Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1939, Side 13

Heimilisblaðið - 01.02.1939, Side 13
HÉIMILISBLAÐIÐ 33 árangurslausar, og ég var mjög gramur við sjálfan. mig. Hvernig stóð á því, að ég gat ekki spjallað við Andreu Margréti eins og ég var vanur? En þaðl var ómögulegt; og Kjeldboí'gsfólkið lá’e’ins og farg á hjarta mínu. Til þess þói að vera ekki alveg iðju- laus, drakk ég; sex bolla af teinu; en það hressti mig sáralítið. Þá kom Níels allt í einu, inn. »Hvað vilt þú?« spurði presturinn. »Ég ætlaði bara að segja prestinum frá því, að ég er nú loksins búinn að finnax hann Trygg, og hann er búinn að fá, sín makleg málagjöld«. »Málagjöld?« spuroi presturinn hissa. »Nú, ég barði hann, eins og presturinn sagði mér í gærkvöldi að gera, fyrir það, að hann hefði farið inn í hænsnahúsið«. Andrea Margrét fór þá hástöfum að aumkva Trygg greyið — hann liði hegning- una, sak’aus, og þetta væri argasta órétt- læti. En Níels huggaði hana með því, ao þótt hann í þetta skifti væri máske saklaus, þá hefði hann oft og einatt áður unnió til hegningar. með því að fara inn í hænsna- húsið — svo allt jafnaði sig á endanum. »Nú kemur þessi hegning í koll ykkur Nikolaj«, ,sagði. presturinn. »Æi-já«, sagði Andrea Margrét. »Ég skal líka gefa honum helmingi betra og meira að eta í kvöld, en. vant er, til þess að bæta honum upp höggin«. Þegar Níels var farinn, spurði bóndinn, hverskonar hænsnahússsaga þetta væri. »Já, það er nú merkileg saga. Atburður- inn skeði 1 gærkvöldi. Og það vildi þannig til, að Nikolaj og Andrea Margrét-------« »Æ, pabbi, það er ekki þess vert, að oro sé á því gerandi«, sagði Andrea Margrét með ákefo. »Jæja, svo þú vilt, að þetta komist ekki í hámæli — já, þá skal ég líka þegja eins og st.einn«, sagðli presturinn,. »Nú, hvað er þetta?« sagði Kjeldborg, og glápti á okkur Andreu. Margréti á víxl; »já, mér datt í hug, að Kaupmannahafnarbú- arnir væri ekki hérna alveg til einskis«. »Þey — þey — þey; ég sagði ekkert«, sagði presturinn. »Við skulum bara þegja; annars fæ ég ekki frið fyrir henni Andreu Margréti í marga daga«. Þá kallaði Andrea Margrét á vinnukon- una og bað hana að bera fram bollapörin, og við það hætti samræðan. Presturinn hafo'i engar mæt.ur á spilum, svo þær bjargir voru bannaðar, til dægra- styttingar. önnur dóttirin fór að leika :t slaghörpuna, samkvæmt áskorun Andreu Margrétar, og hún lék eitthvert lag, sem var að minnsta kosti helmingi lengra en hún sjálf en nákvæmlega jafn leiðinlegt og hún var sjálí. Það er annars stórmerkileg gáfa, sem leiðinlegir menn hafa: þeir geta í einum svip, breytt ánægju í ergelsi og gleöi í leið- indi. Þegar Kjeldborgsdót.t:rin fór að leika á hljóðfærið, datt mér óðara í hug, að þarna hefði hún lent á allra lengsta og lang leiðinlegasta laginu, sem skapast hefði um allan heimsins aldur. Það var ekkert ann- að. en gal,andi trill og hljómandi hrossa- brestssmellir — og svo ætlaði þetta aldrei að taka enda. Loksins þoldi ég ekki mátið lengur — ég stóð upp og fór af stáð til, að hitta Korpus Júris. Og erindið var þó ekk- ert annað en það, að nú væri ég farinn að lraga ýsur. En hann mætti mér þá á. miðri leið, og tilkynnti mér, að hann væri engu betur staddur en ég — hann væri alveg að’ sofna. Svo tók ég mér stöðu upp við hurðina, í þeirri von, að einhver kynni að koma inn, og Vekja mig, með því að reka hana í bakið á mér; en enginn kom in.n og loksins, fór ég að klípa mig í handlegg- ina á víxl, til að halda mér vakandi Þá kom Andrea Margrét til mín og sagði: »Þér eruð víst heldur en ekki syfjaour, Nikol,aj«. »Já, það veit. trúa mín; ég get varla haldið opnum augunum«. »Já, það veit trúa mín; ég get varla gott ráð: við skulum setja á okkur vöku- staura. Það er bezta ráð til þess að halda sér vakandi, Framh.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.