Heimir - 01.01.1908, Side 19

Heimir - 01.01.1908, Side 19
H E I M I R 163 Hænsin urðu altaf kátari og fjörugri. Haninn fór aö veröa vífinn við hænurnar. Það komu mjög kynlegir innskotsþættir inn í þenna tryllingsdans. Þaö var í fyrsta sinni sem Lúövík fckk hugmynd um, aö hæns væru fuglar, svo geröarlega flugu þau ineð vængjabarningi og gargi. Hann lék viö þau skollaleik, náöi stundum einni og einni vængfjöður úr hænunmn, stund- um þreif hann utan um aöra löppina á hananum. — O, hvað haninn og hænurnar görguðu, —kötturinn mjálmaöi óhemjulega; þau hæns, sem ekki voru þaö og þaö augnablik í þessum tryll- ingsleik, átu af rauða maukinu. Drengurinn var töfraöur af ólátunum, hávaðanum og tryll- ingshættinum. Hann grenjaöi og hvein svo að yfirtók alt galiö og gargið í hænsunum, æddi um eins og djöfulóður, krafsaöi upp ruslið af gólfinu, þeytti því í allar áttir, hló og söng: „Og því skal herja hart sem hraustur kappi lands. Húrra, húrra, húrra!" Hann vissi ekkert, skynjaöi ekkert, hann og hænsin voru jafn djöfulóð í þessuin helvíska jólaleik, sem hann setti á stofn. Hvaö er nú að? Það var bariö á dyrnar. „Berjiö þið, eg skal berja aftur!" Og drengurinn barði með báöum stígvélahælunum innan á hurðina svo þrumaði undir, jafnframt því sem hann erti hænsin til þess aö flögra og vappa um kofann. „Hver er í hænsakofanum?" kvað viö utan viö kofann meö þrumandi rödd. Drengurinn þekkti röddina. Honum flaug í hug að hann ætti von á kinnhesti eða skrokkskjóðum. En hann var í því hugarástandi, að hann skoðaði slíka hversdags hluti sem smá- muni. „Gott kvöld og gleðileg jól, Skinna-Bóletta!" þrumaði hann út um huröina. Utan frá drundi: „Nei, aldrei á minni líísfæddri æfi, og alt til æfiloka, hefi eg þekkt, né mun þekkja, annan eins grasasna".

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.