Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 16

Heimilisblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 16
EYÞÓR ERLENDSSON Föp í Þjórsárdal VORIÐ 1934 datt mér og Erlendi bróður mínum í hug að taka okkur einbverja skemmtilega ferð á hendur, ferð, sem okkur báðum gæti orðið minnisstæð og til ein- hverrar ánægju. Stungum við upp á ýmsum nafnkunnum stöðum, sem við aldrei höfð- um séð, en bæði lesið um og heyrt aðra, sem þar höfðu komið, láta mikið af, sakir fegurðar. Loks varð það svo úr, að við akváðum að fara austur í Þjórsárdal, einn feg- ursta og einkennilegasta stað- inn, sem til er a landi voru, og var ferðin ákveðin fyrsta dag júlímánuðar. Ég hugsaði með sívaxandi tilhlökkun til þessarar ferðar, enda er það mín allra bezta skemmtun að ferðast um ókunna staði, á góðum hest- um, og virða fyrir mér hina dásamlegu fegurð, sem alls staðar blasir við í náttúrunni. Klukkan fimm að morgni hins ákveðna dags lögðum við svo af stað í yndisfögru veðri, ásamt Ólafíu systur okkar, og héldum sem leið liggur austur eftir þjóðveginum, alla leið að Ásólfsstöðum. — Er víða fag- urt um að litast á þessari leið, og getur að sjálfsögðu margt að líta, sem athyglisvert er og gefur ferðinni aukið gildi.Eink- um verður svipmót náttúrunn- ar laðandi, þegar austar dreg- ur. Til hægri handar streymir Þjórsá með síjöfnum þunga, en handan við hana laugar Landsveitin sig í dýrðlegum sólarljóma, blómleg og bú- sældarleg. 1 suðaustur ber Heklu við blátt himindjúpið, krýnda skínandi fannahjúp, og aðrar stórfenglegar jökulbung- ur gnæfa yfir allt annað lengra í suðri, en framundan blasa við tvö svipmikil fell, Hagafell og Búrfell. Á Ásólfsstöðum stönzuðum við lítið eitt, fengum okkur öl o. þ. h. Bóndinn þar, Páll Stef' ánsson, léði okkur þá af árbók' um Ferðafélagsins, sem ein- ungis fjallar um Þjórsárdal, og eru þar ýmsar góðar upplýs' ingar um leiðir og örnefni í dalnum. Er við fórum frá Ásólfsstöð' um, var komið fram yfir há' degi, og höfðum við stanzað þar nálega eina klukkustund- Héldum við nú inn með Skriðu- felli, og blöstu þá vjð hinh svonefndu Vikrar, en það er geysimikil flatneskja, þakin samfelldri vikurbreiðu, sem þangað hefur borizt í Heklu' gosum fyrr á öldum. Stingur auðn þessi mjög í stúf við hlíð' ar Skriðufells og Vatnsásinn svonefnda, sem eru klædd blómlegum skógi. — En svo herma gamlar sagnir, að land- flæmi þetta, sem þarna er graf' ið og drepið í dróma undir heljarfargi vikurs og auðnar, hafi um eitt skeið átt fífil sinn fegri. Oss er tjáð, að allt hafi það verið gróðri vafið. Þá var öll þessi auðn fjölbyggð sveit, ein hin fegursta á landi voru- En voldug náttúruöfl (þ- e- Heklugos) gjöreyddu allri þess- ari blómlegu byggð á skömm" um tíma, og fátt eða ekkert vita menn um örlög þeirra manna, sem þá bjuggu þar- Endurminningin um þessa byggð er nú að mestu horfin í rökkurmóðu liðinna alda, og [124] HEIMILISBLAÐIP

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.