Heimir - 01.08.1907, Side 10
58
Ii E I M I R
trúarbragöanna; hann er mjög mismunandi t. d. á Indlandi og
Gyðingalandi, en alstaöar sjáum vér merki þeirra ytri kjara, er
þjóöirnar hafa átt viö aö búa. A Indlandi átti sér staö breyt-
ing frá fjölgyðistrú til algyöistrúar (pantheism). í hinum elztu
ritum Hindúanna gömlu, Veda sálmunum, er talað um marga
guði. Agni, Indra og Varúna voru hinir helztu þeirra, en auk
þeirra voru margir aðrir guðir, sein einnig voru tilbeönir. En
fjölgyöistrúin fullnægði ekki til lengdar þeirri þjóö, sem Max
Mueller hefir kallað hina dýpst hugsandi þjóö heimsins. Trúin
á einn allsherjar guö, Brahman, útrýmdi fjölgyöistrúnni svo,
að í hinum síöari helgu bókum Hindúanna er það Brahman,
sem er og lifir í öllu; öll tilveran er Brahman í insta eöli sínu,
og ekkert getur veriö til án þess aö koma frá og hverfa aftur til
Brahman.l) Guö er alt í öllu, og ekkert getur átt sér staö frá-
skilið tilveru guös, er útkoman af hinni merkilegu þroskun trú-
arbragðanna framáviö á meöal Hindúanna. Þessi algyðistrú
kemur bezt í ljós í ritum þeim, sem nefnd eru „Upanishads",
og í heimspekisritunum, sem voru skrifuð eftir aö algyðistrúin
haföi verið viðtekin af þeim hluta fólksins, er nokkra verulega
mentun hafði; sérstaklega í hinni svo kölluðu Vedanta heim-
speki. Hvergi annarstaðar í heiminum hefir framþróun hug-
mynda þeirra, er liggja til grundvallar fyrir öllum trúarbrögð-
um, t. d. guðshugmyndarinnar, verið jafn áþreifanleg og á með-
al þess hluta Aryanska mannflokksins, sem gjörði Indland að
bústað sínum.
Ef vér nú berum Gyöinga trúarbrögðin og framþróun þeirra
saman við hin indversku, þá sjáum vér fljótt, að þar er um alt
aðra tegund af trúarbrögðum að ræða. Flestum fræðimönnum
ber nú saman um, að trúarbrögð Israelsmanna, Jahve trúar-
brögðin, hafi átt rót sína að rekja til annara lægri trúarbragða,
sem einhvern tíma hafi verið sameiginleg eign allra semitísku
þjóðanna. Trú þessi var fjölgyðistrú, en smásaman þegar þjóð-
flokkarnir skiftust í sundur og-tóku sér fasta bústaði og fóru að
yrkja landið, valdi hver þeirra sér einn guð, sem svo varö guð
1) Brahman er hvorugkyns orð; uppruni þess er vafasamur. Sumir fræði-
menn halda, að sagnmynd t'ess hafi upprunalega pýtt að b i ð j a .