Heimir - 01.01.1908, Page 22

Heimir - 01.01.1908, Page 22
H E I M I R 166 „Á vetrin í hörku og hjarni um hauður og svellþakta lá • við ökum í sleða og ærurnst meö ískalin nefin og blá."— Herra trúr! Þarna duttu kertisstúfarnir úr knýtunum niður á gólf. Rjúkandi skörin sloknuðu á svipstundu undir skóhæl- unum. Með myrkrinu komust þau til sjálfs sín. „En ef fyrirfólkiö heyrði nú þetta", sagði Bóletta. „Já, skollinn hafi það, það þætti mér nú verra", muldraði Trína. Þau Iæddust öll inn í eldhúsiö. Heimilisfólkið var alt á fótum ennþá nema gamla áttræða tengdamóðir trésmiðsins, sem hélt til í loftherbergi, er vissi út að garðinum. Þar var búið að loka, slökkva og draga niður gluggtjöldin. Skinna-Bóletta og sonur hennar urðu samferða heim í Or- eigahælið. Drengurinn fékk hvorki löðrung né skammir, því Bóletta játaði með sjálfri sér, að drengurinn hefði gert henni glaða jólanótt. IV. Gamla madama Brask, móðir madömu Rasmusson, hvísl- aði við kaffiborðiö á jóladagsmorguninn mjög íbyggin á svip: „Fyr mátti nú vera gauragangurinn í hænsakofanum. í gær- kveldi!" — Tengdasonurinn yppti öxlum. Gamla konan var orðin hjá sér, og sá og heyrði ýmislegt, sem aðrir hvorki sáu né heyröu. „Það var Ijós, söngur og dans þar úti," hélt madama Brask áfram. „Já, það er rétt líklegt," sagði trésmiðurinn og fór út úr stofunní, tautandi: „O-o, rugl!"--- Madama Brask hvíslaði að dóttur sinni: „í mínu ungdæmi settu menn dálítið af mat út handa. . . . handaþessum smáherrum á jólanóttina. Nú erumenn orðnirsvo

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.