Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1939, Side 11

Heimilisblaðið - 01.02.1939, Side 11
HElMlLISBLAÐIÐ 31 annað en að stríða mér á ótætis hanan- um; þetta er réttlát hegning, sem hanr, verður að þoia«. »Þér eruð nú allt of spéhræddur, Niko- laj; þér þolið ekkert glens«. »Mér þykir nú ekkert varið í þessháttar glens; en á ég að segja yður nokkuð? Frið- rik er ákaflega stríðinn«. »Nei, það er nú alls ekki satt. Friórik er sá góðlvndasti maður, sem til er á Guðs grænni jörð«. Og nú tók Andrea Margrét til, og hélt aðra eins lofræðu yfir Korpus Júris, og þá, sem Emma hafði haldiö um Gamla daginn áður. »Nú, iá. já«, hugsaði ég með mér; »ef þeir Gamh og Korpus Júris, eru í þessu líka litla dálæti hérna á Hnetubúi hvers ætli ég gcti þá ekki vænst«. Og svo fór ég að hugsa um það, hvort ekki væri bezt fyrir mig, að opinbera Andreu Margréti það, sem rnér bjó í brjósti. En ég-var í ráðaleysi með það, hvernig ég ætti að byrja — hvort ég ætti að setja upp ákaflega há- tíðlegan svip. og segja henni frá því á meistaralega óajðfinnanlegu húslestrarmáli — eð'a hvort ég ætti að halda áfranr glens- inu og gamninu, og snúa svo alit í einu að málefni hjarta míns — án nokkurs fyrir- vara. »Þér eruð svo alvörugefinn, Nikolaj«, sagði Andrea Margrét, »Er yður að detta í hug snjallræðið, sem á að hleypa fjöri í fólkið? « »Já«, hugsaði ég; »ætli það hleypti ekki fjöri í fólkið, ef ég kæmi inn. til þess, með Andreu Margréti og tilkynnti því, með fá- um og velvöldum orðum, að við værum trú- lofuð«. I sama bili heyrðist fótatak fyrir fram- an dyrnar, og um leið kom Korpus Júris þjótandi, eins og kólfi væri skotið. »Nei, þetta tjáir alls ekki«, sagði hann: »Kristófer situr og jes, og nú eruð þér og Nikolaj strokin fram í búr. Hvað atli Kold- bergs fjölskyldan. hugsi um þetta háttalag. Þið verðið strax að koma inn með mér«. »Á ég ekki að gefa yður góðan mjöð í. glasi, Friðrik?« spurði Andrea Margrét; »við vorum einmitt að tala um yður, svo þar sannast hið íornkveðna: þegar minnst er á sólina, fer hún að skína«. »Þökk fyrir«, sagði Korpus Júris, tók við glasinu, og tyllti s :r um leið upp á búrs- bekkinn. »Nú, svo þið voruð að tala um mig? Hvað svo sem var það nú, ef ég má vera svo. djaríur, að spyrja um það«. »Nikola,i var að bera sig upp undan yð- ur. Hann sagöi, að þér væruð svo stríðinn«. »Svo —« sagði Korpus Júris, án þess að nokkurt fararsnið sæist. á honum. »Hefi ég strítt þér mikið í dag, Nikolaj?« »Nú, méi finnst þú þurfir ekki að spyrja um Jjað —ég sem hefi ekki haft nokkurn stundlegan frið fyrir þér í ajlan dag«. »Nú, nú, ég hélt, þú tækir þér þetta ekki. svona nærri«. »Já, þaö getur nú verið; en mér hefir samt ekki þótt það sérlega skemmtilegt.«. »Jæja, við skulum n.ú hætta að tala um það«, sagði Andrea Margrét.; »skeð er skeð; og nú skuluö þið drekka sáttabikar«. »Já, eins og þér viljið«, sagði Korpus Júris. »Til, bræðralags og' sátta — frá því á morgun«, bætti hann við og hringdi glasi við mig. »Frá því á morgun«, sagði ég með mik- illi áherzlu, því að í sarna bili mundi ég eftir, hvernjg ég hafði farið með rúmio hans — en þá skemmtun vildi ég ómögu- lega láta ganga úr greipum mér. I þessu vetfangi vatt Emma sér inn úr dyrunum, og kom Gamji strax á hæla henm. »Nei hvað er Jretta — Jhð eruð þá öll hérna!« sagði Emma. »En það tjáir alls ekki að skilja svona við gestina aleina. Þú verður þó að fara inn aftur Andrea Mar- grét. Iivað heldurðu að Kjeldborgsfjól- skyldan hugsi um okkur?« »Ö, þau eru svo heimsins ósköp leiðinleg«, sagði Andrea Margrét og dæsti mikið. »Já, það getur nú vel verið; en þau eru gestir okkar, og við sýnum þeim harla litl.a gestrisni með' þ.ví að stökkva öll, frá Jjeim«. »Viljið þér ekki gera svo vel, aö fá yður

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.