeldar. Hann vildi vinna sigr- ana með söngnum einum. En prinsinn firtist við og Caruso varð fyrir hinni mestu smán. Hann var jafnvel »hrópað- ur niður« fyrsta kveldið, og var-það í eina skiftið, sem það kom fyrir hann. Hann lét sig þó ekki, og söng á leikhús- inu þann tíma, sem um hafði verið sam- ið. Þegar hann kvaddi leikhússtjórann, á hann að haía sagt: »Hér í Neapel syng ég aldrei framar. Komi ég hingað ein- hverntíma, verður það ekki til annars, en að fá mér einn disk af »spaghetti«. I Bandaríkjunum naut hann ákaflega mikilla vinsælda og var þar langdvölum siðustu ar æfinnar. Jafnan vakti hann gleði og hrifningu með söng sínum, — en sjálfur var hann sár og kalinn. Kon- an fór frá honum, og það tók hann sér ákaflega nærri. Og heilsan var léleg hin síðari árin, svo að oft varð að aflýsa söng- kvöldum lians á Metropolitan söngleika- húsinu í New York. Var hann þó frá- bærilega skyldurækinn og söng oft sár- lasinn. Ilann giftist að vísu aftur, en þóttist aldrei hljóta þann frið og full- nægingu, sem hann þráði og hafði notið í sambúðinni við fyrri konuna, á meðan það stoð. Honum fanst hamingjan horf- in ser og sat tiðum einn á hótelherbergi sínu, í þungu skapi. Helzt gerði hann ser þá það til dundurs, að fást við skop- teikningar, en hann var ágætur teikn- ari. Ilonum græddist of fjár, en ekki kann eg deili á, svo að ég geti nefnt upphæð- ir. Þó gefur það nokkra hugmynd um, hve ríflegar voru tekjur hans, að talið er, að sú »aukageta«, sem hann hafði fyr- ir að syngja á grammófónplötur í tóm-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.