Heimilisblaðið - 01.12.1966, Page 40
Kalla og Palla finnst það ekkert gera til, þótt
rigni, þvi að þeir eru vel við því búnir. Kalli er
með stóra regnhlif, en Palli er í regnkápu og
með sjóhatt. En öðru máli gegnir með slönguna.
Hún er svo löng, að hún getur hvergi fundið sér
skjól og getur heldur ekkert fundið tii að breiða
yfir sig. — „Það er nú verra, þá færð þú kvef“,
sagði Kalli fullur samúðar, „við verðum að finna
upp á einhverju, Palli! “ — Þeir ná í tvö löng rör,
sem þeir setja saraan. Og nú getur slangan skriðið
í skjól undan rigningunni. „Þetta er fallega gert
af ykkur, Kalli og Palli,“ segir slangan glaðlega,
„nú kvefast ég ábyggilega ekki!“
í dag er þetta þvottadagur hjá Kalla og Palla,
og Kalli verður að vinna grófasta verkið í þetta
sinn, því að Palli nennir engu nema að leika sér.
Kalli er því úrillur og ekki batnar skap hans,
þegar Matti héri, skjaldbakan og Palli koma þjót-
andi inn í þvottahúsið í eltingaleik og velta um
stóra þvottabalanum. Þau verða auðvitað hold-
vot, en Kalli vorkennir þeim það ekki. „Þetta áttuð
þið sannarlega skilið," þrumar hann geðvonzku-
lega, „nú er líka réttast að hengja ykkur upp
þerris með þvottinum. Þá getur maður kannske
fengið að vera í friði við vinnu sína fyrir ykkur!