Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1966, Qupperneq 34

Heimilisblaðið - 01.12.1966, Qupperneq 34
ar, ef fyrirtækið heppnaðist. Nú skal ég gera yður tilboð, herra Van. Sjáið um flutninginn á Hótel Lenox milli klukkan tólf á miðnætti og átta, að morgni, eins og þér hafið lofað, og komíð svo aftur hingað upp til mín. Þá skal ég leggja mála- leitan yðar fyrir bankastjórnina. Ég get með nokkru öryggi sagt, að þá væri allt útlit fyrir, að allt gengi yður að óskum.“ „Það er ekki nema sanngjarnt, það sem þér setjið að skilyrði,“ svaraði Ogden Piet- er. „Og það er líka allt og sumt, sem við förum fram á. Kærar þakkir, herra banka- stjóri.“ Goodrich reis á fætur og rétti honum höndina. „Heill og hamingja. Ég fylgist með yður af sönnun áhuga.“ Ogden Pieter gekk út að flutningavagn- inum og settist uppí og beið eftir aðstoð- armanni sínum, sem auðsjáanlega hafði skroppið burtu til að fá sér öldrykk í stað þess matar, sem varð að bíða. Á meðan hann sat þarna hugsaði hann: Hvers vegna gerði ég nú þetta? Kannski verð ég hér ekki lengur en þangað til búið er að flytja hótelið. Kannski hef ég þá ákveðið að hverfa aftur til New York og verða vara- forstjóri eins eða annars fyrirtækis . . . En nú hef ég þess í stað bundið mig um langan tíma. Hvers vegna lét ég eftir mér að hugsa um þessa vörugeymslu? En svo hugsaði hann áfram: Ég hef reyndar ekki bundið mig neitt. Þetta var aðeins uppástunga. Má vera, að bankinn samþykki hana alls ekki. Og má vera, að okkur takist alls ekki að flytja hótelið á einni nóttu. — Það er svo margt sem get- ur gerzt. Ég get aðeins látið sem ekkert sé. — Það er enginn sem getur heldur þvingað mig til að ganga á fund hr. Good- rich aftur. Ég get látið sem ekkert sé. En innst inni var honum ljóst, að hann myndi ekki geta látið eins og ekkert hefði gerzt. Það var eitthvað innra með honum sem veitti honum ekki leyfi til að gefast upp, þegar hann var einu sinni farinn af stað. Það var einhver stöðugleiki í honum sjálfum, sem hann réði ekki við; einhver þrjózka. Hann fékk þá undarlegu tilfinn- ingu, að hann væri ekki herra yfir eigin örlögum, heldur væri honum stjórnað af einhverju annarlegu valdi . . . Þegar hann kom heim, sá hann að Foot- sy var í mjög góðu skapi — það var i fyrsta skipti síðan þeir höfðu minnzt a hótelflutninginn. „Ég er búinn að tryggja okkur átta flutningavagna," sagði Footsy, „og þeir eru í eigu öruggra manna. Þeir koma hing- að í tæka tíð og fá fyrirmæli um það, hvað þeir eiga að gera. Ég hef skipulagt allt með sjálfum mér. Ég leyfi mér að segja. að það getur gengið með miklum hraða; ef enginn svíkur, verður hægt að framkvæma allt samkvæmt ýtrustu áætlun. Og ég hef það á tilfinningunni, að allt muni heppn- ast.“ „í dag er mánudagur. Flutningurinn á að eiga sér stað á föstudaginn — föstu- dagsnóttina klukkan tólf,“ sagði Ogden Pieter. Hann hafði ákveðið að segja ekkert við Footsy eða ömmu hans um hugmyndina að vöruskemmunni. Hann hafði ákveðið að varpa henni frá sér, ef hann mögulega gæti. „Ég verð ánægður, þegar kominn er laugardagsmorgun,“ sagði hann við sjálf- an sig, og síðan við ömmuna. „Ef allt hefur þá gengið vel,“ svaraði amman á sinn rólega og nærfærna hátt. „Ég er allavega staðráðinn í, að það verði,“ sagði Footsy glaðlega. „Og það skal verða.“ Síminn hringdi. Footsy svaraði. „Já, það er Mertz . . . Sæll vertu, .Take Cowles. Hvað er þér á höndum, Jake? Ég býst við flutningabílunum þínum tveim hingað á föstudagskvöldið klukkan átta. Það varð þögn. „Það geturðu ekki. Nei- Þú getur ekki dregið þig í hlé og brugð- izt mér. Þú lagðir við drengskaD þinn- Önnur þögn. „Hver hefur haft í hótunum við þig? — Þú óttast að bílarnir bínir verði eyðilagðir fyrir þér. Hver ætti að evðileggja þá? — Og óttastu, að menn þínir slasist? Ég vona, að þeir séu ekki búnir til úr sykri. Heyrðu mig nú, .Tnke. þú hefur leigt mér flutningabílana bína- og þeir verða að vera hér í tæka tíð . • • FRAMHALD. 254 heimilisblaðiÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.