Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Page 4

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Page 4
anum og laufþakið hvelfist yf- ir mann, grágrænt, grafkyrrt og þjakandi, eru fyrstu geislar glóðheitrar Afríkusólarinnar farnir að verma efstu brúnir fjallanna. Hið drynjandi öskur, sem hljómaði gegnum frum- skóginn, var nefnilega boðberi þess. Ægilegt, hvellt og andstyggi- legt öskur, sem ekki verður líkt við neitt mannlegt hljóð, er kveðjan, sem foringi hvers górilluflokks flytur fyrstu skímu dagsins. Frumskóga- negrarnir segja, að þetta sé fyrsta hljóðið, sem rjúfi hina djúpu og ægilegu þögn hita- beltisnæturinnar, og því kalla þeir hann, þennan risavaxna skógarmann, sem allir óttast, N’gagi, „boðbera morgunsins". En enginn, sem ekki hefur sjálfur heyrt þetta öskur, morgunkveðju górillaapans, getur gert sér í hugarlund óhugnanleik þessa náttúru- hljóðs. Ég hef oft heyrt þetta ösk- ur, bæði í frumskógum Gab- uns, Kameruns og Kongos. Enda þótt það vekti hjá mér óstjórnlega skelfingu, sérstak- lega í fyrstu skiptin, sem ég heyrði það, skelfingu, sem hvít- ir menn læra fljótt að sigrast á en negrarnir aldrei, fylgdi þó skelfingu ' minni í þetta skipti nokkur ánægja, því að nú vissi ég, að þetta sjaldgæf- asta og dýrmætasta villidýr Afríkufrumskógarins, sem ég hafði svo lengi leitað að og vonazt eftir að finna, var loks- ins á næstu grösum. Nú var um að gera að yfirgefa náttstað- inn sem fyrst, án þess að borða morgunverð, og hraða förinni í áttina þangað, sem öskrið heyrðist, því að annars væru górillurnar brátt allar á bak og burt, og þá yrðum við enn að leggja á okkur frekara erf- iði og baráttu, fleiri daga og nætur í þessu rökkvaða, loft- illa skógarvíti. Injuna, skógarmaðurinn risavaxni. Aldrei mun ég gleyma þeirri stundu, er ég sá górillaapa í fyrsta sinn. Síðan eru liðin nokkur ár, en oft dreymir mig þá stund, þegar ég sef í ein- hverju gistihúsinu, og þá hrekk ég upp æpandi. Ég var staddur í frumskóg- um Gabuns með skógarhöggs- mönnum. Dag einn gekk ég inn í skógarþykknið, til þess að líta á okoumetrén, sem svonefnd- ur gabunviður er unninn úr. Gagnstætt venju minni var ég vopnlaus. Ég gekk áfram eftir breiðum veginum, sem rudd- ur hafði verið, til þess að flytja eftir stórviðinn, skoðaði trén og gætti þess ekki, hve langt ég var kominn, svo brátt var ég kominn lengra inn í skóginn en ég hafði ætlað. Allt í einu sá ég eitthvað, sem líktist manni inni í grá- grænu rökkrinu. Ég skyggnd- ist betur um, þar sem ég hélt, að mér hefði missýnzt. En það, sem þar stóð, ef til vill tuttugu metra frá mér, reyndist vera risavaxið, hræðilegt villidýr. Þéttur, grásvartur hárlubbi lafði niður af öxlum þess. Þeg- ar augu mín höfðu vanizt skóg- arrökkrinu nægilega, greindi ég einnig andlitið. Það starði á mig, líkast andliti villimanns, afmynduðu af bræði, nema hvað það virtist helmingi stærra. Og nú komst skyndi' lega hreyfing á þetta kafloðna, risavaxna vöðvaflikki. Ég greip til þess eina ráðs, sem ég átti völ á í þessum kringumstæð- um, ég sneri við og hljóp 1 áttina til bækistöðva minna- Og þá var eins og ég heyrði hljóðlátt fótatak nakinna ilj3 á eftir mér. Ég hljóp eins og ég ætti lífið að leysa. En þegar ég leit sem snöggvast um öxli eftir hérumbil fiínmtíu skref. sá ég gráan skugga fyrir aftaP mig, sem gat ekki verið fj®r en sem svaraði nokkrum metr' um. Var til nokkurs að hlaupa • Það voru tæpast meira en f j°r ir metrar milli mín og viU1' dýrsins, og ég bjóst við, að 3 næsta augnabliki mundi þess1 loðna ófreskja ráðast á m1#' En í því skjátlaðist mér. U111 leið og ég nam staðar, nam górillan einnig staðar. Stofi kringlótt og dökk augu, se!fl illskan leiftraði úr, störðu a mig. Þarna stóð ófreskjan me^ dinglandi handleggi, vagga11^1 skrokk og geiflaðan kjaftin11' Ég hörfaði aftur á bak, skre[ fyrir skref, og górillan fylg^1 mér eftir. öskrin, sem hún rak upp, urðu sífellt háværari illúðlegri. Ég nötraði af ótta við að verða kraminn til ba110 af þessum geysidigru han^ leggjum. Ég sneri við í snat’1 og stökk af stað, og ófreskja11 fylgdi mér enn eftir. Og þá, er apinn hafði rett náð mér í annað sinn, flau^ mér í hug, hvað orðið gæti me^ til bjargar. Ég sneri við skyndi, en nú beið ég ekki eft ir honum eins og í fyrra skipt ið, heldur gekk til móts við HEIMILISBLAÐlP [112]

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.