Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1966, Side 3

Heimilisblaðið - 01.12.1966, Side 3
- ÁGÚSTÍN - Það á við um alla mikla heimspekinga, að líf þeirra og hugsun er eitt og hið sama. ^etta tvennt fer saman, líferni þeirra og skoðanir. Þeir hafa leitað sannleikans, hvað sem það kostaði, og af öllum mætti salar sinnar og ástríðu. Þeir liafa gert alvöru af sannfæringu sinni og helgað henni allt líf sitt, af því að það var blátt afram um lífið að tefla í þeirra augum. ^Hum hentisemisjónarmiðum er ýtt til uliðar; þeir segja allir: Hvað stoðaði það ^anninn, þótt hann áynni dýrð alls heims- ltls» ef hann biði tjón á sálu sinni! Smá- ^ennin hafa stundum getað látið sér nægja ^Uþna . . . mikilmennin aldrei! , í ritum Ágústíns er maður, sem á í bar- affu, gagntekinn af þessum tveim mikil- ^®gu spurningum: Hvernig á ég að skilja uveruna og hvernig á ég að skilja sjálfan ^1?? Trúarlega leitandi hugur, sem leitar irtu og friðar. Flestar skoðanir, sem menn hafa birt, yyrða að engu eftir þá. Þær hverfa með inianum, sem þær hafa orðið til á, þær Uheyra tímanum . . . Yfir Ágústín er ^varandi mennska, vér finnum blóðið s reyma um lifandi hjarta. Sorg og gleði u^anns, ný á öllum tímum . . . Árelíus Ágústínus fæddist í litla bæn- urn Tagaste í Norður-Afríku (nú Alsír) • nóvember 354. Foreldrar hans — faðir ans, Patrisíus og móðir hans, Mónika — °ru almúgafólk, sem lögðu stund á jarð- , . Ju í smáum stíl. Þau áttu við fremur ^ag kjör að búa, það var erfitt fyrir þau afla tekna, til þess að sonur þeirra gæti undað nám. Ágústín lýsir bernsku sinni og fyrstu æskuárum í Játningum sínum á þann veg, að hann hafi verið siðspilltur og djúpt sokkinn í fen syndarinnar . . . En þegar aðgætt er nánar, í hverju spillingin var fólgin, furðar maður sig á því, hve hann hefur í raun og veru verið gott barn. Það er naumast hægt að kalla þessi stráka- pör alvarlega villu nema út frá mjög ströngu kirkjulegu sjónarmiði. Játning- arnar eru ritaðar um árið 400, og tilgang- ur þeirra er m. a. sá að skýra frá, hve sterk tök syndin hafði á honum á undan hinni miklu trúarlegu byltingu, er hann gekk alveg yfir til hinnar heilögu, kaþólsku kirkju. Eins og móðir Kants hafði úrslitaáhrif á grundvallarafstöðu og hugarstefnu hins mikla þýzka heimspekings, þannig réðu einnig áhrif Móniku mestu um þá leið, sem Ágústín fór. Hún ól hann upp í krist- indómi. Og líf hans var þannig, að með réttu má segja, að hann hafi verið „krist- inn í mótun“. Var hann þá heimspekingur, þ. e. sann- leiksleitandi, laus við kennisetningar ? Já, því að hann leitaði sannleikans án þess að vita, hvar hann mundi enda. En hann hlaut, vegna grundvallarafstöðu sinnar, að berast þangað, sem hann hafði að lok- um fullnægjandi „sannanir“ fyrir, að sann- leikurinn væri. Meiri hlutlægni í heim- spekilegri leit er ekki til meðal manna. Ungi maðurinn átti að menntast í mælskulist. Hann átti að læra eins og orð- flækjumennirnir (sófistarnir) að gera svart að hvítu til þess að geta staðið sig

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.