Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 10
langtímum saman og segjum ekki neitt, hlustum aðeins á liratt fótatak hundanna á harðfenninu. Hve langt höfum við farið? Eg veit það ekki. Eg sit samanhnipraður í loðkápu minni, en liinir tveir ágætu Eskimóar stanza til þess að greiða sundur akstursólarnar. Þeir hafa orðið ásáttir um að skjótast nið- ur til lítils hólstaðar á leiðinni, sem heitir Sukat. Það þýðir hússtólpinn. Kralersak — Naflinn — á hús sitt þar. Við erum allir of gegnkaldir til þess að geta ekið í einni lotu, eins og við höfðum vonað. í skafrenn- ingi og á harðahlaupum er nú ekið niður eftir jöklinum, með fram hliðarjökulöld- unni. Síðan inn í grjóturðirnar til þess að hrapa ekki út yfir bratta jökulbrúnina. Enn tökum við tvo hlaupaspretti í viðbót, og þá erum við komnir. Skyndimáltíð, draumlaus svefn í svefn- poka í hlýju húsinu, svo verðum við að halda áfram. Það eru jól, og barnslíf er í húfi! Annar sólarliringur. Við erum í Kap York. Jes stöðvar sleðann okkar fyrir neðan hús- in, lætur smella tvisvar í svipunni eins og til þess að gefa til kynna, að gestir séu komnir, en enginn kemur út til þess að taka á móti okkur. „Við erum sjálfsagt ekki sérlega velkomn- ir,“ segir hann hlæjandi við mig, sem þekki ekki til fullnustu kurteisisvenjur Eskimóa. En ég er of óþolinmóður til þess að bíða eftir því, að einhver bjóði mér inn í hús, of óþolinmóður og of kaldur. Ég skreiðist út af sleðanum og haltra inn í hús Gíde- ons, þar sem Ólínu hafði verið komið fyrir, að því er sagt var. Nú verða hundaökumenn- irnir að sjá um það sjálfir að spenna frá, höggva hundafóðrið og fóðra liundana. Ég á annríkt. En húsið virðist vera mannlaust. Það er einnig hálfdimmt inni í því. Nei, þarna situr amma Ólínu, Helena gamla, og er að skara mosakveik spiklamp- ans. Langt inni á setubekknum, innan um tuskubögla, dúnsængur og skinn liggur Ól- ína sjálf. „Merkrat?“ segi ég. „Barnið?“ Iíelena brosir til mín. „Það lifir!“ Ég fer úr loðkápunni. Jes kemur með læknakassann minn, Helena með þvottavatn. Ég lít á Ólínu. Það er ígerð í brjóstunum. Það verður að skera í þau þegar í stað. Ólína hefur áður verið aðstoðarstúlka í sjúkrahúsinu, svo áð hún þekkir ýmisleg lælmisfræðileg hugtök. Þegar ég spyr hana, hvort liún vilji sofa — það er að segja fá svæfingu — svarar hún stras játandi. En enginn þeirra, sem viðstaddir eru, þarir að hjálpa mér. Rostungaveiðimennirnir tveir, sem ég hef séð koma fram með miklu hug- rekki í veigalitlu húðkeipmium sínum, með skutul á lofti, á móti dýi-um, sem liefðu, eins og eklcert væri, getað ráðizt á þá — já, rekið þá sjálfa í gegn með stóru högg- tönnunum sínum — þeir snúa sér tmdan, þegar lælcnirinn stingur litla hnífnum sín- um í brjóst ungu stúlkunnar. Gröfturinn vellur út. Grysju íbleyttri í klóramínvatni, er troðið inn, og bæði brjóst- in eru bmidm vel upp með léraftsræmum. Ólína vaknar, midrandi yfir því, að hún skuli hafa sofið svona vel. Svo var það barnið. Ilelena finnur það. Brjóstumkennanleg sjón, lirukkótt og liungr- að, en lifandi! „Ég hef með mér þurrmjólk, Helena!“ Það lifnar yfir gömlu konunni. Já, en þá getur hún séð um barnið — ef ég ann- ast um Ólínu , Það sýður í pottinum. Það er bjarnar- kjöt í húsinu. Sonur Helenu, Gídeon, hefur veitt björn fyrir skömmu. Hann er úti að setja upp refagildrur og kemur ekki heim fyrr en líður á nóttina. Eða er það dagur? Það getur verið erfitt að átta sig á tíman- um, bæði á sumrin, þegar sólin fer hring sinn, og um jólaleytið, þegar myrkrið grúf- ir yfir, sólarhring eftir sólarhring. Allir hafa magana fulla af lieitum mat og allir eru í jólaskapi, og við ræðum vandamálið: Hvað eigum við að gera við Ólínu? Gídeon kemur inn með miklum gaura- gangi. Yið höfum að vísu heyrt liundana hans gelta að okkar hundum, en hann kem- ur okkur samt að óvörum. Hann hefur nýtt refakjöt meðferðis. Potturinn er settur yfir enn einu sinni. Það er hægt að borða ósköp- in öll í kuldanum — og á jólunum! Refa- kjöt er ekki versta kjötið, sem hægt er að fá. Gídeon hefur lausn. Jes getur fengið lán- 230 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.