Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1966, Page 9

Heimilisblaðið - 01.12.1966, Page 9
a umsátri Vandala um bæinn stóð, þann 28. ágúst 430. Ágústín hélt, einnig í elli sinni, áfram að vera hinn elskulegasti og geðþekkasti Biaður, mikilmennið . . . unglingurinn, sem horfir tárvotum augum á hinn fagra heim, en hugsjónin í hjarta, rödd Guðs sjálfs, laðar upp til hæða með valdi, í sársauka °g gleði. Hann var umkringdur vinum sínum alla ævi. Hugur hans var of auðugur og hlýr fyrir einveruna . . . Hann lifði fátæklega og sparsamlega — ' Segir einn borðnauta hans, Possidius, er siðar varð biskup. — Venjulega voru mál- tíðirnar grænmeti og ávextir; stundum tengum við einnig kjöt, með tilliti til gesta °g sjúklinga. Sett var lítil vínflaska við sæti hvers og eins, þó að Ágústín hrósi algjörri bindindisemi á vín í bók sinni um Venjur kaþólsku kirkjunnar. En sérhver tékk aðeins takmarkaðan skammt; við ein- hverjar yfirsjónir — t. d. blótsyrði — var lann tekinn frá okkur. En það var stórmannlegur blær á sam- kvæminu. Ágústín vildi láta nota silfur- skeiðar við súpuna, og honum féll ekki í geð, að nokkur kæmi hirðuleysislega klæddur. Allt baktal var bannfært. Á borðplötuna var festur seðill, þar sem letrað var: „Sá, sem hefur mætur á að tala illa um þá, sem fjarverandi eru, skal vita það, að honum leyfist ekki að sitja við þetta borð.“ Ágústín var óvenju fríður maður og að- laðandi að ytra útliti. Andlitssvipur hans var friðsæll og vingjarnlegur. Augu hans ljómuðu af innri friði og hamingju. Varir hans voru venjulega hálflokaðar, eins og hann væri ávallt reiðubúinn til þess að brosa eða mæla ástúðleg orð. Hann var beinvaxinn án þess að vera reigingslegur og gat hneigt sig án þess að verða smjað- urslegur. Possidius komst að raun um, að þótt bækur hans væru ágætar, var ekki unnt að bera ávinninginn við að lesa þær saman við það, sem maður öðlast við að hlusta á hann í kirkjunni eða umgangast hann sjálfan. Enska kvikmyndaleikkonan ndry Dennis notar engin egurðarmeðöl, ekki heldur Jostahaldara eða mjaðma- j h, því að hún er svo eðlis- _ gur- Þessir eiginleikar henn- hl °pnuðu henni leiðina í AUtverk í nýjustu kvikmynd xrfj”or-Burton „Wo’s afraid of Vir gmia Wolf?‘ Nýlega varð kvikmyndaleik- konan Merle Oberon 55 óra, en hún hefur þó útlit fyrir að vera yngri. Henni bárst mik- ið af gjöfum og blómum á af- mælisdaginn. Eftir nokkurra ára hvíld frá leiklistarstörfum leikur hún nú í nýrri kvik- mynd, sem hefur hlotið nafnið „Hótel“. Til kvikmyndahátíðarinnar i Taormina á Sikiley á ítalíu hópuðust fegurðardísir kvik- myndanna. Þarna situr ítalska kvikmyndaleikkonan Sandra Milo á baðströndinni í Taor- mina, ánægð á svipinn, enda fékk hún lof fyrir sin hlut- verk í kvikmyndum á hátið- inni. H E I M I L I S B L A Ð I Ð 229

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.