Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1953, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.12.1953, Blaðsíða 20
\A S i Magnús Jóhannesson yTVf vr'^N/ JL iw Wi Jólagjöfin (+'** V-/r« 'íV'V^-^-w^.vv tswv; ^’.A’.. -j•!(.•* .*;o* V HANN húkir framan við arininn, glænepjulegur með glæran dropa á nefinu og ornar bláköldum höndum. Ofn- inn, sem fyrir skömmu hafði verið rauðglóandi, bregður óð- fluga litum, blánar líkt og mað- ur í kverkataki. Snarkið hljóðnar, og glæð- urnar dvína, líkt og síðasti lífs- neisti í augum dauðvona manns. Hann nýr saman höndum svo að smellur í, skotrar aug- unum til eldiviðarkassans. Hann er tómur, galtómur. Bara, að hann væri úr tré, hugsar hann. Þá mætti brenna honum. — Er það líf, þessi hörmung, muldrar hann. Að það skuli vera jól. Hann lítur í kringum sig í herberginu. Það er óvistleg kytra, grámáluð, eða réttara sagt gráskjöldótt, þvi víðast hvar glyttir í beran panelinn gegnum klístrið, sem slett hafði verið úr penslinum af handahófi. Veggirnir voru herfilega samskeyttir, víða handþykkar glufur, fyrsta flokks bústaðir fyrir veggjalýs Gólfið var þakið sentimetra- þykku sandlagi, sem barst með skósólunum utan af götunni. Það eina, sem sæmilegt var við þessa skonsu, var næðið. Það komu fáir í heimsókn, enda fátt um vini síðan hann varð blankur. Hér gat hann setið lon og don og horft á mannlífið, sem iðaði eins og gerill um götuna. Stundum sá hann ungar kon- ur, eða réttara sagt fótleggi þeirra, því gluggaboran var svo lág, að hann gat hæglega teygt höndina niður í malbikið. Sjaldan sá hann andlit, en þó einna helzt frá ytri brún veg- arins. Það var gaman að virða fyrir sér þessi andlit, lesa úr svip þeirra óskir og þrár. Sum voru glaðleg, önnur döpur. Hann hafði sérstaklega veitt þeim ríka athygli þessa viku, þegar jólaannríkið stóð sem hæst. Allir báru böggla, jólagjafir [200] eða matvæli, flýttu sér einhver ósköp, eins og um lífið vser* að tefla. Hann reyndi að giz^® á, hvað í bögglunum fælist' Það var ekki eins mikill galdur og margur hélt. AðalgaldurinH var glögg eftirtekt. Ef böggl' unum var haldið fast undir hendinni, voru þeir brothættir- Þá var það eflaust blómstur' vasi eða innrammað málverh Væri þeim hins vegar vingsa^ kæruleysislega, var í þei111 fatnaður eða annað, sem bet' ur þoldi hnjask. En yfirleitt fóru menn var' lega með þá, jafnvel laumuleg3' Þetta var ekki svo afleh gaf hins vegar lítið í aðra hönd' Honum eyddist ört fé, viss' eiginlega ekki í hvað. Ekki fór það utan á hann. Nei, hann gekk í sömu lörfunum, gfl3' andi af óhreinindum, dag eftir dag. Fólk var farið að veita honum athygli, stara á hann eins og eitthvert veraldarund' ur, hlæja fyrirlitlega. Þegar hann leit í spegd’ furðaði hann sig hreint ekk1 á því. Hann var orðinn fölur og kinnfiskasoginn, augun f jar' ræn og innstæð. / Já, þetta atvinnuleysi tók a taugarnar. Það var seigdrep' andi, líkt og rótgróið æxli 1 holdvef. Buddan slaknaði dag hvern, unz ekki var í henn1 fyrir einni fábrotinni máltíó' Og nú var svo komið, að hann svalt. Sulturinn nagaði innyfb in, herpti þau saman og stund' um seldi hann upp. Og nú voru jólin komh’ þessi hátíð friðar og allsnægt0- Dálaglegt það. HEIMILISBLAÐl9 og kakkalakka. Hurðin hékk á annari löminni, hin brotin. dægradvöl í atvinnuleysinu' drap tímann ótrúlega fljótt, en

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.