Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1966, Síða 28

Heimilisblaðið - 01.12.1966, Síða 28
sinnum leyfi til að hugsa dálítið um sjálfa sig. En sjálf veit ég það varla lengur. Ég hef svo lengi haft móður og systkini til að hugsa um, að ég er búin að gleyma því að vera eigingjörn. Hitt get ég aftur á móti staðhæft, að þegar maður er fæddur og settur á ranga hillu í lífinu, þá þráir mað- ur innilega að komast á þá réttu. Þetta þekkið þér ekki, því að þér eruð fæddur og upp alinn sólskinsmeginn." „Spurningin er aðeins sú, hvort mig langi nokkuð til að komast aftur á það sem þér kallið rétta hillu,“ svaraði hann. ,,Og spurningin fyrir mig er sú, hvort ég óski þess, að þér komizt á hana. Það er það kaldhæðnislega við allt sarnan," sagði hún. ,,Að sjálfsögðu ætti ég að ráða yður til að flýta yður að komast þangað. En geri ég það ?“ „Eigið þér við, að ég ætti raunverulega að taka tilboði Brandts?“ „Ættuð og ættuð. Það er ekki spurning um, hvað þér ættuð að gera. En það er spurning um framtið og lífshamingju. — Skammarleg spurning. — Æ, hefur maður ekki leyfi til að láta hjarta sitt ráða í að- eins eitt skipti ?“ hálfhrópaði hún. „Ég skil ekki, við hvað þér eigið.“ „Nei, það skiljið þér víst áreiðanlega ekki. Ég er bara eins og hver önnur flökku- stúlka, sem þér hafið tekið upp af göt- unni. í þeim heimi, sem þér heyrið til, er ég tæplega álitin mennsk vera. Flutninga- verkamaður er sennilega ekki álitinn það heldur. Við erum varla meira en persónur í skáldsögum." „Það er svo erfitt fyiir mig að taka ákvörðun mína,“ sagði Ogden Pieter. „Því ég hugsa bæði til Footsy og ömmu hans — og — og — og til yðar.“ „Hugsið þér til okkar? Skiptum við yfir- leitt nokkru máli fyrir yður?“ „Mjög miklu máli,“ svaraði Ogden Pieter. Hún þagði við, kinkaði síðan kolli hugsi. „Það er kannski rangt af mér að hugsa þannig,“ sagði hún, „en í þetta eina sinn ætla ég að standa með Peggy Fogarty, — en hún vill ógjarna, að þér hverfið aftur til þess hóps, sem þér komuð frá. Ef ég fengi að ráða, þá ættuð þér ekki að láta þennan herra Brandt hringja til föður síns út af yður.“ „Því ekki það?“ „Þér munuð aldrei geta gizkað á réttu ástæðuna, en ég get allavega komið með aðra ástæðu." „Segið mér, hvers vegna þér viljið að ég sé hér kyrr. Það er skoðun yöar sem ég vil fá að heyra,“ sagði hann ákafur. „Þér eigið að vera hér kyrr vegna þess, að hér eruð þér sannur maður, en ekki eitthvert nafn og heimilisfang; vegna þess að hér vinnið þér fyrir daglegu brauði yðar, en látið yður ekki nægja að taka við peningum sem yður eru hálfvegis gefnir; vegna þess að það sem þér komið í verk hérna, það er gert í krafti yðar sjálfs, yðar eigin hæfileika; og það sem þér græðið og framkvæmið er yðar eigið, en ekki eitt- hvað sem yður hefur verið fært á silfur- fati.“ „Þetta eru allt góðar og gildar ástæð- ur,“ sagði hann. „Vegna þess að þér komuð hingað sem flækingur án eyris í vasanum, en eruð nú meðeigandi í heiðarlegu fyrirtæki, sem þér hafið eflt á örfáum vikum. Þar sem þér áður voi uð, höfðuð þér rétt til að lifa eins og þér gerðuð vegna þess að þé'r voruð borinn til auðs. Hérna, þar sem þér eruð orðinn vinsæll meðal þeirra sem eru ein- hvers virði, hafið þér rétt til að vera vegna þess hvernig þér sjálfur hafið reynzt.“ „Gott og vel,“ sagði hann. „Og þér eigið að vera hér kyrr áfram, sökum þess að þér hafið byrjað á verki, en aðeins ómerkingur hleypur í burtu fra hálfnuðu starfi. Og vegna þess að þér eruð maður til að framkvæma verkið. Þér hafið hlutverki að gegna hér í Lenox, og þótt ekki sé nema að vera duglegur flutninga- verkamaður, þá er það margfalt meira virði en að geta boðið til fjölmenns sam- kvæmis í næturklúbbi í New York. Vegna alls þessa verðið þér að vera hér áfram og halda áfram því sem þér hafið byrjað á. Þetta eru nokkrar af þeim ástæðum, sem ég hef fyrir afstöðu minni til málsins." „En eru þær fleiri?“ „Það er að minnsta kosti ein til.“ „Hver er hún?“ 248 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.