Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1939, Side 17

Heimilisblaðið - 01.02.1939, Side 17
HElMILISBLAÐIÐ 37 sem það vill. Ég veit að huldufólk er til, meira aö segja í klet.tabeltinu hérna upy af bænum, og' það er mesta, myndarfólk«. Inga brosti og sagði: »Hafi það verið tii áður, þá er það sjálfsagt til enn«. Hún vissi að vinkona hennar var alin upp við þessa gömlu þjóotrú. og hafði hún svo að segja drukkið hana með móðurmjólkinm. En hvernig stóð á. þessu sem hún heyrði sjálf? Ekki var það af trú. — Eða höfðu hugs- anir vinkonu hennar fluzt inn í hennar eig- in sál? --- Hver vissi það? »Jæja, eisku Inga mín! Hvernig er nið- urlagið á sögu þinni?« spurði Sæunn blíð- lega litlu síðar, »þú mátt trúa því, að ég finn til með þér«. Rómurinn var titrandi. Inga helt þá sögu sinni áfram á þessa leið: »Hann fór til Reykjavíkur, og var ég all- an veturinn að vonast eftir bréfi frá hon- um. Sumarið leið einnig, en engin lína kom frá honum. Ég leyndi harmi mínum sem bezt ég gat, en mcðir mín sá hvað ég leið. Það þreytti hana mjög, enda mátti hún ekki við miklu. Aldrei datt mér þó í hug, að hann hefði yfirgefið mig. Nei, veikur eða dáinn hlaut hann að vera; svo viss þótt- ist cg um tryggð hans. Engan gat ég spurt, því enginn vissi um samband okkar, en myndina skooaði ég á hverjum degi, og það geri ég enn, en nú eru tilfinningar mínar orðnar öðru vísi. — Svo kom lang- ur, langur vetur. Mamma varð æ lasnari. Um páskaleytið lagðist hún í rúmið, og á útlíðandi slætti dó hún. Ö, elsku Sæunn ,mín! Mitt í sorg minni skein bjartur von- argeisli. Nú batt mig ekkert lengur við heimahagana. Nú gat, ég loksins komist til hans, sem ég unni. En ef hann væri nú dáinn? Ég vildi ekki hugsa um það. Ég treysti mér ekki til þess. Síðan seldi ég það, sem við áttum og lagði á stað tii Reykjavíkur. Ég var öllum ókunn. Ég leigði mér herhergi. cg hclt svo af stað að leita hann uppi. Ö, hvað ég þráði og hlakkaði t.il að fleygja mér í faðm hans! Eg hafði leiðarvísi. Kaupmaðurinn hafði sagt mér húsnúmer hans, þegar ég loks áræddi ao spyrja hann þess, en skrítinn varð hann þá á svipinn. Nú gekk ég vilt þegar í þessum stóra bæ. Ég vildi Jdó ódfús fremur fljúga en ganga í H.. .götu 2 D. Mér er enn sem ég sjái götunafniö og númerið á miðanum. Ég á hann enn þá. Loks komst ég áleiðis og gerði boð fyrir hann. Hjartað þarðist ákaflega. Hann kom fram. Mér sýndist honum bregða er hann sá mig, en ég vildi ekki trúa óhamingju minni. Eg rétt? honum báðar hendurnar og hvíslaði: »Mamma, er dáin, ég kom«. Það kom vandræðasvipur á andlit hans sem snöggvast, en ,svo setti hann upp með- aumkvunarsvip og sagði: »Kæra ungfrú! Ég skal vita hvort kon- an, mín getur ekkert gert, fyrir yður«. Hann sneri sér við. Ung og fríð kona kom fram ,í anddvriö. Þaö var furðusvipur á andliti hennar. »Heyrðu, kæra!« sagði hann og sneri sér við. Ég rauk á dyr og hefi ekki séð hann síðan. Ég reikaoi allt kvöldið götu úr götu. Al- staðar var fjor og líf. Borgin var sem Ijós- haf að sjá, en sál mín var myrk. Þó fann ég að innan um allt þetta Ijós og líf var svört sál, þúsund sinnum svartari en mín, og þús,und sinnum vesælli. Loks tók ég ákvörðun. Ég ásetti mér að verja efnum mínum til að læra Ijósmóð- urstörf. Æfi mína ætlaði ég að helga óskifta starfi mínu. En eftir þetta kvöld var ég sjálf ekki lengur til. Það var önnur Inga, sem gekk um herbergið mitt. Nú er allt þetta liðið, og mér líður vel, því ég finn hugsvölun í starfi mínu«. Þær voru nú komnar heim á hlaðið. Þar stóð Mangs Rauðnefja og leit svo ástúð- lega til Ingu, að auðséð var að hún, hafði hinar mestu rnætur á henni. Inga leit til S unnar og sigurbros var í augum hennar.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.