Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 7
í sinn húðkeip, velja sér dýr, róa eins nærri og þeir þora, skutla, snúa við og láta dýrið, með skutulsoddinn í sér á kafi fyrir innan þykka húðina, draga fanglínuna og fang- blöðruna með sér. Síðan er það verkefni hátsmannsins að komast í skotfæri, drepa hið hættulega dýr, draga það inn og flytja það til næsta lendingarstaðar. Þar er fláð, aflanum skipt í jafnmarga bita og menn eru á bátnum, þó þannig, að hausinn með geysi- stóru höggtönnunum fellur í hlut mannsms, sem skutlaði, eða ef fleiri iiafa skotið skutl- um í dýrið, þess, sem skutlaði næst hausn- um. Gömul regla gefur sjúkrahúsinu sér- stakan hlut. Það var hlutverk mitt að gæta þess aflahlutar, ég, sem fór hvorki í húð- keip né gat hitt með skutli, gat þó útlilutað kaffi og tóbaki. Þegar myrkrið dettur á, er varpað akk- erum fyrir nóttina. Flegnir rostungarnir eru dregnir, biti eftir bita, í kjötgryfjur og huldir steinum. Þá er jólunum borgið. En það má ekki tæpar standa, því að þegar rostungaveiðinni er lokið, er myrkurstím- inn kominn. Það er meira að segja of dinnnt til þess að fara á rjúpnaveiðar. Menn haf- ast við inni og búa sig undir stórhátíð árs- ins, fjölskyldusamfundina, umskipti myrk- urstímans. I sjtikrahúsinu eru börnin önnum káfin. Þau eiga að klippa jólaskraut. I húsunum á fullorðna fólkið annríkt. Það er að útbúa jólagjafir. Hafi menn ekki vitað það áður, fá þeir að vita það nú: hér er enginn, sem skilja má út undan, liversu smá og lítilmót- leg sem gjöfin kann að vera. Einn daginn er tilkynnt, að ísinn sé orðinn þéttur. Það er unnt að aka inn í fjörðinn og sækja grænt jólaskraut eða aka út í eyjarnar, til kjötgryfjanna og sækja jólamat! Með skröltandi sleðum og hlæjandi sleða- ökumönnum kemur hvert hlassið eftir ann- að af stórum, frosnum kjötstykkjum til ból- staðarins. Sjúkrahúsið fær einnig aflahluti sína flutta heim, bali er settur við eldavél- ma. Nú á að þíða kjöt, ferskt kjöt handa sjúklingunum, sem hafa allt of lengi orðið að láta sér nægja viðurværi hvíta manns- ins: graut, brauð og dósamat. Með ísalögunum hefjast löngu samtölin um það, hverjir muni koma í ár, að norðan eða sunnan, og hvað þeir muni hafa með HEIMILISBLAÐIÐ sér. Undirbúningnum miðar áfram, jafnt og þétt. Einn daginn hefur sjúkrahúsið rétt til ölbruggunartækja nýlendunnar. Malt og humall eru sótt í búðina, liver ketillinn eftir annan með ís í er settur yfir eldavélina til þess að bræða og sjóða. Nú skal búið til öl eftir liinum gömlu uppskriftum Grænlands með því að brúna sykur á pönnmmi og láta hunang út í — og svo á helzt að bíða með að opna flöskurnar, þangað til ölið hefur staðið í hálfan mánuð. Bökunaruppskriftirnar eru líka teknar fram. Litlu barnahendurnar eru ýmist full- ar af pappírsskrauti, lími eða deigi. Það er gaman að vera hjúkrunarkona á þessum tíma. Hún þarf ekki að koma sjúklingum sínum af stað við neitt annað en að undir- búa jólin. Jafnvel eftir háttatíma má heyra, að það eru jólin ein, sem litlu heimskauts Eskimóarnir eru að hugsa um. Þeir æfa sig í jólasöng sínum með mjóum og svolítið drafandi röddum. Hver getur fengið af sér að segja, að kominn sé háttatími, svafntími og tími til þess að slökkva ljósin? Við vit- um um nokkra þeirra, að ævi þeirra mun aðeins vara um stutt árabil. Er dagur, er nótt? Er þetta draumur, eða er þetta vaka? Það er erfitt að átta sig á því, þegar hundarnir fyrir utan fara skyndilega að ýlfra eins og úlfar, sitjandi á afturlöppunum og með trýnið upp í loft- ið. Einn bjT’jar og rekur upp langt og ámát- legt ýlfur. Hinir koma á eftir. Allur hunda- hópurinn ýlfrar, eins og allt væri ákaflega sorglegt. Hljóðið kemur hundaeyki nágrann- ans á afturlappirnar. Ylfursamsöngurinn berst frá húsi til húss, frá dönsku húsunum til Eskimóahúsanna langt uppi í þorpinu. Börnin eru vakandi inni í sjúkrastofun- um. Þau hvísla: „Krimusit, krimusit — sleðar! Það eru að koma sleðar!“ Fyrstu jólagestirnir eru að korna. Við för- um í kamikkur og bjarnarskinnsbuxur, kveikjum ljós, kyeikjum upp í eldstæðinu. Sleðar, sleðar! Það eru að koma gestir! Svona, nú lieyrist í aðkomuhundunum ut- an frá ísnum. Hundar okkar reka upp enn sterkara ýlfur, þegar þeir fá svar utan frá. Hróp ökumannanna, svipusmellirnir heyr- ast, og nú kemur fyrsti sleðinn í ljós upp fyrir ísbrúnina með dynk. Hundarnir draga fólkið og sleðana upp 227

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.