Heimilisblaðið - 01.12.1966, Side 22
ítalska kvikmyndaleikkonan
Sandra Milo hefur að undan-
förnu verið I Bandaríkjunum
til að þjálfa sig í ensku, áður
en hún byrjaði að leika í
bandarískri kvikmynd.
Hárskeri í París hefur útbúið
þessa hárkollu, sem hægt er
að nota eins og hatt.
Þessi kartafla er frá hinu sól-
ríka Suður-Frakklandi og er
af stofninum Salanum tuber-
osum.
Hinn 27. maí árið 1936 hóf
enska 81.000 tonna risaskipið
„Queen Marry“ fyrstu ferð sína
yfir Atlantshafið, en hættir
þeim nú um áramótin, því að
þá á að rífa það niður. Aðal-
framkvæmdastjóri Cunard-
skipafélagsins ætlaði upphaf-
lega að iáta skipiö heita
„Queen Vietoria“. — Skömmu
áður en skipinu var gefið nafn
var hann á veiðum með Ge-
orgi V. konungi og spurði
hann þá, hvort hann hefði
nokkuð á móti því að skipið
yrði skírt nafni mestu og fræg-
ustu drottningar Englands. En
konungur svaraði mjög hrif-
inn: „Þetta er mesta lof, sem
konan mín hefur nokkurn
tíma fengið.“ — Og svo var
skipið látið heita „Queen
Mary“, og svo féll það í hlut-
verk drottningarinnar að skíra
það.
Við höfum oft heyrt minnzt
á Ben Barka-máiið i fréttum
frá Frakklandi, en hann hvarf
á dularfullan hátt. — Myndin
er-tekin af konu hans í réttar-
salnum, Rikku Ben Barka.
Þetta er geimfarahanzki, og
sérstaklega ætlaður þeim, sem
fara út úr geimfarinu. — I
lófa hanzkans er púði, gerður
úr miiljónum nylonkorna, en
geimförin eru þakin að utan
moð sama efni. En þegar þessi
efni snerta hvort annað, loða
þau saman, svo að geimfarinn
hefur handfestu á geimfarinu,
þegar hann leggur lófann á
það.
242
H E I M I LI S B L A Ð I Ð