Heimir - 01.02.1905, Síða 20

Heimir - 01.02.1905, Síða 20
44 HEIMIR lenzkt kvennlólk þetta, og ekki stór vörn kristindóminum, ef verið væri að bera hann fyrir brjóstinu. En það er oft þægilegra að þær bafi ekki uppi svör, þegar verið er að atyrða þær fyrir, að leggja peninga sína í klæðnað fyrir líkamann í stað framlaga til kyrkjunnar. En það er ekki fyr en Vilb. Pálsson fer að tala, að aðallega er komist að efninu. Hann gengur út frá þyí sem vísu, að ráða eigi bót á varnarleysinu gegn ofsóknunum, og hann finnur sáðið —að lesa bænir móti óvinum upp á gamlan og góðan kaþólskan sið, reyna særinguna, lesa pistla úr biblíunni, og verja húsið fyr- ir Heimskringíu, Eimreiðinni og Heimi. Það var viturleg til- laga og átti vel við efnið og staðinh. Meöal þetta eða annað mjög svipað því var notað úti á íslandi til forna. jón gamli Árnason segir svo frá, að gamlar konur hafi krossaö sig, er þær fóru að hitta Sturla sinn eða höfðu fataskifti. Mun það hafa verið ræðumanni í barnsminni, enda sagðist hann vita til þess, að ráð sín bæri góðan árangur, ef þau væri réttilega notuð. — Manniræðingar hafa það fyrir satt, að andlitsdrættir mannanna seinjist mjög að þeim hugsjónum, er gagntaki sálarlíf barnanna á unga aldri, einkum sé hugsjónin dregin af lifandi fyrirmynd. Útlit ræðutn. var eitthvað átakanlegt þetta kvöld, eins og oftar, er hann fór að leggja á ráðin. Var það og margra geta, að svo væri þeir einir, er „komnir væri úr hörmunginni miklu" og lifað hefði Sturlungu í æsku. Menn tóku líka eftir því, er hann sagði, því þar var talað úr heimi fyrirbænarinnar af sjónar og heyrnar- votti.------------ — Að félagsmenn hafi grætt í ytra áliti við fundi þessa eða með sjálfum sér aukist virðing fyrir aðvinnslumátanum er næsta ólíklegt. Aö prestarnir komi saman á næturþeli til að bölva ó- vinum sínum er ekki það, sem hrífur hjörtu þeirra, er langar til að vita til þess, að enn lifi dálítill mannskapur og dáð í ærlegri sókn eða vörn. Né þótt þeir leiði fáeina menn upp á ræðupall- inn, er boðnir og búnir eru að játa öllu, sem þeim er uppálagt, er ekki stórum aukið við fræðsluforða almennings með því. Sá leikur líkist meira skrípaleik trúðara Magnúsar konungs Erlings- sonar, „er hlaupa létu smárakka yfir hávar stengur. "■-

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.