Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 27

Heimilisblaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 27
hún býður oklmr á samsöng í kvöld, ætlar þú að fara, frændif' „Anðvitað, ég er búinn að býrast nógu lengi í einverunni liér á Scchönwerth. Þú veizt, að ég er vanur að mæta, þegar hirð- in kallar mig, jafnvel þó ég verði að skríða þangað á fjórum fótum.“ Mainan opnaði dyrnar kímileitur og svar- aði erindi sendimanns. „Mér veitti víst ekki af að létta mér þetta upp,“ hélt marskálkurinn áfram. „Það ligg- ur liálfilla á mér, síðan ég frétti’ um tjón- ið, sem hefur orðið á indverska húsinu, og við það bætast önnur óþægindi. Til dæmis segir hún frii Schön þarna,“ og hann benti með vísifingrinum á hjúkrunarkonuna, án þess að líta við, „að það styttist mi óðum fyrir henni þarna yfir í indverska liúsinu. Og ég tek ætíð nærri mér, þegar einhver þess háttar sorg ber að höndum hér í lnis- inu; þess vegna lét ég flytja hestasveininn, sem drukknaði um árið, til líkhússins í borg- inni, en hvernig eigum við nú að fara að!“ „Ég verð að láta þig vita það, frændi, að ég hef andstygð á þessu tali þínu. Það er alveg gagnstætt eðli mínu,“ sagði Main- an reiðulega. „Hvernig getur þú talað svo um manneskju, sem enn er í tölu lifenda? Hafið þér gert hoð eftir lækninum?“ sagði hann í mýkri róm við frú Schön. „Nei, náðugi herra, til hvers væri það líka? Iíann getur ekkert hjálpað henni, og kák hans mundi aðeins verða henni til kval- ar. Sál hennar er þegar horfin héðan úr heimi, annars mundi hún ekki liggja og stara stöðugt fram fyrir sig, meðan Gabríel situr yfir henni og hágrætur.“ „Hætið þessum harmatölum, frú Schön,“ hrópaið marskálkurinn æfur. „Og þó þú gangir af göflunum við það, Raoul, þá get ég ekki tekið neitt tillit til ]>ess,“ sagði hann með vaxandi ákefð. „Þegar þannig stendur á, er ég sjálfum mér næstur, og ég get ekki lýst viðbjóði mínum á dauðu fólki. Þú munt sanna, að ég verð dauðveikur, ef þú sérð ekki um að líkið verði flutt þang- að, sem það á að vera, undir eins og hún hefur skilið við, ég meina til kirkjugarðs- ins.“ Líana skildi vel hvernig á ótta hans stóð, og hvílík óttaleg angist skein út úr orðum hans og æði, þar sem liann stóð og skalf eins og hrísla í vindi. Hann hafði ekki ótt- ast sál þessarar ólánssömu konu, meðan hún var bundin við máttvana líkamann, en nú . . . „Hún skal verða grafin undir óbelisku súlunni,“ sagði Mainan alvarlegur og lagði þunga áherzlu á hvert orð. „Gilbert frændi hefur rænt hana heimili sínu, og hún er eina konan, sem hann elskaði á ævi sinni — hún á fulla heimtingu á að hvíla við hlið hans, og nú er nóg komið af þessum harðýðgis- legu umræðum.“ „Hún á fullan rétt á að hvíla við hlið hans!“ endurtók marskálkurinn og rak upp háan hlátur. „Gerðu það ef þú þorir, Raoul, og þú skalt sjá hvað ég vil og hvað ég get. Bg hata þessa konu fram í andlátið. Hún má ekki liggja við lilið hans, jafnvel þó ég verði að búa mér sæng á milli þeirra!“ Mainan horfði stórum augum á marskálk- inn og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hvað átti þetta að þýða? Hann hafði einu sinni sagt sjálfur um frænda sinn: Pöður- bróðir minn er ágjarn og afar drambsamur, en hann er hygginn og kaldlyndur og verð- ur aldrei fyrir ofsóknum gegndarlausra ástríða. En gat þetta stafað af öðru en ástríðu, sem lengi hefði verið bæld niður, en brauzt nú út í almætti sínu. Marskálkurinn stóð á fætur og gekk furðu hröðum skrefum að næsta glugga. „Ég skil þig ekki, Raoul. Langar þig til að svívirða föðurbróður þinn í gröfinni?“ sagði hann. „Hafi hann ekki álitið það hneisu fyrir sig að þrýsta Hindúastiilkunni að brjósti sér og láta henni í té ást sína með öllu móti, þá ...“ Marskálkurinn rak upp afskaplegan hlátur. „Frændi!“ hrópaði Mainan í þeim róm, að marskálkurinn sá. þann kost vænztan að þagna. „Ég kom aðeins einu sinni til Schön- werth í þá daga, en ég man að það sem fólkið sagði mér þá, var nóg til þess að hita mér um hjartaræturnar. Maður, sem með slíkri nákvæmni og blíðu vakir yfir þeim loga ...“ En Mainan varð ósjálfrátt að þagna, þegar hann sá þann óvanalega loga, sem glampaði úr hvössu, harðlegu aug- um gamla mannsins. „Þessi nákvæmni og blíða stóð ekki nema HEIMILISBLAÐIÐ 247

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.