Heimilisblaðið - 01.12.1971, Side 41
Gamla svínafrúin liefur boðiS Kalla og Palla
heim. Þeir verða sammála um að þiggja boSið, en
búast viS litlum veitingum. „En til þess að eySi-
leggja nú ekki alveg daginn skulum viS byrja með
þvi að kaupa okkur ís‘ ■, stingur Kalli upp á og
Palli samþykkir það. I hvert sinn, sem þeir fara
framhjá ísbúð, fá þeir sér nýjan ís, á meðan þeif
geta torgað honum. Það er víst aS bangsarnir litlu
urðu ergilegir, þegar þeir komu til svínafrúarinnar.
„ÞaS var fallegt af ykkur að koma og 'hér hef ég
nokkra ísa til að hressa ykkur á eftir langa göngu-
ferð. Gjörið svo vel að gæSa ykkur á þessu“.
Kalli og Palli eiga í mesta stríði við mölfiðrild-
in, sem sækja mjög í föt þeirra og teppi. Kalli elt-
ist við þær með flugnaspaðanum og tekst að hæfa
nokkrar. „AS hann skuli nenna þessu“, liugsar
Pallii, „])aS er miklu auðveldara að gefa þeim
gamlan ullarkjól að éta, þá er maður laus við að
eltast við þær!“ Einn daginn, þegar Kalli og Palli
þurfa að fara í kaupstaðinn, er hellirigning. Þeir
taka regnhlífar sínar og sjá þá, að mölfiðrildin
hafa hefnt sín á Kalla og étið göt á regnhlíf hans.
L